Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1963, Blaðsíða 27

Samvinnan - 01.05.1963, Blaðsíða 27
Föstudaginn 19. apríl setti Erlendur Einarsson fyrsta fund stjórnarformanna kaupfélaganna. Fundurinn var haldinn í samkomusal Sambandshússins og voru mættir þessir stjórnarformenn: Lárus Halldórsson, Kf. Kjalarnessþings. Ellert Jónsson, Kf. Suður-Borgfirðinga. Sverrir Gíslason, Kf. Borgfirðinga. Stefán Kristjánsson, Kf. Dagsbrún. Gunnar Njálsson, Kf. Grundfirðinga. Alexander Guðbjartsson, Kf. Stykkishólms. Jóhannes Davíðsson, Kf. Dýrfirðinga. Sturla Jónsson, Kf. Súgfirðinga. Jón Sigurðsson, Kf. Steingrímsfjarðar. Ólafur Þorsteinsson, Kf. Hrútfirðinga. Guðmundur Jónasson, Kf. Húnvetninga. Tópías Sigurjónsson, Kf. Skagfirðinga. Jón Jónsson, Kf. Austur-Skagfirðinga. Hermann Jónsson, Samvinnufélagi Fljótamanna. Albert Sölvason, Kf. Verkamanna. Karl Kristjánsson, Kf. Þingeyinga. Pétur Sigurgeirsson, Kf. Norður-Þingeyinga. Hólmsteinn Helgason, Kf. Raufarhafnar. Eggert Ólafsson, Kf. Langnesinga. Þorsteinn Sigfússon, Kf. Borgarfjarðar. Ásgeir Júlíusson, Kf. Björk. Friðrik Jónsson, Kf. Héraðsbúa. Elías Þórarinsson, Kf. Berufjarðar. Páll Hallgrímsson, Kf. Árnesinga. Hallgrímur Th. Björnsson, Kf. Suðurnesja. Jóhann Þorsteinsson, Kf. Hafnfirðinga. Kristján Jónsson frá Garðsstöðum mætti fyrir hönd formanns Kf. ísfirðinga. Á fundinum voru flutt þrjú framsöguerindi. Erlendur Einarsson ræddi um fjármál samvinnufélaga, Jón Arn- þórsson um starfsmannavandamálið og Páll H. Jónsson um fræðslu- og félagsmál. Fundurinn stóð í tvo daga og urðu miklar umræður um þau mál, sem fyrir fundinum lágu, og greint er frá hér á undan. Létu formennirnir í ljós mikla ánægju með það nýmæli, að boða þá saman til fundar, og verður að ætla að til fleiri slíkra funda verði boðað í framtíðinni. Fundarstjóri var Jakob Frímannsson en fundarritari Örlygur Hálfdanarson. SAMVINNAN 27

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.