Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 7

Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 7
NÁTTÚRUFR. 37 telja. Alls staðar, þar sem hann kom við, lét hann mikið til sín taka, en naut sín þó vel í samvinnu við alla þá, sem kunnu að meta verk hans og hugsjónir. Hann var hinn prúðasti í allri um- gengni, gestrisinn mjög heim að sækja, ætíð boðinn og búinn þeim til hjálpar, sem til hans leituðu. Það ræður að líkindum, að Guðmundi Bárðarsyni hlotnað- ist ýmis viðurkenning og vinátta margra mætra manna fyrir störf sín. Þannig var hann gerður að heiðursmeðlim hinns heimskunna enska vísindafélags „British Association“, og hjá ættjörð sinni hlaut hann heiðursnafnbótina ,,Prófessor“. Önnur sönnun fyrir hylli þeirri, sem hann naut meðal erlendra vísindamana, er það, að sumar af ritgjörðum hans hafa birzt í tímaritum, sem ein- ungis allra-færustu og þekktustu vísindamenn skrifa í, má þar nefna „Videnskabernes Selskabs Skrifter“. Með Guðmundi G. Bárðarsyni hefir Island misst einn sinna allra beztu sona. Mikið var það starf, sem honum tókst að leysa af hendi, þrátt fyrir illa aðstöðu, og margs konar erfiðleika. Hann hefir skilað ættjörð sinni miklu dagsverki, eftir því miður, allt of stuttan vinnudag. Hann er komandi kynslóðum til fyrir- myndar um dugnað og atorku. Nafn hans er landinu til heiðurs inn á við og út á við. Minning hans er þjóðinni til gleði, vegna þess að starf hans hefir sýnt, hve miklum vísindalegum hæfi- leikum íslenzkur alþýðumaður getur verið búinn, og hve langt er hægt að komast, jafnvel með lítilli menntun, mælt á mæli- kvarða nútímans, ef vel er að verið. Við samverkamenn Guðmundar hörmum tapið sáran. Tor- velt mun verða að fylla það skarð, sem dauðinn hefir höggvið í hina fámennu fylkingu. Aldrei framar megum við sjá hann í hóp okkar. Aldrei framar njótum við góðs af gáfum hans og dugnaði, en ávallt munum vér varðveita minningu hans, íslenzka þjóðin mun aldrei gleyma honum, og seint mun firnast nafn hans í sögu íslenzkra náttúruvísinda, því: Deyr fé, deyja frændr, deyr sjálfr it sama. En orðstirr deyr aldrigi, hveim sér góðan getr.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.