Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Side 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Side 41
það nýbreytni. Nýlokið er tölvunám- skeiði þar sem tekin var fyrir almenn tölvunotkun og algeng notendaforrit kynnt. Miklar endurbætur standa nú yfir á vélhermi skólans og gildir það bæði um hugbúnað og vélbúnað. I dag gegnir hermirinn mjög mikilvægu hlutverki í vélfræðikennslu skólans en áhrifa hans gætir víðar, meðal annars í enskukennslunni. Eftirfarandi nemendur hlutu verð- laun fyrir góða frammistöðu: Jóhannes K. Sveinsson fyrir vélfræði, rafmagnsfræði- og raungreinar. Hann fékk meðal annars sérstök t'erð- laun frá Landssambandi íslenskra út- vegsmanna. Finnjón Ásgeirsson fyrir kælitækni og véltækni. Guðni Þorvaldsson fyrir rafmagns- fræðigreinar. Steingrímur Pálsson fyrir tungumál. Guðbjörn Þorsteinsson fékk sérstaka viðurkenningu frá Vélstjórafélagi ís- lands fyrir góða frammistöðu í félags- málum. Hjálmar Þ. Baldursson hlaut verðlaun fyrir góða ástundun og framfarir í námi. Við skólaslitaathöfnina mættu eldri árgangar sem fögnuðu tímamótum og voru þar á meðal vélstjórar sem áttu 60 og 50 ára útskriftarafmæli. Guðbjörn Þorsteinsson talaði fyrir hönd útskrift- arnema en þeir færðu skólanum fasa- sjá að gjöf. í lok skólaslitaræðunnar beindi skólameistari orðum sínum til nýút- skrifaðra vélstjóra og vélfræðinga og sagði meðal annars: „Markmiðið með vélstjóranáminu er fyrst og fremst að stuðla að því að þið verðið góðir vélstjórar og góðir fagmenn. Til að svo megi verða þarf margshátlar kunnáttu og hana reynir skólinn að veita eftir bestu getu. Þeir sem hafa stundað skólann vel og reynt að meðtaka þá þekkingu sem í boði er hafa haldgóða undirstöðu til að verða góðir fagmenn. Hinsvegar er undir- staðan ekki nægileg ein og sér ef fag- legan metnað skortir. Á þessum tíma- mótum í h'fi ykkar vil ég hvetja til þess að þið ræktið með ykkttr faglegan metnað. Hin ytri einkenni faglegs metnaðar koma fram í gleðinni sem fylgir því að skila af sér góðu verki. Sama hvort um er að ræða smíðisgrip, viðgerð á vél eða góðan árangur við rekstur vélakerfa. Saga okkar íslend- inga geymir bæði frásagnir og gripi sent bera vitni um verkþekkingu og útsjónarsemi forfeðranna. Einnig er í okkar norræna menningararfi margt sem bendir til að verkþekking og kunnátta haft staðið í miklurn blóma miðað við hvað þá gerðist meðal þjóða. T.d. varð verkþekking á skipasnn'ði og járnvinnsla á víkingaöld til þess að gera Norðurlöndin að heimsveldi á þess tíma mælikvarða. Þá hefur án efa mikil virðing verið borin fyrir hvers kyns verkkunnáttu. í dag er vissulega ástæða fyrir okkur íslendinga að hefja verkþekkingu til vegs og virðingar á nýjan leik. í fornum sögum segir frá smíði hamars Þórs en það verk unnu dverg- arnir Sindri og Brokkur, sem báðir voru dverghagir. Sindri, sem var eldri, stníðaði en Brokkur, sem var ungur og sterkur, knúði smiðjubelginn. Við það verk lögðtt þeir ttndir alla sína verk- kunnáttu og faglegan metnað enda átti hamarinn að verða metinn og dæmdur meðal annarra góðra smíðis- gripa í hinum æðsta dómstóli en hann skipuðu goðin sjálf. Loki Laufeyjar- son hinn fláráði og hrekkjótti átti einnig gtipi sem skyldu metnir og gerði því allt sem í hans valdi stóð til að spilla smíði hamarsins. Meðal annars breytti hann sér í flugu og stakk dverg- ana til að trufla þá við smíðina en svo ntikil var einbeitingin að það hafði lengi vel engin áhrif. Loks greip Loki til þess ráðs að stinga dverginn Brokk, sem knúði smiðjubelginn, í annan augnkrókinn svo blæddi fyrir augað og fataðist honum |)á starfið augnablik og leiddi Jressi truflun af sér að ham- arsskaftið varð eilítið styttra en lil stóð. Margir góðir gripir voru lagðir fyrir goðin til mats og voru sumir gerðir af gulli og settir eðalsteinum. Járnham- Ellefu af þeim sextán 4. stigs vél- stjórum sem utskrifuðust á nýlið- inni vorönn. Þeir eru, talið frá vinstri: Finnjón Ásgeirsson, Þor- kell Arnarson, Steingrímur Páls- son, Guðni K. Þorvaldsson, Úlfar Hauksson, Páll Magnússon, Sig- urður Halldórsson, Guðbjörn Þor- steinsson, Bjarni Bogason, Gunn- ar Guðmundsson og Jóhannes K. Sveinsson. Á myndina vantar þá: Guðjón Magna Einarsson, Guðjón Arnar Þorsteinsson, Hafliða S. Björnsson, Rúnar Hermannsson og Styrmi Pétursson. arinn þótti bestur gripanna, þrátt fyrir ágallann á skaftinu. Þótti slíkur dýr- gripur henta Þór vel, þar sem hann var vel til Jtess fallinn að berja á hrímþurs- um og bergrisum. Þessi forna saga segir okkur dálítið meira um hugtakið faglegur metnað- ur og einnig hitt að í sífellu erum við dæmd af verkurn okkar. Einnig kenn- ir hún okkur að meta nytjahluti fram- ar fánýtu glysi. Peningarnir sem við fáurn greidda fyrir unnið starf eru okkur nauðsynlegir til að framfleyta okkur og fjölskyldum okkar og von- andi eigið þið eftir að gleðjast yfir þykkum launaumslögum í framtíðinni en sá sem finnur ekki til gleði og stolts yfír vel unnu verki hann hefur farið mikils á mis.“ Að skólaslitaathöfninni lokinni var boðið til kaffidrykkju í matsal skólans. Seinna santa dag bauð Vélstjórafélag íslands 4. stigs nemum til veglegrar veislu í Borgartúni 18. Á síðastliðnu hausti lét Andrés Guð- jónsson af starfi skólameistara fyrir aldurs sakir en við tók Björgvin Þór Jóhannsson. + 41

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.