Neisti - 18.12.1978, Page 1
13. tbl. 1978 - 18. desember ÓREIGAR ALLRA LANDA SAMEINIST Verð í lausasölu kr. 200.
FYLKING BYLTINGARSINNAÐRA KOMMÚNISTA - STUÐNINGSDEILD FJÓRÐA ALÞJÓÐASAMBANDSINS
Snúumst til varnar
gegn kjaraskerðingum
og atvinnuleysi
Hegðun núverandi ríkisstjórnar er
skólabókardæmi um þá kenningu
marxismanns að borgaralegt ríkisvald
sé tæki borgarastéttarinnar. Þrátt fyrir
góðan ásetning - eða eigum við að
segja: þrátt fyrir pólitískar ástæður og
loforð um hið gagnstæða - þá hefur
núverandi ríkisstjórn lagt út á sömu
braut og fyrirrennari hennar.
Núverandi ríkisstjórn hefur ekki
haft neitt afl til að sporna gegn kröfum
atvinnurekenda um verðhækkanir og
hótunum þeirra um atvinnuleysi. Hún
hlaut því að ráðast á kaupmátt launa
jafn skjótt og hún sæi sér fært, þ.e.a.s.
jafn skjótt og forysta verkalýðshreyf-
ingarinnar væri reiðubúin að sam-
þykkja kjaraskerðingar.
Nú er fyrirsjáanlegt að efnahagsleg-
ur samdráttur verður á næsta ári,
samfara hættu á atvinnuleysi og við-
leitni atvinnurekenda til að ráðast á
kjör verkafólks. Gegn þessum hættum
verður verkafólk að beita samtaka-
mætti sínum í sjálfstæðri baráttu fyrir
ákveðnum lausnum sem samsvara
hagsmunum þess. Það verður að
upplýsa verkafólk um þær hættur sem
eru framundan og skapa meðvitund og
samstöðu um ákveðnar aðgerðir til að
mæta þeim.
Að undanförnu hefur forysta verka-
lýðshreyfingarinnar ekki gert neitt til
að undirbúa vörn verkalýðshreyfingar-
innar. Þrátt fyrir að fyrirsjáanlegt er að
atvinnurekendur og ríkisstjórnin
stefna að frekari kjaraskerðingum 1.
mars, þá er ekkert gert til að undirbúa
verkalýðshreyfinguna undir átökin,
ekkert gert til að efla verkalýðshreyf-
inguna sem sjálfstætt afl, sem gæti
þrýst á hina „vinveittu ríkisstjórn"
gegn þrýstingi atvinnurekenda, sem nú
leika hlutverk stjórnarandstöðu.
í stað þess að upplýsa verkafólk um
stöðuna í kjarabaráttunni, þá er reynt
að fela þær kjaraskerðingar sem orðið
hafa.
f stað þess að setja fram ákveðnar
kröfur um aðgerðir gegn hættunni á
atvinnuleysi og kjaraskerðingum, þá er
rætt almennt um „samráð“. f kjara-
málaályktun sambandsstjórnarfundar
ASf fyrir fáum dögum er rætt um að
„það svigrúm sem bráðabirgðaað-
gerðirnar gefa verðinýtt til varanlegrar
stefnumótunar í samráði við verka-
lýðshreyfinguna. . . .“ Jafnvel með
besta vilja er erfítt að sjá hvaða
svigrúm á að felast í fyrirsjáanlegum
efnahagslegum samdrætti og vaxandi
þrýstingi frá atvinnurekendum.
f ályktunum sambandsstjórnarfund-
arins er hvergi að finna ákveðnar
kröfur þar sem ríkisstjórnin er vöruð
við frekari kjaraskerðingum og hótað
aðgerðum til að fylgja þeirri kröfu
eftir, líkt og gert var á sambands-
stjórnarfundinum fyrir ári síðan. Nú er
einungis lýst „skilningi . . . á nauðsyn
aðgerðanna". Sambandsstjórn ASf
hefur augljóslega einnig „skilning" á
því að frekari „aðgerðir“ geti orðið
„nauðsynlegar".
Með þessu aðgerðarleysi sínu og
skilningsríki er forysta verkalýðshreyf-
ingarinnar ekki að gera neitt annað en
grafa undan styrk verkalýðshreyfíng-
arinnar og möguleikum hennar á að
vernda kaupmátt launa og þrýsta á
ríkisstjórnina. Með þessu er forysta
verkalýðshreyfíngarinnar að skapa
svigrúm fyrir íhaldið innan vérkalýðs-
hreyfíngarinnar. Hún er að veikja það
afl, sem eitt getur varið kjör verkafólks
og barist gegn þeirri íhaldsstjórn, sem
atvinnurekendur vilja fá.
f stað skilnings á nauðsyn kjara-
skerðinga verður verkalýðshreyfingin
að setja fram ákveðnar kröfur, sem
fylgt er eftir með hótunum um ákveðn-
ar aðgerðir, t.d. útflutningsbann eða
verkfall.
f stað almennra yfirlýsinga um bætt
verðlagseftirlit og samræmda fjárfest-
ingarstefnu verður verkalýðshreyfing-
in að byggja upp eftirlit með verðlagn-
ingu og rekstri fyrirtækjanna með því
að virkja það verkafólk innan verka-
lýðshreyfmgarinnar, sem framleiðir,
verðmerkir og selur allar vörur fyrir at-
vinnurekendur.
f stað þess að nota hótanir atvinnu-
rekenda um atvinnuleysi til að draga
kjark úr verkafólki og sætta það við
kjaraskerðingar verður að berjast gegn
yfirráðum atvinnurekenda yfir ráðn-
ingum og uppsögnum verkafólks og
öðrum þáttum sem varða rekstur fyrir-
tækjanna. Verkalýðshreyfingin verður
einnig að setja fram ákveðna stefnu um
uppbyggingu atvinnulífsins undir eftir-
liti verkafólks.
Einungis virkt starf verkafólksins á
grundvelli stefnumörkunar af þessu
tagi getur boðið birginn því skipulags-
leysi auðvaldsframleiðslunnar og
þeirri gróðafíkn atvinnurekenda, sem í
dag ógna atvinnuöryggi íslensks verka-
fólks og kjörum þess.
Á.D.
Höf. myndar : Kathe Kollwitz
Stúdentaráð lýsir yfir stuðningi
með þjóðaratkvæðagreiðslu
+ ... ................ *
Skrifstofa Fylkingarinnar er
opin frá 5-7 alla virka daga,
2-4 laugardaga
Nýlega samþykkti Stúdentaráð Há-
skóla fslands að lýsa yfir stuðningi við
kröfu herstöðvaandstæðinga um þjóð-
aratkvæðagreiðslu í hermálinu og við
baráttu þeirra fyrir henni. Fer sam-
þykktin hér á eftir.
,,SHÍfagnar þeirri samþykkt SHA
þar sem hvatt er til þjóðaratkvœða-
greiðslu um herinn og veru íslands í
Nato og styður hana heilshugar. Bend-
ir SHÍ, á, að þjóðin hefur aldrei verið
spurð um fyrrgreind mál ogað afstaða
manna til þeirra er engan veginn alltaf
á sömu lund og opinber afstaða þeirra
flokka er þeir kjósa iþingkosningum.
Þvífagnar SHÍþeirri baráttu sem nú er
hafin fyrir þjóðaratkvœðagreiðslu um
herinn og veru fslands í Nato."