Fréttablaðið - 24.06.2009, Page 6

Fréttablaðið - 24.06.2009, Page 6
MARKAÐURINN 24. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR6 S K O Ð U N Sögurnar... tölurnar... fólkið... ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 miðlar ehf. RIT STJÓRI: Óli Kr. Ármannsson, olikr@markadurinn.is RITSTJÓRN: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, jonab@markadurinn.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadur- inn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 miðlar ehf. PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með Fréttablaðinu Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds. V I K U L E G V E F R Á Ð Í B O Ð I A L L R A Á T T A Mikil umræða fer nú fram um bankakerfið hér á landi og margir orðnir óþreyjufullir eftir að í því kerfi fari hlutirnir að snúast hraðar. Ríkisvaldið stýrir hér með einum eða öðrum þætti um 75 pró- sentum af öllu bankakerfinu. Við þurfum að fara 20 ár aftur í tímann til að sjá svipaða tölu, þegar ríkið átti þrjá banka, Út- vegs-, Búnaðar- og Landsbank- ann, nú heita þeir Íslandsbanki, Kaupþing og Landsbanki. Lítið hefur verið rætt um að sameina þessa banka, selja til nýrra aðila eða láta erlenda kröfuhafa ein- faldlega taka einn banka upp í skuldir. Það er ef til vill ekki tímabært að ræða um sameiningu bankanna, vegna þess að enn vantar allar ákvarðanir um stærð þeirra, efna- hagsreikning, eignar hald og fram- tíðarstjórnun. En ríkis stjórnin hefur nú í hendi sér mikla mögu- leika til hagræðingar í bankakerf- inu og þarf jafnframt sem fyrst að ákveða hvað hún ætlar að gera við þessar eignir okkar. En það er unnið allt of hægt, það er eins og flestir séu hræddir við að taka ákvarðanir; skilanefnd- irnar eru hræddar um að baka sér óvild erlendra kröfuhafa, banka- menn eru hræddir vegna þess að þeir vita ekki um framtíð bankans síns og þar með sína eigin framtíð og því er best að gera sem minnst þá eru jú engin mistök gerð. Það er ljóst að innan nokkurra mánaða munu koma nýir stjórnendur að öllum bönk- unum og vonandi nýir eigendur að hluta. Þetta mál er það stórt að ríkis- stjórnin verður að taka af skarið og hrinda málum í framkvæmd í bankakerfinu. Það verður að gefa út þau skýru skilaboð að á meðan beðið er eftir endanlegum efnahagsreikningi bankanna þá starfi þeir samt á fullu. Núver- andi stjórnendur hafi heimild til eðlilegra lánveitinga og afgreiðslu mála. Bankaráðin séu ekki með puttana í ákvarðanatöku um lán- veitingar nema allra stærstu mála. Ríkisstjórnin verður einnig að gera það upp við sig sem fyrst hvaða banka hún ætlar að sameina, hverja á að selja til innlendra og/ eða erlendra aðila. Eins og staðan er núna er erlendur lánamarkaður algjörlega lokaður fyrir innlenda aðila og þeir geta því ekki nýtt sér þá lágu vexti sem nú ríkja á alþjóðlegum markaði. Það verður sem fyrst að opna fyrir aðgang að erlendum lánamörkuðum. Stórt skref í þá átt er auðvitað lausn á Icesave deilunni, þó hún geti orðið dýr og svo hitt að ná samkomulagi við erlenda kröfuhafa, til dæmis með því að þeir taki yfir einn af íslensku bönkunum. Það gleymist oft í umræðunni að enn eru hér starfandi fjölmargir sparisjóðir og nokkrir þeirra eru í góðum málum og veita mikilvæga þjónustu. MP banki hefur haslað sér völl sem viðskiptabanki með opnun útibús fyrir almenning og fyrirtæki, það var snjall leikur fyrir lítið fé að fá yfir fjölmarga viðskiptavini SPRON og fleiri án þess þurfa sérstaklega að greiða fyrir það annað en að yfirtaka starfsmannasamninga og leigja fyrrverandi húsnæði SPRON. Nokkrir aðrir aðilar veita ákveðna þjónustu á bankasvið- inu, þó þeir séu ekki komnir í við- skiptabankaumhverfið, þar má nefna VBS fjárfestingarbanka, Saga Capital, Íslensk verðbréf og síðan nokkur smærri verðbréfa- fyrirtæki eins og HF verðbréf og Auður Capital. Í vandræðagangin- um með ríkisbankana hefur auð- vitað myndast meira rými á mark- aðnum fyrir þessi fyrirtæki og er það vel. En fyrir alla sem starfa á þessum fjármálamarkaði og þeirra sem njóta þjónustu hans, góðr- ar eða slæmrar, er mikilvægast af öllu að ríkið ákveði sem fyrst stærð, stefnu og framtíð sinna banka. Við erum öll óbeinir eig- endur að þeim og viljum fá sem mest fyrir bankana. Grípa þarf til bankaátaks LANDSBANKINN Í AUSTURSTRÆTI Í REYKJAVÍK Greinarhöfundur bendir á að þótt bankarnir hafi hrunið og ríkið tekið yfir innlendan rekstur þeirra séu hér starfandi fjölmörg smærri fjármálafyrirtæki, þar á meðal fjölmargir sparisjóðir, og í þeirra hópi nokkrir sem „séu í góðum málum“. Nauðsynlegt sé hins vegar fyrir alla sem á þessum markaði starfi að starfsumhverfi þeirra til framtíðar skýrist. MARKAÐURINN/PJETUR Jafet S. Ólafsson framkvæmdastjóri Veigs. O R Ð Í B E L G Ein af skemmtilegri vefsíðum netheima er www. webpagesthatsuck.com, þar sem farið er yfir vef- síður sem eru afar illa hannaðar og þær metnar. Þar segir meðal annars um fyrstu mánuði þessa árs, að „þetta virðist ætla að verða gott ár fyrir slæma vefsíðuhönnun“. Af einhverjum ástæðum virðast margir vefhönn- uðir vera fastir í því, að vilja koma frá sér „flottum“ síðum, án þess að velta fyrir sér hvort þær virki eða ekki. Þar fyrir utan eru sumar slíkar síður alls ekki „flottar“ og brjóta jafnan alvarlega í bága við hefðbundnar reglur um litanotkun á vefsíðum, svo ekki sé talað um viðurkenndar viðmiðanir um not- endavænar síður. En hvers vegna borga fyrirtæki háar upphæðir fyrir slæma vefhönnun, sem þar fyrir utan virk- ar ekki nægjanlega vel af ýmsum ástæðum? Getur verið, að útlitið eitt sé haft í huga, en hvorki virkni né hvort hún sé notendavæn? Við bendum vefstjórum og öðru áhugafólki á, að taka prófin á ofangreindri síðu (checklist 1 og checklist 2 á webpagesthatsuck.com) og meta þannig ástand vefsíðu sinnar, eða fá innlenda sér- fræðinga til að gera nauðsynlegar athuganir. Er vefsíðan mín góð eða slæm? Gerðar hafa verið lærðar úttektir á mismuninum á stöðu Íslands og Nýfundnalands. Nokkru eftir seinna stríð varð ofan á hjá nágrönnum okkar í vestri að ganga til liðs við Kanada, meðan Íslendingar völdu leið sjálfstæðis og sjálfstjórnar. Á Nýfundnalandi hafa verið viðvarandi félagsleg vandamál, atvinnu- leysi gífurlegt, skortur á uppbyggingu og nær þriðjungur þeirra sem þar búa ólæsir. Hér hefur hins vegar uppbygging verið mikil og landið í raun blómstrað sem vestrænt velferðarríki. Því má hins vegar velta fyrir sér hvort þarna hafi skilið leiðir í samanburði, eða hvort raunveruleg hætta sé á að Ísland rati leið Ný- fundnalands. Vandræði Nýfundnalands, sem var áður sjálfstætt ríki, hófust nefnilega nokkru fyrr. Á nítjándu öld má segja að landið hafi blómstrað, en þar var þing stofnað árið 1832. Á seinni hluta aldarinnar var Nýfundnaland gerði verslunarsamninga við nágrannaþjóðir sínar og gekk nokkuð vel, en fór svo út á varasama braut með miklum alþjóð- legum lántökum til að fjármagna hina og þessa uppbyggingu. Árið 1933 námu skuldir þjóðarinnar um 100 milljónum dala á móti þjóðarfram- leiðslu upp á þrjátíu milljónir dala. Heimskreppan sem þá var í garð gengin gekk svo endanlega frá þjóðar- hag eyjarskeggja þegar verðfall varð á fiskmörkuðum, en fiskur var jú helsta útflutningsafurð íbúa Nýfundnalands. Landið gat ekki staðið við skuldbind- ingar sínar og Bretar tóku þar yfir stjórn á ný. Eftir stríð kusu íbúar Ný- fundnalands um það hvort þeir vildu áframhaldandi landstjórn Breta, sjálf- stæði eða innlimun í Kanada. Frá 1949 hefur landið verið hluti af Kanada. Nú gengur yfir heimskreppa, Ísland er skuldum vafið og með nokkuð ein- hæfan útflutning, svipað Nýfundna- landi. Munurinn er helstur sá að við njótum stuðnings alþjóðasamfélagsins við að standa við skuldbindingar okkar og þar með við að halda sjálf- stæðinu. Á þetta bæði við um samkomulagið við Alþjóðagjaldeyris- sjóðinn og samninga við Breta vegna Icesave. Þeir sem halda því fram að hér eigi að hafna samkomulaginu sem gert hefur verið við Breta og jafnvel slíta samstarfinu við AGS þurfa að svara því hvaða framtíð þeir sjái fyrir sér okkur til handa. Hvernig þjóðfélag verði hér hægt að byggja upp þegar við höfum barið af okkur þá sem reyna að koma til aðstoðar, eins og stundum kemur fyrir drukknandi menn. Getur verið að fyrir þessu fólki vaki ekki annað en að við fáum að drukkna í friði? Eða sjá menn ekki lengra en nemur þeim skammvinna ávinningi að slá pólitískar keilur með óábyrgri yfirlýsingagleði. Má ég heldur biðja um að við höldum áfram samstarfi við þjóðirn- ar í kring um okkur um endurreisn. Leitumst við að standa við skuld- bindingar okkar og borgum hreinlega fyrir mistök fyrri tíma, frek- ar en að við hrekjumst inn í einhverja örbirgð og sjálfskaparvíti í ein- angrun frá öðrum þjóðum, sem allt eins gæti endað með því að þjóðin færi á hnjánum til Dana með beiðni um að taka við okkur aftur, svona þegar við værum búin að fá okkur fullsödd af slátrinu, signa fiskin- um og heimagerða fatnaðinum. Í þeirri stöðu væri samlíkingin við Ný- fundnaland eftir heimskreppuna á fjórða áratug síðustu aldar orðin óþægilega nákvæm. Þingmenn þurfa að gera nákvæmari grein fyrir afstöðu sinni en segja „við borgum ekki“ ætli þeir að fara þá leið þegar Icesave-samkomulagið verður borið undir Alþingi. Ólíkt Nýfundnalandi í Heimskreppunni miklu nýtur Ísland stuðnings AGS. Nýfundnaland glataði sjálfstæði. Valkosturinn við alþjóðasamstarf Óli Kristján Ármannsson Nú gengur yfir heims- kreppa, Ísland er skuld um vaf ið og með nokk uð einhæfan útflutning, svipað og Nýfundnaland. Munur- inn er helstur sá að við njótum stuðnings alþjóðasamfélagsins. www.8 . is Jón Traust i Snor rason f ramkvæmdast jó r i A l l ra Át ta ehf . Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.