Neisti - 28.02.1981, Side 11
verkefnum kvensniftanna frá málum
Askrifendur ,\'LIS TA vinsamlegasl
greidið heimsenda gíróseðla.
Gírónúmerið er 17513-7.
kvenna að „alvöru-málum" - eins og
sjá mátti hérlendis á grátbroslegum
ferli Eikar í Rauðsokkahreyfingunni.
Auk þess er í síðari hluta bókarinnar
fjallað um þær konur sem heilshugar
vilja starfa með Fjórða alþjóðasam-
bandinu en eru kúgaðar af aðstæðum
sínum eins og aðrar konur í þjóðfélag-
inu. Þar segir svo:
„Kynferðisfordómar geta og birst og
birtast stundum hjá félögum Fjórða
alþjóðasambandsins. Það er þó skil-
yrði fyrir aðild að Fjórða alþjóða-
sambandinu að framferði félaga og
deilda sé í samræmi við þau grund-
vallaratriði, sem við byggjum á. Við
menntum félaga Fjórða alþjóðasam-
bandsins svo að þeir skilji til fullnustu
eðli kúgunarinnar á konum og hvernig
hún getur birst á margvíslegan og
skaðlegan hátt. Við leitumst við að
skapa samtök þar sem málfar, brand-
arar, einstaklingsbundið ofbeldi og
annað, sem er birtingarmyndir remb-
ingskenndrar fastheldni gagnvart kon-
um, verður ekki frekar þolað en t.d.
kynþáttafordómar.“(99)
Þetta finnst mér svo vel sagt að ungir
Fylkingar-karlar ættu að læra þetta
utanbókar og fara með þessa klausu
einsog bæn á kvöldin áður en þeir
ganga til náða. Fleira mætti aldeilis
týna til sem er framsækið og gott í bók
þessari en þetta er löngu orðið of
langt og best að hver lesi fyrir sig. Ég á
líka eitt ósagt sem mig langar ekki til að
segja en verð samt að nefna samvisku
minnar vegna.
Málfar
Þýðingin á þessari bók og málfarið á
henni er langt frá því að vera nógu gott.
Allt plaggið frá Fjórða alþjóðasam-
bandinu var á skelfilegri ensku: saman-
lamið, stirðbusalegt, klasturslegt og
afar erfitt aflestrar og það er íslenska
bókin því miður líka. (Ég undanskil
ekki blaðsíðurnar sem ég þýddi). Sums
staðar skín bæði ensk hugsun og
setningaskipan í gegnum íslenskuna en
á öðrum stöðum skín engin hugsun i
gegn af því að setningar, jafnvel heilar
málsgreinar, eru nánast óskiljanlegar.
Orðskrípi eins og „sprengikynjað-
ur“(54) og ,,óskilgetni“(58) eru notuð
æ ofan í æ, málleysur og málvillur er
víða að finna og stirðbusalegir, merk-
ingarlitlir frasar vaða uppi. Dærni:
„afléttun byrða" (43), „örmögnun"
(58), „forgangsskotmark" (71). „Upp-
koma kvenfrelsishreyfingarinnar hefur
sett alla strauma, er segjast berjast fyrir
hagsmunum verkalýðsstéttarinnar í
mikinn vanda.“ (38) „skrifraeðið" er
vinsælt í þessari bók og „afbökuð"
verkalýðsríki, jafnvel „afbökuðu og
úrkynjuðu“ verkalýðsríkin (65) eða
„afbökuðu og hnignuðu" verkalýðs-
ríkin (66) en svona samsetningar
segja lesanda afar lítið.
Ég hef heyrt hugtakið „fylkingar-
málfar" notað eins og skammaryrði í
sambandi við marxíska texta á ís-
lensku og það verður skiljanlegt
þegar maður situr með þessa bók í
höndunum. Við bókstaflega VERÐ-
UM að vanda betur til þeirra þýðinga
sem við látunr frá okkur, félagar. Ef
enginn getur lesið þær öðruvisi en með
helsærða málvitund þá er til lítils
barist. Þetta er líka þeirn mun sorg-
legra sem bókin er afskaplega fallega
frágengin og útlitið á henni til sóma.
Egilsstöðum 18.2.
Dagný.
Leikarinn í Hvíta húsinu
Líta verður á sigur Ronaid
Reagans í forsetakosningunum í
Bandaríkjunum sem sigur fyrir
bandaríska borgarastétt. í Hvíta
húsið er nú sestur maður sem
borgarastéttin getur treyst til að
verja hagsmuni sína í gegnum
þykkt og þunnt. Maður sem ekki
fer í grafgötur með hvað hann
ætlar sér að gera og hvernig hann
ætlar að gera það.
Eftir ósigurinn í Víetnam og Water-
gatehneykslið hefur borgarastéttinni
gengið illa að halda bandarískri alþýðu
í þeim helgreipum borgaralegrar hug-
myndafræði sem svo lengi hefur
einkennt pólitíkina í Villta vestrinu.
Barátta svertingja fyrir réttindum
sínum, barátta kvenna fyrir jafnrétti,
baráttan gegn kjarnorku svo og aukin
almenn stéttarmeðvitund bandarískrar
verkalýðsstéttar, hefur á liðnum ára-
tug grafið undan hugmyndafræðilegri
einokun borgarastéttarinnar.
Þessar breyttu forsendur innanlands
hafa veikt stöðu bandaríska auðvalds-
ins á alþjóðavettvangi. Það hefur ekki
getað beitt hefðbundnum aðferðum
kúgunar og vopnavalds til að gæta
hagsmuna sinna utan eigin landa-
rnæra. Þróunin í íran og þróunin í
Nicaragua eru skýrustu dæmin um
þetta.
Utanríkisstefna Jimmy Carters tók á
vissan hátt tillit til þessara brcyttu
aðstæðna. Ef litið er t.d. á afstöðu
Carterstjórnarinnar til frelsisbarátt-
unnar í Nicaragua þá einkenndist hún
af stöðugri leit að einhverju þriðja afli
sem gæti miðlað málum milli hinna
stríðandi fylkinga einræðisstjórnar-
innar og þjóðfrelsishreyfingarinnar.
Sér til mikillar undrunar komst Carter-
stjórnin að því að þetta þriðja afl var
ekki til, og að hagsmunir þeirra væru
þrátt fyrir allt best tryggðir með blóð-
ugri kúgun einræðisins. En þjóðfrelsis-
hreyfingin hafði þegar sigrað þegar
Carterstjórnin gerði sér þetta ljóst.
í Iran er svipaða sögu að segja, nema
hvað gísladeilan færði bandarískri
borgarastétt en frekari sannanir á því
hversu takmörkuð stefna Carters væri.
Það reið því á fyrir borgarastéttina
að breyta hinu pólitíska andrúmslofti
innanlands áður en allt færi í hundana.
Gísladeilan og innrás Sovétmanna í
Afganistan voru óspart notuð í þessum
tilgangi. Gíslarnir voru gerðir að
pislarvottum til að auka stemmingu
þjóðernislegrar samkenndar, til að
svæfa á þann hátt þá brodda stéttabar-
áttu sem komið höfðu fram. Á
svipaðan hátt átti innrásin í Afganistan
að færa bandarísku þjóðinni heim
sanninn á nauðsyn öflugs herafla til að
spyrna gegn útþenslustefnu Sovétríkj-
anna. Ekki verður annað sagt en að
borgarastéttin hafi haft erindi sem
erfiði, allavega í fyrstu lotu, Ronald
Reagan er orðin forseti.
Innanríkisstefnan
En hvað þýðir svo kosning Reagans
fyrir bandarískan verkalýð. Hann
sjálfur, ráðherrar hans og ráðgjafar
hafa verið óhræddir við að gefa yfirlýs-
ingar um hvers sé af þeim að vænta.
Áformin eru m.a.:
Niðurskurður á almannatryggingum.
Niðurskurður fjárlaga um 40 biiljónir
$.
Lækkun á lágmarkslaunum ungl-
inga.
Stóraukinn hraði við byggingu kjarn-
orkuvera.
Innleiðsla dauðadóms þar sem hann
hefur verið afnuminn.
- Afnám laga um hámarkshúsaleigu í
fjölda borga.
Afnánt laga sem tryggja störf fyrir
fátæka unglinga.
Aukning hernaðarútgjalda um 3
billjónir $.
En listinn er ekki nærri tæmdur.
Reaganstjórnin hefur uppi áform um
að ráðast gegn lögleiðingu fóstureyð-
inga, og almennt gegn baráttu svert-
ingja og kvenna fyrir jafnrétti. Ráð-
gjafar Reagans í dómsmálum lofa þvi
að varlega verði farið í að framfylgja
lögum um jafnrétti. í staðinn mun
dómsmálaráðuneytið leggja höfuðá-
herslu á baráttu gegn ,,götu-glæpum“.
Hversu „varlega" á að fara í þessu
sambandi má sjá á ummælum öldung-
ardeildarþingmannsins Storn Thur-
mond frá South Carolina, sem verður
formaður laganefndar forsetans. Hann
lýsti því yfir að hann myndi reyna að fá
lög um kosningarétt svertingja frá 1965
afnumin. Lög þessi gerðu svertingjum
frá Suðurríkjunum kleift að njóta
kosningarréttar í fyrsta sinn. Það
kemur því ekki á óvart að kynþátta-
hatarar og morðingjar í Buffalo,
Atlanta, New Orleans og Greensboro
fyllist sjálfstausti. Þeir þykjast þess
fullvissir að morð á svertingjabörnum
og mótmælendum kynþáttamisréttis
verða ekki sú tegund „götu glæpa" sem
lögregla Reagans mun berjast gegn.
Efnahagsstefnan er mjög í anda
frjálshyggju hugmynda Friedntans og
Tatchers, enda mun járnfrúin ætla að
heimsækja kollega sinn til skrafs og
ráðagerða innan tíðar.
Utanríkisstefnan
Val Alexander Haigs í embætti
utanríkisráðherra segir sína sögu um
hver áform Reagans eru í utanríkis-
málum. Haig þessi er fyrrverandi yfir-
maður í Nato og hefur alla tíð haft stór
orð um nauðsyn vopnavæðingar og
hernaðarbrölts. Áform urn gerð nift-
eindasprengja og stóraukin útþensla
bandariska hersins í Evrópu og annars-
staðar í hciminum eru honum mjögað
skapi.
Eins og áður sagði hefur bandarísk
borgarastétt ekki í hyggju að sitja
• auðurn höndum leitandiað „lýðræðis-
öflum“ sem ekki eru til. Lögð verður
höluðáhersla á að koma í veg fyrir að
sagan í Nicaragua endurtaki sig.
E1 Salvador er í dag það land sem
bandarísk borgarastétt lítur til mcð
hvað mestum ótta. í stað þess að
.apitan namaao vaiaivia y d uuaruias
'iviles pertenecientes a la- 23 Coman-
ancia de Juliaca. Ya el.27 de no-
iembre del pasado aflo, el domicilio
el camarada Tacuri, había sido alla-
ado.
Emeterio Tacuri se ha caracterizado
iempre por la defensa intransigente de
ds derechos de los trabajadores. Tuvo
endurtaka „mistök" Carters á nú að
taka málið föstum tökum og veita
einræðisstjórninni í E1 Salvador þá
hernaðaraðstoð sem hún fer fram á. Á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna hefur
þessi breyting komið skýrt fram.
Skipun Jeane Kirk Ratrick í embætti
sendiherra Bandaríkjanna þar, talar
sínu máli. Frúin sú er ekkert að grínast
þegar hún segirað hagsmunum Banda-
ríkjanna í þriðja heiminum sé best
borgið með því að styðja „hliðhollar"
einræðisstjórnir. Bæði láti slíkar
stjórnir eignir Bandaríkjamanna í friði
og svo líði alþýðu þessara landa best
undir kúgun, hún þekki hvort eð er
ekkert annað.
Ráðgjafar Reagans í hernaðarmál-
um hafa opinberlega lýst því yfir að
„ekkert svæði á jörðinni sé utan
bandarískra hagsntuna". Að þeirra
sögn krefjast varnir bandarískra hags-
muna stóraukinna hernaðarútgjalda,
svo hægt verði að fást við hverskonar
andstöðu hvar sem er i heiminum. Hér
er á ferðinni ekkert annað en uppskrift
að nýjum átökunt á borð við þau sem
áttu sér stað í Víetnam. í kjölfarið
koma síðan áform um að innleiða her-
skyldu á nýjan leik, til að tryggja
hernum hráefni ef svo mætti segja.
Hverjir stoppa Reagan?
En bandarísk alþýða mun ekki láta
teyma sig á asnaeyrunum inn i nýtt
Víetnamstríð. hvorki í El Salvadoreða
annarstaðar. Ekki munu áform Reag-
ans um niðurskurð almannatrygginga
og afnám þeirra réttinda sem unnist
hafa á undanförnum árum, ganga
þegjandi og hljóðalaust fyrir sig.
Reynslan sem bandarísk alþýða öðlað-
ist í baráttunni gegn Víetnamstríðinu
er ekki gleyntd. Verkalýðsstéttin ntun
þurfa að verja þá sigra sem unnist hafa
og búa sig undir aukin stéttaátök i
framtíðinni.
Aðeins nteð aukinni baráttu verka-
lýðshreyfingarinnar, baráttu svertingja
og kvenna fyrir rétti sínum verður hægt
að spyrna gegn afturhaldsstefnu Reag-
ans.
B.R.
rciu.
Neisti 2. tbl. 19. árg. bls. 11