Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Síða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Síða 23
 Sewrf war nú þyrla að sveima um haf frá Surtsey og vestur að Dröngum. Árangur snarlega góðan það gaf af Gœslunnar cefingum ströngum. Snöggir þeir þefa uþþ númer og nöfn — nú skyldi útgerðin borga — skipuðu þrjótnum að halda í höfn og hætta sem snarast að dorga. En gamlinginn hlýddi ekki réttarins rödd, hélt rólegur áfram að skaka. Þyrlan í vandrœðum virtist nú stödd, bað varðskiþ því lögbrjótinn taka. Með gínandi fallbyssum geystist um sjá, Gæslan í sókn vildi ráðast. Forhertum lögbrjótnum nú skyldi ná og neyða til hafnar sem bráðast. Lögum að hlýða oss landsmönnum ber og lagast að reglum og siðum. Aflinn af bátnum skal upptœkur ger til eflingar gæslu á miðum. Aðeins í róðrinum ýsukóð tvö að endingu féllu í valinn. Þarna við bættust þyrsklingar sjö, þar með var fengurinn talinn. Verðið á þorskinum þykir víst hátt þeim sem á markaðinn sœkja. í veskjunum þeirra samt vegur það smátt sem verndarstörf landgrunnsins rœkja. í sífellu Gœslan á eftir þeim er sem annast af prýði sinn nökkva. En þeir eru friðhelgir, því er mi ver, sem þjóðfélagsskútunni sökkva. • Nýorðin eiginkona lá og lét sér líða vel um brúðkaupsnóttina eftir unaðs- legar samfarir. En einhversstaðar í höfði hennar gerði veik tilfinning vart við sig, jafnvel örlítill vottur af afbrýðisemi. Henni fannst eins og hún gæti af ýmsu merkt að maðurinn hennar hefði talsverða reynslu í fangbrögðunum. Þess vegna spurði hún elskulega en þó dálítið hrædd við svarið: — Segðu mér, Palli minn, hvað hefurðu legið með mörgum konum á undan mér? Það var dauðaþögn í tíu mínútur. Þá: — Svaraðu mér, ég bíð enn eftir svari. — Þegiðu kerling! Ég er enn að telja. fslendingar eru vinnusamir, það verður ekki af þeim skafið. Sumir eru þó harðari á þessu sviði en aðrir, jafnvcl svo að öðrum þykir nóg um. Einn slíkur var áfragtara hér á ströndinni. Hann lét sig ekki muna um að standa tvo, jafnvel þrjá sólarhringa i einu ogfannst sér misboðið ef hannfékk ekki að standa nema einn sólarhring ef nóg var að gera, Félagar hans kölluðu hann Sólarhring. Einn dag þegar menn voru að fara inn í hádegismat sagði stýrimaður við hann: — Heyrðu Sólarhringur minn, þú ert nú búinn að vinna stöðugt síðan í gœrmorgun og ættir nú að fara að hvíla þig. — Nei, það er óþarf, ég get vel haldið áfram. Stýrimaður gaf sig ekki og skipaði honum að hœtta ogfara í koju, og Sólarhringurinn flýtti sér að borða ogfór svo út. Þegar hinir komu aftur til vinnu sáu þeir vininn í verkamannáhópnum á bryggjunni. — Hvað ertu að gera þarna maður, var ég ekki búinn að segja þér aðfara í koju? kallaði stýrimaður til hans. — Þér kemur það djöfulinn ekkert við, svaraði hinn. Ég er á frívakt og er að vinna í landi núna. • Nonni netamaður fór að kaupa smokka. í apótekinu voru honum sýndar nýju pillurnar fyrir karlmenn og stúlkan sagði: — Þú ættir að kaupa þessar í staðinn, þær eru getnaðarvörn framtíðarinnar. — Ég gef skít í það, ég ætla að ríða núna.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.