Neisti - 26.08.1979, Síða 6

Neisti - 26.08.1979, Síða 6
8. tbl. 1979, bls. 6 Olíukreppan og offramleiðslu - kreppan Hér fyrr á árum orsökuðust hagsveiflurnar af sveiflum í fjárfestingum og heimsverslun. Nú virðist sem þær orsakist af sveiflum í hráefnaverðum sérstaklega olíu. Þetta er þó blekking eins og kemur fram í þessari grein. í greininni munum við sýna fram á að hráefnaverðið ákvarðast af þróun kapítalismans og sveiflur í hráefna verði eru alls ekkert nýtt fyrirbrigði. Einnig bendum við á að OPEC er alls ekki allsrátt varðandi verð á olíu, þar koma lengri tíma ákvarðanir olíuhringanna og efnahags- ástandið í þróuðu auðvaldsríkjunum einnig til. Nýr samdráttur er nú á næstu grösum. r . . 4 Hráefni Verð á olíu hefur yfírleitt þróast á svipaðan hátt og verð á öðrum hrá- efnum a.m.k. fram til 1973. Lengri tíma sveiflur í hráefnaverði hafa markast af þeirri ójöfnu og rykkjóttu þróun milli geira og landa, sem ein- kennir kapítalismann. Frá iðnbylt- ingunni og fram til 1873 fór verð á hrá- efnum hækkandi vegna vaxandi eftir- spurnar samfara lítilli sem engri aukn- ingu í framleiðni við vinnslu hráefna. Þessi verðhækkun miðað við iðn- varning gerði fjárfestingu í vinnslu hráefna gróðavænlega og þar kom að auðmagnið streymdi til nýlendanna og inn í þessar greinar. Framleiðslutækn- inni var umbylt og verð á hráefnum féll og hélst lágt fram að fyrri heimsstyrj- öldinni. Þar sem framleiðni vinnunnar þróast yfirleitt hraðar í þróuðu auðvaldsrikjunum en í nýlendu og hálf- nýlendum, m.a. vegna þess hve vinnu- aflið er ódýrara í hálfnýlendunum, þá hlaut að koma að því að hráefnaverð hækkaði. Þar með erum við komin í hring og sveiflan getur hafist á ný. Frá fyrri heimsstyrjöldinni og fram til 1929-32 fór verð á hráefnum hækk- andi miðað við iðnvarning, en fór síðan lækkandi vegna kreppunnar. Eftir seinni heimstyrjöldina og fram yfír Kóreukreppuna fór verðið hækk- andi. Er aukin fjárfesting og þær tækninýjungar sem henni fylgdi fór að segja til sín, fór verðið lækkandi á ný. Einnig átti sér stað tilfærsla á fram- leiðslu hráefna frá hálfnýlendunum til þróuðu auðvaldsríkjanna. Þannig sjáum við hvernig verð á hrá- efnum hefur sveiflast vegna framboðs og eftirspurnar, sem stjórnast ekki óháð þróun kapítalismans heldur af honum. Minni sveiflur í hráefnaverði hafa líklega flestar orsakast af breyt- ingum í eftirspurn. Lengri tíma sveiflur ákvarðast aftur á móti af framboðs- hliðinni. Þegar verðið er lágt miðað við iðnvarning, telja kapítalistarnir gróða- hlutfallið ekki nægilegt og halda aftur af fjárfestingum í þessum geira, og öfugt þegar verðið er hátt. Þannig hafa viðbrögðin alltaf tilhneigingu til að ýkjast í hvora áttina sem er. Verðið á hráefnum hefur síðan aftur áhrif á gróðahlutfallið í heimsvalda- löndum, en hið lága hráefnaverð eftir Kóreukreppuna var einmitt einn af grundvöllum eftirstríðsþenslunnar. Sú ójafna og rykkjótta þróun sem þetta skapar er því sérstök fyrir kapítalism- ann og væri hægt að komast hjá henni með áætlunarbúskap, þar sem fjár- festingar í vinnslu hráefna væru skipu- lagðar með þarfir fullvinnslunnar í huga og út frá langtímasjónarmiði. Olíukreppur og olíufélögin Olían hefur að mestu leyti fylgt því munstri sem við lýstum hér að framan, enda hefur hún fylgt almennu hrá- efnaverði á undanförnum árum. Verð á olíu var lágt fram til 1972 en snar- hækkaði síðan eins og annað hrá- efnaverð 1972-74. Þessi hækkun stafaði af samspili 3ja þátta. í fyrsta lagi jók sú almenna uppsveifla sem átti sér stað á þessum árum eftirspurn eftir hráefnum. f öðru lagi rakst þessi aukna eftirspurn á takmarkað framboð, ekki vegna algilds skorts, heldur vegna þess að lítið hafði verið fjárfest í aukinni framleiðslugetu á árunum á undan vegna hins lága verðs. Þetta átti sér- staklega við í olíuiðnaðinum, þar sem olíufélögin drógu mjög úr fjárfestingu í olíuborun og hreinsun vegna verðsins. Átti þetta að nokkru leyti við í Mið- Austurlqndum, en þó sérstaklega annars staðar, t.d. í Bandaríkjunum, þar sem olíulindum var hreinlega lokað. í þriðja lagi átti sér stað gífurleg spá- kaupmennska á þessu tímabili vegna verðbólgunnar og rýrnunar gjald- miðla, sem leiddi til flótta frá þeim yfir í „raunveruleg verðmæti", svo sem gull, listaverk og hráefni. Þessi spákaupmennska átti sér einnig stað í olíunni og voru það risaolíufélögin sem að henni stóðu. Auk ofangreindra ástæðna kemur þar til, að olíufélögin væntu þess að verðið hækkaði enn frekar og héldu því í birgðir sínar í von um enn meiri gróða. Á þennan hátt sköpuðu þeu hreinlega olíuskort. Hið skammvinna olíusölubann, gerði því ekki annað en að flýta þróun sem var að eiga sér stað. Opec Þáttur OPEC í þessu máli hefur v ■y * J - >' vafist fyrir mörgum. Kemur það t.d. glöggt fram í skýrslu Olíunefndar sem viðskiptaráðherra skipaði. Þar er því haldið fram að olíuhækkunin 1973 hafi einungis verið verk OPEC og að það hafi verið stofnað um líkt leyti. Hið rétta er að OPEC var stofnað 1960 til þess að verjast tilraunum olíuhring- anna til að lækka verðið til olíufram- leiðslulandanna. Því verði má ekki rugla saman við verðið á unnum olíuvörum á markaðnum, en það atriði virðist ganga erfiðlega að komast inn í kollinn á sumum, sbr. umræður í fjöl- miðlum um þessi mál. Verðið til olíuframleiðslulandanna var til að byrja með ekkert raunveru- legt verð, heldur grundvöllur skatt- lagningu olíuframleiðslulandanna á olíuvinnslu hringanna. Þetta hefur síð- an verið að breytast þar sem OPEC ríkin vinna nú í ríkari mæli olíulindir sínar sjálf og hafa verið að teygja klærnar yfir á svið olíuhreinsunar, sbr. Aramco. OPEC verðið er nú verð á hráolíu, en það olíuverð sem skiptir máli upp á framleiðslukostnað í iðnaði og vöruskiptajöfnuð landa sem hafa ekki eigin olíuhreinsunarstöðvar, er verðið á fullunnum olíuvörum. Þessi tvö verð þurfa ekki nauðsynlega að þróast á sama hátt, sbr. tímabilið fyrir 1960, þegar hráolíuverðið var lágt en verðið á unninni olíu hátt. Sama hefur komið fram nú, þegar verð á unnum olíuvörum hefur rokið upp úr öllu valdi á frjálsum markaði, án þess að OPEC-verðið hafi hækkað sem nokkru nemi. T.d. hefur komið fram hjá COWPS (Ráð um launa- og verð- stöðugleika) í Bandaríkjunum, að verð á bensíni hefur hækkað tvisvar sinnum hraðar en verð á hráolíu. Þegar slíkt gerist, kemur mismunurinn fram í gífurlegum gróða risa-olíuhringanna. Það var fyrst og fremst til að ná í hluta af þessum gróða, sem OPEC hækkaði verðið 1974 og aftur nú. OPEC var ekki driffjöðurin heldur elti það áður orðnar hækkanir. Ástæðan fyrir því að OPEC var þetta kleift 1973 voru breytt pólitísk og hernaðarleg kraftahlutföll í heiminum heilsvalda- stefnunni í óhag. Það hefur gert borgarastéttum vissra hálfnýlenda kleift að næla sér í stærri hluta þess gildisauka sem er framleiddur í löndum þeirra, án þess að óttast hermdaraðgerðir eða hernaðaríhlutun heimsvaldalandanna og án þess að rjúfa böndin við þau. Hvorki OPEC né risaolíuhringarnir eru almáttug og geta ekki komist undan áhrifum kreppu kapítalismans. Þetta sést best á því, að raunverð á olíu, sem og öðrum hráefnum, féll fljótlega eftir efnahagssamdráttinn 1974/75. Viðskiptakjör OPEC landanna hafa farið stöðugt versnandi síðan 1974 og náðu lágmarki á síðasta ári. Meðal annars af þessum sögum hefur lítið verið gert til að auka framleiðslu- getuna, hvorki af hálfu OPEC né olíu- hringanna, ef undan er skilin Norður- sjávar- og Mexikóolían, sem eru í rauninni smámunir á heimsmæli- kvarða. OPEC getur þó haft viss bremsu- áhrif sem sést á því að raunverð olíu féll ekki nærri eins mikið og verð á öðrum hráefnum. Raunverðið getur hins vegar ekki fallið niður í það sem það var fyrir 1972, án þess að ýmsar olíu- lindir sem nýttar eru í dag (Norður- sjórinn etc, og í rauninni aðrir orku- gjafar verði óhagkvæmar. Það eru því sterkir hagsmunir gegn því að olíu- verðið falli (t.d. breska auðvaldið) og olíuhringarnir munu gera allt til að koma í veg fyrir það. Hins vegar virðist OPEC ekki geta hækkað raunverðið,. nema að áður hafi átt sér stað hækkun á því verði sem olíufélögin fá og af- stæður eftirspurnar og framboðs sé olíuframleiðendum hagstætt. Eins og við höfum sýnt fram á hér að framan, þá ráðast þessir þættir annars vegar af ástandi efnahagslífs auðvaldslandanna og fjárfestingarvilja olíufélaganna. Þróun olíuverðsins er því enginn ytri breytingavaldur í kapítalismanum, heldur ræðst það alfarið af þróun hans. Núverandi hækkun fellur að öllu leyti inn í þessa mynd og á margt sameiginlegt með hækkuninni 1973. Jafnvel ýmisleg borgaraleg tímarit viðurkenna þetta: „Skaðinn er líklega þegar skeður varðandi verðið. Verðið var 30% hærra en í árslok 1978, jafnvel fyrir fund OPEC í júní. Þetta er varla vegna þrýstings frá OPEC, heldur er ástæðan eftirspurnarþensla. Lítið á gróða alþjóðlegu olíufélaganna á fyrsta ársfjórðungi. Það er ekki undir nokkrum kringumstæðum hægt að útskýra aukninguna með birgðagróða vegna hækkandi verðs á hráolíu. OPEC hefur aðeins siglt í kjölfarið." (Euromoney, júlí 1979). Ef við lítum á nýlegar tölur um gróða nokkurra af „systrunum sjö“, þ.e. stærstu olíu- félaganna, kemur eftirfarandi í ljós: Gróði á öðrum ársfjórðungi: aukning frá 1978 Texaco Gulf OIL Mobil Exxon 132% 65% 38% 21% (Heimild: Newsweek). Hækkunin nú stafar því að aukinni eftirspurn, bæði vegna þess að efnahagslíf auðvaldslandanna hefur verið á hátoppi sem nú má gera ráð fyrir að sé að breytast í öldudal, svo og vega spákaupmennsku og birgða- söfnunar. Enn sem fyrr eru olíufélögin að verki. Þau halda olíu frá markaðn- um í von um hærra verð. Mörg dæmi hafa verið nefnd um það að risaolíu- skip eru látin bíða fyrir utan losunar- hafnir drekkhlaðin meðan verðið þýtur upp. Við sjáum eirínig að önnur hráefni hafa hækkað í verði vegna hamsturs og spákaupmennsku, sem stafar af aukn- ingu verðbólgunnar og rýrnun gjald- miðla. T.d. mælist árshækkun allra hráefna nú í kringum 9,5% í enskum pundum. Á málmum er hækkunin 20,5%. Ef við ætlum hins vegar að fá Núverandi ástand

x

Neisti

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.