Neisti - 28.02.1981, Side 1
STUÐNINGSDEILD FJÓRÐA ALÞJÓÐASAMBAND8INS Útgáfudagur 28. febrúar 1981
Kvenfrelsisbarátta er
Lýðræðisflokkarnir, þing-
ræðið og herinn g|s 2
Það gefur á bátinn. . .
BIs. 3
Skjaldbökusókn í stað
leiftursóknar
BIs. 5
Vaxandi
fjöldabarátta
í Norður-Irlandi
Bls. 4
stéttabarátta
Jafnréttisbarátta kynjanna er jafnan ofarlega á
baugi í daglegri umræðu fólks. Á síðustu árum hefur
þessi barátta verið allhörð hérlendis og tíðir árekstrar
milli jafnréttissinna og íhaldssamra sjónarmiða karl-
veldissamfélagsins. Kvenréttindahreyfíngin í þeirri
mynd sem við þekkjum hana er orðin um einnar aldar
gömul. Baráttan hefur gengið í bylgjum eins og verða
vill þegar gegn rótgrónum ranghugmyndum er slegist.
Sú hryðja sem stendur í dag hófst með stofnun Rauð-
sokkahreyfíngarinnar árið 1970. Síðan hefur allmikið
gengið á, sigrar og ósigrar, með tveimur atburðum
sem uppúr standa og margir telja að hafí markað
þáttaskil í baráttunni, þ.e. kvennafrídagurinn mikli
og kosningasigur Vigdísar.
Þótt margur félagsskapurinn kenni sig við
kvenfrelsisbaráttu og jafnréttismál er það þó Rauð-
sokkahreyfingin sem jafnan stendur í fylkingar-
brjósti, enda fær hver sú kona sem eitthvað lætur að
sér kveða opinberlega eða heldur fram jafnréttishug-
myndum að heyra, að hún sé helvítis rauðsokka.
Þetta segir sína sögu um áhrif Rauðsokkahreyfíngar-
innar á hugi almennings. Þrátt fyrir mikinn áróður
gegn hreyfíngunni og baráttumálum hennar er nú svo
komið, að það er í tísku á íslandi í dag að vera
jafnréttissinni og þátttakandi í kvenfrelsisbarátt-
unni. Nú hópast ungir menn á framabraut inn í Kven-
réttindafélagið, mynda þar svonefnda feðrahópa og
taka virkan þátt í umræðum um gömul og
hefðbundin kvennamál svo sem barnauppeldi og dag-
vistunarmál.
Þarna er reyndar gömul saga að endurtaka sig.
Róttæk öfl ríða á vaðið með réttlætiskröfur ogbrjóta
á bak aftur gömul íhaldssjónarmið. Þegar hin borg-
aralegu öfí sjá skipbrot sinna gömlu skoðana snúa
þau við blaðinu og taka baráttumálin upp á sína arma
en reyna jafnframt að sverfa af þeim hinn róttæka og
umbyltingarsinnaða brodd og aðlaga þau hægfara
borgaralegum umbótum.
Þótt rauðsokkar geti litið á þessa þróun sem skref í
rétta átt og eðlilegan áfanga í jafnréttisbaráttunni,
þurfa þeir samt að gagnrýna hana harkalega og
skerpa hina umbyltingarsinnuðu línu baráttunnar
sem mest, því fullkomnu jafnrétti kynjanna verður
ekki komið á innan ramma auðvalds samfélagsins -
ekki frekar en almennu jafnrétti þegnanna.
Meðal efnis á
blaðinu:
Sóknarmálið - launamisrétti
og kvennabaráttan
Bls. 6 BIs. 7 Bls. 10
Stjórn Bandaríkjanna styður
morðsveitir hryðjuverka-
manna. B,„ 8
Peter Uhl settur í einangrun
í svartholi Husaks
BIs. 9