Neisti - 18.12.1978, Side 8

Neisti - 18.12.1978, Side 8
Áskriftargjald seinni hluta ’78 - venjuleg áskrift kr. 1.700 - stuðningsáskrift ” 2.500 - til Evrópulanda ” 2.500 - utan Evrópu ” 2.800 Merktar greinar túlka ekki endi- lega stefnu Fylkingarinnar. Útgefandi: Fylking byltingarsinnaðra kommúnista Aðsetur: Laugavegur 53A, sími 17513 Ábm.: Birna Þórðardóttir Gírónúmer Neista er 17513-7 Rætt við Erling Hansson, vaktmann á Kleppspítala ,,Mjög mikilvœgt að BSRB-félagar á sjúkra húsum sýni fulla sam stöðu með sóknar félögum í baráttu þeirra fyrir launajafnrétti“ Launamismunurinn sem ríkir á spft- ulunum á milli ófaglærðs verkafólks - fyrir utan launamismuninn á milii ófaglærðra og „toppanna” sem er all- svakalegur - kemur nokkuð fram ívið- talinu við Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur. Neisti hafði tal af Erlingi Hanssyni, vaktmanni á Kleppsspítala og innti hann eftir því hvernig þessi mál horfðu við BSRB-félögum. E.H.: Frá því BSRB-samningarnir ’77 voru gerðir - eftir verkfallið - hafa ófaglærðir opinberir starfsmenn á rík- isspítulunum verið launahærri en Sóknarkonur sem eru sambærilegur starfskraftur. Það hefur að öllum líkindum lengst af verið svo, þó ekki á tímabilinu frá sólstöðusamningum til BSRB-verk- fallsins. Ófaglærðir opinberir starfsmenn eiga það sameiginlegt með öllum sem vinna í heilbrigðisþjónustunni - að læknum undanteknum - að hafa ekki árum saman farið í löglega vinnustöðv- un. BSRB-verkfallið og samningarnir í kjölfar þess urðu til þess að þeir sem veitt var undanþága til að vinna vegna öryggis- og heilbrigðisþjónustunnar, hækkuðu ekki síður í launum en aðrir. Ég er hinsvegar ekki í nokkrum vafa um það að ríkisvaldið hefur - í krafti þess að það veit að þessir aðilar fara aldrei í verkfall þar sem það mundi orsaka varanlegt heilsutjón hjá þeim sem eru einna verst settir í þjóðfélag- inu - reynir að halda launum þessa starfsfólks eins langt niðri og það mögulega getur, og hefur það komið einna verst niður á Sóknarstarfsmönn- um. Þessa hefur samt einnig orðið vart hjá opinberunL starfsmönnum sem vinna á sjúkrahúsum og hafa þeir gripið til margvíslegra aðgerða gegn þessari viðleitni ríkisvaldsins. Það má minna á hópuppsagnir meinatækna og hjúkrunarfræðinga og hótanir um slíkt hið sama frá sjúkraliðum. Þegar ríkis- valdið hefur staðið frammi fyrir fram- kvæmd slikra hótana, hefur það látið undan fyrir einum starfshópnum á fætur öðrum. N.: Hvernig heldurðu að BSRB-fél- agar á spítulunum muni bregðast við hugsanlegum aðgerðum Sóknarfé- laga? E.H.: Ég tel mjög mikilvægt að BSRB-félagar á sjúkrahúsunum sýni fulla samstöðu með Sóknarfélögum í baráttu þeirra fyrir launajafnrétti. Frumskilyrðið er að þeir gangi ekki inní störf Sóknarfélaga, hefjist vinnu- stöðvun í einu eða öðru formi. Ég tel líka bráðnauðsynlegt að Sókn hafi frumkvæði að því að upplýsa ófag- lærða BSRB-menn og aðra á spítulun- um um, hvað þær hyggjast fyrir og hvernig þær ætla að ná baráttumálum sínum fram. Það mætti vel hugsa sér að hægt væri að ná upp góðri samstöðu hjá öðrum starfsgreinum ef baráttumál Sóknar væru kynnt á spítulunum tímanlega. öruggt má telja að ríkisvaldið verði mun harðskeyttara á móti t.d. fjölda- uppsögnum Sóknarfélaga heldur en samskonar aðgerðum faglærðra starfs- hópa, ss. meinatækna, og þar mun vinstristjórn ekki greina sig í neinu frá hægri stjórn. Þessvegna er þeim mun mikilvægara að hefja sem fyrst undir- búning aðgerða - ekki bara Sóknar- starfsmanna - fyrir því að láta slag standa þegar á hólminn er komið. Ekki síður er mikilvægt að hefja undirbún- ing að því, að aðrir starfshópar sýni pamstöðu, t.d. með fjárstuðningi, ef ríkisvaldið vill fremur hafa Sóknar- starfsmenn atvinnulausa cn borga þeim sama kaup og karlmönnum er vinna sömu vinnu. -/bþ Ástkœru áskrifendur Rætt við Byltingin er dýr í rekstri. Brimrót fallinna víxla grefur undan Neista. Verðbólgnum höndum fer ritnefnd Neista oní pyngjur áskrifenda, og missir seðlana jafnskjótt út í hvirfilbyl dýrtíðarinnar. Við höfum undanfarið verið að rukka áskriftargjöld fyrir seinni hluta 1978, sums staðar gengið í hús, sent póstávísanir annað, aðallega út fyrir Reykjavík. Því miður koma þessir aurar seint inn. Með síðasta tbl. Neista sendum við áskrifendum utan Reykja- víkur yfirlit yfir skuldir þeirra. Áskriftargjald fyrir seinni hluta 1978 er 1700 kr., sumir skulda meir. Okkur er það mikið í mun að fá þetta greitt sem fyrst. Ef einhverjir sem skulda mikið eiga erfitt með borgun geta þeir haft samband við okkur um að borga hluta skuldarinnar. Heimilisfang Neista er Laugavegur 53A, Reykjavík. Skrifstofan er opin kl. 5-7 alia virka daga. Síminn er 17513. Gírónúmer 17513-7. Áskrifendur! Útgáfa Neista er mjög erfið fjárhagslega. Áskriftargjaldið er undirstaðan að íjárhag Neista. Við höfum reynt að bæta útlit og efni blaðsins. Nú síðast höfum við ráðist í að láta tölvusetja blaðið, sem er tals- verður kostnaðarauki. En það hefur lengi verið draumur okkar að stækka Neista og gefa hann út oftar. Efnisval er fábreytt, margir segja að blaðið sé leiðinlegt, en því miður eru litlir möguleikar á að auka fjölbreytnina meðan blaðið stækkar ekki. Betri skil á áskriftargjöldum og minni fyrirhöfn við rukkun eru skref í þá átt að þetta takist. Mikilvægast er þó fjölgun áskrifenda. En áskrifendur eru ekki bara til að plokka af þeim peninga. Við erum að reyna að hafa samband við ykkur, og gagnkvæmt samband er mikilvægara en einhliða söngur okkar. Gagnrýni á Neista, gagnrýni á Fylkinguna og álit ykkar á hinum ýmsu málum yrðu vel þegin. Þrátt fyrir plássleysi höfum við reynt að opna blaðið fyrir utan aðkomandi röddum. Sú viðleitni stendur enn. Ritnefnd. Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur ,, Sóknarfélagar geta ekki gefið neitt eftir að sínu“ Nokkur aðildarfélög ASf hafa ekki orðið við tilmælum sambandsins að afturkalla uppsögn kaupgjaldsliða kjarasamninganna. Lítið hefur farið fyrir því f fjölmiðlum að ástæður fyrir afstöðu þessara félaga væru kynntar (nema þá helst Mogginn með Verslun- armannafélagið, sem verða alltaf all hjáróma þegar þeir nótar fara að láta sér annt um afkomu verkalýðs). Eitt af þessum félögum er starfs- mannafélagið Sókn. Okkur þótti rétt að skýra frá ástæðum fyrir afstöðu Eitt af þessum félögum er starfs- mannafélagið Sókn. Okkur þótti rétt að skýra frá ástæðum fyrir afstöðu Sóknar og spjölluðum lítillega við Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur, formann. Báðum við Aðalheiði fyrst að gera okkur nokkra grein fyrir afstöðu Sóknar. A. Bj.: í febrúar sl., þegar febrúar- lögin voru sett, var sagt upp kaupliðum kjarasamninganna til að mótmæla inngripum ríkisvaldsins inní gerða samninga. Það er óþolandi að ekki sé hægt að treysta á gerða samninga og löggjafinn skuli alltaf blanda sér inní þá. Auðvitað töpuðu allir í launum á þessum ráðstöfunum og þótt maí-lögin settu lægstu launaflokkana nálega í gildi var um að ræða skerðingu á eftir- vinnu- og vaktaálögum. Alkunnugt er, að við settum okkur í samningunum '11 að ná 100 þús. kr. lágmarkslaunum - það tókst ekki. Við hefðum álitið að það yrði tekið upp þegar samningarnir rynnu út. Þá skeður það, að þegar eftir er að upp- fylla síðustu launahækkun samning- ana '11, þá eru launin skert. Það sem boðið er í staðinn kemur ekki á nokkurn hátt til framkvæmda þetta ár nema niðurgreiðslumar. Ég tel, að þar sem ekki tókst að ná launum sem talist geta lífvænleg, þá geti þeir launalægstu amk. ekki gefið neitt eftir af sínu. Laun Sóknarfélaga í dag eru frá 153 þús. uppí 163 þús. í fastakaup, og það er eicki kaup til að klippa eitthvað af. Ég tel að verkalýðshreyfingin hafi staðið alrangt að málum núna. Boða hefði átt til ráðstefnu fólks af öllu landinu. Síðan hefði átt að ræða málin útí félögunum í stað þess að fáir menn gefi út yflrlýsingar í nafni alls verka- fólks. Það er ekkert vafamál að ráðast verður til atlögu við verðbólguna, en það telur mér enginn trú um að fólk sem fær svipuð laun og Sóknarfélagar eigi sök á henni. N.: Hvernig.líst þér á. loforðapakka ríkisstjórnarinnar? A.Bj.: Ég vil fá að sjá framkvæmd- irnar fyrst. Ég er orðin langþreytt á lof- orðalistum, sem hafa í raun aldrei verið neitt annað en samningssvik. N.: Hefur Sókn sett fram einhverjar kröfur? A.Bj .: Það hefur ekki verið sett fram krafa af félaginu um grunnkaups- hækkanir. Hinsvegar um lagfæringará vaktaálögum og aukningu fræðslu- námskeiða sem munu gefa kjarabætur. Ég mun leggja fyrir félagsfund, hvort rétt sé að staðnæmast þar eða halda lengra áfram - félagarnir verða sjálfir að skera úr um það. N.: Töluvert hefur verið rætt um launamismuninn sem ríkir á milli opinberra starfsmanna og Sóknar- félaga er vinna sömu störf, hvernig standa þau mál núna? A.Bj .: Við höfum mun lakari laun. Grunnlaunin eru frá 10 uppí 30 þús. kr. lakari. Við vinnum eingöngu með BSRB-fólki - aldrei með ASÍ-fólki sem er með áþekk laun. Þetta skapar nokkuð erfitt ástand í félaginu. Gæslumenn, sem vinna t.d. á Kleppsspítala og Kópavogshæli ná- kvæmlega sömu vinnu og Sóknarkon- ur, hafa um 30 þús. kr. hærri laun. Þar er um að ræða ófaglært vinnuafl, en karlmenn. Höfðað hefur verið mál út af þessu, sem er einskonar prófmál; það verður dæmt í því í undirrétti í janúar, að ég held. N.: Hafið þið rætt til hvaða aðgerða þið munið grípa núna til að ná fram kröfum ykkar, t.d. hvort þið munið beita fjöldauppsögnum einsog ýmsir starfshópar á spítulunum hafa notað? A.Bj.: Það hefur aðeins borið á góma. Ég tel ekkert vafamál, að Sóknarfélagar geta ekki endalaust unað því að hafa svo mjög lægri laun en fólk í sambærilegum störfum. Hvort uppúr sýður nú eða seinna er ekki hægt að segja um á þessu áugnabliki, en uppúr mun sjóða. -/bþ

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.