Neisti - 01.10.1963, Qupperneq 5
Stórbrotnast viðfangsefni Ráð-
stjómarþjóðanna er maðurinn sjálf-
ur. Menning. Að hver einstaklingur
fái notið þeirra hæfileika, sem í
honum búa. Með hverju árinu aukast
möguleikar allrar alþýðu til list-
iðkana og annarra þeirra tómstunda-
starfa, sem hver kys sér. Markmið
og kjarni vísindanna um þjóðfélagið
er einmitt þetta : að hver maður fái
notið sfn.
Þróunin 1 Ráðstjórnarríkjunum
stefnir vissulega hraðfara í þessa
átt. Öðru visi getur heldur ekki
farið. Eins og vísindin segja fyrir
hvemig virkja skuli fallvatn og
vinna rafmagn ,segja vísindin fyrir
hvemig virkja skuli þjóðfélagsöflin
og vinna menningu.
Þó sósialismi sé vísindi.er hann
ekki neitt allsherjar „ patent ” , þó
grundvöllur sé lagður í hagskipun
þjóðfélagsins er margt vandamálið
óleyst. Þess hafa gerskir ekki gætt
sem skyldi, kannski ekki haft að-
stöðu til. Margvfsleg arfleifð frá
Stalíhtímum setur enn svip sinn á
ýmsa þætti þjóðlífsins, og af því
sprettur margur kynjagróður, sem
okkur, vinum þeirra og kunningjum
f öðmm löndum kemur býsna spánskt
fyrir sjónir. Kunnugir vita.og vita
fullvel, að sú örugga og rökrétta
menningarsökn, sem þar fer fram
hlýtur að uppræta illgresið.
Sömuleiðis er auðskiljanlegt hvers
vegna Ráðstjórnarþjóðum er friður
ekki aðeins hjartansmál, en innileg—
ust ósk og ákveðnastur vilji ( oft og
mörgum sinnum hafa þær ítrekað
þá tillögu að fallast á hvaða eftirlit
sem vera skal, aðeins ef viðsemj-
endur vilja fallast á ALGERA af-
vopnun ) - og væri margt með öðrum
brag f annálum, ef þær hefðu notið
friðar.
Trú okkár er sú, að það fólk, sem
nú heldur byltingarhátfð Ráðstjórnar-
ríkjanna eigi sér þungbærari sögu
og jafnframt glæsilegri hlut f mann-
kynssögu en annað fólk hafi sér átt.
Hátíð þeirra er hátíð allra, sem trúa
á samfélag manna og jarðneskt Iff.
Okkur væri hollt að reyna að skiija
þrautasögu þeirra, samfagna þeim
með þann árangur, sem þegar er
unninn og miklast með þeim af fram-
tíðarviðhorfunum, sem móta daglegt
starf þessa fólks.
ÁHUGAFÓLK UM DANSLIST. TALIÐ FRÁ VINSTRI: vbCTOR
POPOR ER NEMANDI í MALMIÐNAÐARSKÓLA, VALENTÍNA
JABLOKOVA VINNUR VIÐ GASMÆLINGU f NAMU, J. MARAKULfN
LOGSUÐUMEISTARI OG NELLÍ LJASKARONSKAJA ER LÆKNIR.