Skinfaxi - 01.10.1928, Blaðsíða 1
ÚTQEFANDI: SAMBÁND UNGM.FÉL. ÍSLANDS.
RITSTJÓRI: BJÖRN GUÐMUNDSSON, NÚPI.
Okt. 1928 6. hefti.
Mullers-skólinn
er stofnaður í þeim tiigangi að útbreiða leikfimi hér
á landi, einkum er lugð áhersla á að kynna fólki
kerfi hins þekta heilsufræðings I. P. Muilers. í sam-
bandi við skólann eru einnig kendar ýmsar aðrar
fjölbreyttar einmenningsæfingar og iþróttir. Sérstak-
lega vil eg vekja athygli fólks á hinni bréflegu kenslu
í lfkamsæfingum, sem alt hraust fólk getur tekið
þátt í hvar sem það er á landinu.
Skólinn er bæði fyrir konur og karla og er skift
í þrjár deildir: 1. deild er fyrir hraust fólk sem vill
læra æfingar til að varðveita heilsuna og styrkja lík-
amann á skyhsamlegan hátt. 2. deild er fyrir fólk
sem vísað er til skólans af tæknum. 3. deild er fyrir
kennara. — Nánari upplýsingar gefur kennari og
eigandi skólans
Jón horsteinsson frá Hofsstöðum.
Mullersskólinn, Pósthússtræti 7, Reykjavík.
Sími: 758.