Fréttablaðið - 24.06.2009, Side 5

Fréttablaðið - 24.06.2009, Side 5
H A U S MARKAÐURINN 5MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2009 Ú T T E K T Íslenskt atvinnulíf er í öndunarvél á gjörgæsludeild á meðan uppgjöri gömlu og nýju bankanna er ólokið. Þetta segir Vilhjálmur Þorsteins- son, stjórnarformaður CCP, sem Viðskiptablaðið útnefndi á dögun- um stjórnarformann ársins. Vilhjálmur hélt erindi á fundi Félags viðskiptafræðinga og hag- fræðinga í síðustu viku þar sem hann sagði peningastefnuna full- reynda og yrði að grípa til aðgerða sem dygðu atvinnulífinu til fram- tíðar. Vilhjálmur tók undir með Krist- ínu Pétursdóttur, forstjóra Auðar Capital henni og bætti við að til- raunin með krónuna – minnsta gjaldmiðil heims – væri fullreynd. Sækja þurfi um aðild að Evrópu- sambandinu og innleiða evruna eigi að byggja hér um atvinnulíf á traustum grunni. - jab STJÓRNARFORMAÐUR ÁRSINS Tilraun með krónuna er fullreynd. Aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru er næsta skref, segir stjórnarformaður CCP. MARKAÐURINN/VILHELM Atvinnulífið í öndunarvél Stjórnarformaður ársins segir tilraunina með krónuna fullreynda flest eru nú tæknilega gjaldþrota, ráði vart við byrðarnar sem á þau eru lögð. Fyrir efnahags- og skatta- nefnd Alþingis liggur frumvarp sem felur í sér tillögur um breyt- ingar á tekjuskattslögum. Þar á meðal eru tillögur um fimmtán prósenta skatt á vaxtagreiðslur til erlendra aðila, þær sömu og Finnur nefndi. Málið var tekið fyrir á fundi nefndarinnar í gær og verður áframhald á umfjöllun um málið í vikunni. Forsvarsmenn nokkurra af stærstu og umsvifamestu fyrir- tækja landsins og aðilar sem þeim tengjast funduðu með nefndinni fyrr á árinu og sendu inn um- sagnir um frumvarpið í kjölfarið í mars. Allir þeir sem Markaðurinn ræddi við vöruðu við hættunum sem stafa af því að frumvarpið fari óbreytt frá nefndinni auk þess sem nokkur atriði sem þar sé að finna séu beinlínis röng. Í umsögnum sem Markaðurinn hefur séð er því vísað á bug að álögur á borð við þær sem stjórn- völd hyggist setja séu til í ná- grannalöndunum. Þvert á móti hafi verið dregið úr álögum og skött- um á vaxtagreiðslur til erlendra lánveitenda víða. Þær fyrirfinnist ekki lengur á Norður löndunum auk þess sem markmiðið hafi verið að afnema skatta sem þessa innan Evrópusambandsins. Viðmælendur Markaðarins segja nefndinni vissulega ganga gott til enda sé með frumvarpinu gerð tilraun til að skattleggja út- streymi á vaxtagreiðslur til er- lendra eigenda krónueigna sem festust inni með eign sína við setn- ingu gjaldeyrishaftanna í fyrra- vetur. Einn viðmælenda líkti frum- varpinu hins vegar við það að skjóta mýflugu með haglabyssu fari það óbreytt gegnum Alþingi. Hætt sé við að fleiri verði fyrir skaða en stefnt sé að. Allir viðmælendur Markaðar- ins sögðu ljóst hvert stefndi verði óbreytt frumvarpið að lögum. Verði fimmtán prósenta skattur lagður á vaxtagreiðslur erlendra aðila sem lánað hafi íslensku fyrir- tækjum fé til rekstrar muni það koma harðast niður á innlend- um fyrirtækjum. Erlendir lánar- drottnar sleppi með skrekkinn enda leggist skatturinn einfald- lega ofan á vaxtaálag erlendra lána og við það þyngist byrðar á íslensk fyrirtæki enn frekar. Ekki liggur þó fyrir hvert stefn- ir en vera kanna að erlendir lán- veitendur snúi baki við íslenskum fyrirtækjum. Íslenska efnahags- hrunið frá í fyrrahaust og þær af- skriftir sem erlendir lánardrottn- ar horfa fram á spila stóra rullu. „Við erum að skoða málið. Gagnrýnin er eitt af þeim atriðum sem við munum skoða fyrir aðra umræðu málsins,“ segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar. Hann gerir ráð fyrir að ákvörðun verði tekin um það fyrir vikulok hvort ákvæðið um ádráttar skattana muni standa óbreytt eða verði tekið út. TRAUSTIÐ VANTAR Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, benti á það á fundi Félags viðskiptafræðinga og hag- fræðinga í síðustu viku að trú- verðugleiki Íslendinga hefði fokið út í veður og vind í kjölfar efna- hagshrunsins í fyrrahaust og séu margir á tossalista erlendra lán- ardrottna. Hún benti á að aðgangur ís- lenskra fyrirtækja að lánsfjár- magni sé mjög takmarkaður og þurfi að grípa til aðgerða til að bæta úr því. Það sé ekki síst áhyggjuefni þar sem endurfjár- mögnun margra fyrirtækja er í mikilli óvissu nú um stundir. Treysta þurfi trúverðugleika íslensks efnahagslífs á nýjan leik til að byggja upp atvinnulíf til frambúðar, svo sem með aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru og bindi hún vonir við að það geti flýtt fyrir endurreisninni. Eftir því sem Markaðurinn kemst næst mun þolinmæði lánar- drottna íslenskra fyrirtækja ekki óþrjótandi. Kjósi þeir að útdeila fjármunum sínum í tryggara efna- hagsumhverfi en því sem hér virð- ist vera að rísa úr rústum efna- hagshrunsins. „Þetta (skattar á vaxtagreiðslur) sendir þeim mjög röng skilaboð og getur verið stórhættulegt við nú- verandi aðstæður,“ segir einn sér- fræðinga á fjármálamörkuðum í gær. „Þetta er ekki það sem þjóð- in þarf á að halda.“ FÖSTUDAGUR: Í bítið Ívar Guðmunds Siggi Ragg Reykjavík síðdegis LAUGARDAGUR: Hemmi Gunn og Svansí strax að loknum hádegisfréttum Bylgjan og Olís fara umhverfis landið á 80 dögum í sumar. Um hverja helgi leggjum við undir okkur nýjan áfangastað – byrjum í bítið á föstudagsmorgni og förum ekki fyrr en Hemmi og Svansí ljúka leik síðdegis á laugardegi. Við drögum vikulega úr potti Ævintýraeyju Olís og bregðum á leik með hlustendum Bylgjunnar um allt land. Sjáumst hress á Blúshátíð á Ólafsfirði um næstu helgi! BYLGJAN á ferðalagi Ólafsfjörður næstu helgi! 26.-27. júní Ólafsfjörður, Fjallabyggð Blúshátíð 3. - 4. júlí Höfn í Hornafirði Humarhátíð 10.-11. júlí Akureyri Landsmót UMFÍ 17.-18. júlí Flúðir Útilega Bylgjunnar 24.-25. júlí Fjarðabyggð Franskir dagar o.fl. Verslunarmannahelgin um land allt 7.- 8. ágúst Dalvík Fiskidagurinn mikli 14.-15. ágúst Rangárvöllum við Hellu Sumarhátíð 21.-22. ágúst Reykjavík 28.-29. ágúst Hveragerði Blómstrandi dagar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.