Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Blaðsíða 33
UREINUIANNAÐ
FARMÖNNUM
FÆKKAR
ENN
OG SKIPUM
EINNIG
Samkvæmt úttekt Stýrimannafé-
lags íslands hefur stöðum á farskip-
um innan útgerða Sambands ís-
lenskra kaupskipaútgerða fækkað
um 25 fyrri hluta þessa árs. Stöðum
íslendinga hefur fækkað um 17 og
útlendinga um átta.
Einar Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri SÍK, sagði rnegin-
ástæðu þessara breytinga vera þá að
tvö skip hefðu verið seld úr landi á
þessu tímabili. Annars vegar Ljósa-
foss frá Eimskip og hins vegar Askja
sem var í eigu Skipaútgerðar ríkisins.
l'egar sú útgerð var lögð niður
keyptu Samskip hin tvö skip Skipaút-
gerðarinnar, Heklu og Esju sem nú
heita Búrfell og Kistufell.
Eins og frant kemur á meðfylgj-
andi töflu sigla nú 14 kaupskip undir
íslenskum fána en 20 undir öðrum
fánum. Þar má einnig sjá að hlutfall
Islendinga og útlendinga um borð í
skipunum hefur sáralítið breýst það
sent af er þessu ári. Hins vegar hefur
hlutfall útlendinga aukist rnjög frá
því sem það var í ársbyrjun 1990 á
kostnað íslenskra farmanna.
Fjöldi skipa sem gerð eru út á vegum útgerða
innan SIK júní 1992 (jan. 1992).
Fáni:
ÍSL. NIS. Þœgf. Samtals
Eimskip 6(6) 6(7) 12 (13)
Samskip 6 (4) 1 (1) 3(3) 10(8)
Nesskip 1 (1) 6(6) 7(7)
Nes 3(3) 3(3)
Ríkisskip (3) (3)
G. Guðjónss. 1 (1) 1 (1)
Jöklar 1 (1) 1 (1)
14(15) 5(5) 15 (16) 34 (36)
Tímaleiguskip eru 4(3)
Þttrrleiguskip eru 2(2)
I eigu útgerðanna eru 28(31)
34 (36) skip
Stöðufjöidi á skipum sem gerð eru út af
útgerðum innan SIK.
Júní 1992 (janúar 1992)
fslendingar Útlendingar. Samtals.
Skipstjórar 28 ( 30) 6( 6) 34 ( 36)
Stýrimenn 47 ( 51) 18 ( 20) 65 ( 71)
Vélstjórar 57 ( 60) 21 ( 22) 78 ( 82)
Loftskeytamenn 2( 1) 2( 2) 4 ( 3)
Brytar/matsv. 20 ( 22) 14 ( 14) 34 ( 36)
Bátsm./hásetar 104 (110) 27 ( 31) 131 (141)
V élaverðir/u. menn 16 ( 16) 16 ( 17) 32 ( 33)
Þernur/messar 5 ( 6) 5 ( 6)
279 (296) 104 (112) 383 (408)
Júní 1992 72,8% 27,2%
Jan. 1992 72,5% 27,5%
Febr. 1991 75,8% 24,2%
Jan. 1990 81,5% 18,5%
Heimildir: Stýrimannafélag íslands.
Útgerðarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
33