Stéttabaráttan - 20.12.1973, Qupperneq 3
STÉTTABARATTAN 8. tbl.
20. desember, 1973.
tItgefandi:Kommúnistasamtökin m-1
Pósthólf 1357 Rvk.
Ritstj.ogábm. :Hjálmtýr Heiðdal.
1 íslenska auðvaldsþjóðfélaginu eru
þrjár stéttir; borgarastétt, öreiga-
stétt og smáborgarastétt, sem stend-
ur á milli hinna tveggja höfuðstétta.
I herstöðvamálinu hafa komið fram
þrjár stéttarafstöður - í fyrsta lagi
afstaða borgarastéttarinnar, í öðru
lagi afstaða smáborgarastéttarinnar
og í þriðja lagi byltingarsinnuð af-
staða öreigastéttarinnar.
Að undanförnu hefur herstöðvamálið svokallaða verið nokkuð til umræðu.
Ekki er langt síðan "Samtök herstöðvaandstæðinga" voru sett á laggirnar.
Lítið hefur fariff fyrir þeim samtökum eftir að þau voru stofnuð með til-
heyrandi heitstrengingum. Það nýjasta sem gerst hefur í málinu eru hátíð-
arhöld stúdenta 1. des. s.l. í tilefni fullveldisafmælis íslensku borgara-
stéttarinnar.
Afstaða KSML til herstöðvamálsins hefur verið sú frá upphafi, að baráttan
gegn NATO aðild og herstöðvum verði að standa á grundvelli öreigastéttar-
innar. En afstaða okkar hefur ekki verið fullmótuð fram að þessu - í mál-
flutningi okkar hefur komið fram smáborgaraleg afstaða (sjá ramma hér
við hliðina), sem átti rót sína að rekja til ónógrar rannsóknar. Þessi
hægri-frávik náðu þó aldrei það langt, að þau hefðu áhrif á stefnu samtak-
anna í málinu.
BARATTAIM GEGN NATO
VERÐUR AÐ STANDA
ÁGRUNDVELU
VERKALÝÐSSTÉTTARINNAR
AFSTAEIA BORGARASTÉTTARINNAR.
NATO var stofnað í þeim tilgangi að
berjast gegn sósfalismanum. Kemur
þetta m. a. skýrt fram í ályktun At-
lantshafsráðsins frá 6. maí, 1956:
"Ifyrir sjö árum gerðu Atlants-
hafsríkin með sér Norður-Atlants-
hafssáttmálann sökum þeirrar
hættu, er sameiginlegum hugsjón-
um þeirra og menningu stóð af
kommúnismanum."
Hugsjónum og menningu borgarastétt-
arinnar stafa vissulega hætta frá
kommúnismanum, sem stefnir að því
að binda endi á arðrán sömu stéttar.
NATO er því skjaldborg til verndar
kúgunar- og arðránsstéttum heims-
valdalandanna - og á þessum grund-
velli gerðist íslenska borgarastéttin
aðili að bandalaginu.
Islensku borgararnir náðu staðfest-
ingu á fullveldi sínu með sambands-
lögunum frá 1. des. 1918 - eftir
langa baráttu gegn danska nýlendu-
veldinu. Þar með hlaut hún sjálfs-
ákvörðunarrétt og tók forystuna í arð-
ráninu á íslenskum öreigum. Hún
byggði upp eigið ríkisvald til að halda
stéttardrottnun sinni og kom sér upp
eigin lögreglu til að framfylgja kúg-
unartökum sínum.
Þátttaka íslensku borgarastéttarinn-
ar í NATO er gerð af frjálsum vilja
og í fullu samræmi við stéttareðli
hennar. Hversu vel fer á með stétt-
arbræðrunum í bandalaginu má
marka af ummælum Bjarna Bene-
diktssonar:
"Allt tal um framsal íslensks
sjálfsákvörðunar-réttar til er-
lendra herforingja er út í bláinn.
tlrslitaákvörðunin í Atlantshafs-
ráðinu er í höndum utanríkisráð-
herranna, en ekki undirmanna
þeirra, hvorki herforingja né
annarra, svo að umsögnin verð-
ur á ábyrgð stjórnmálamannanna,
en ekki sérfræðinganna."
(Varnarmálin, bæklingur frá
1956, bls. 32).
Fullveldi íslensku borgarastéttarinn-
ar var í engu skert við inngönguna í
NATO, þeir hafa tekið þátt í störf-
um bandalagsins sem jafningjar ann-
arra arðránsstétta til varnar "sam-
eiginlegum hugsjónum og menningu".
I stað þess að leggja fram herafla,
sem hefði verið þeim efnahagslega
ofviða, lögðu íslensku arðræningj-
arnir fram land undir njósnastöðvar.
1 þeim tilgangi að blekkja almenning
í landinu til fylgis við aðildina var
þyrlað upp miklu moldviðri um nauð-
synina á vörnum landsins í viðsjár-
verðum heimi, en öllum, sem hugsa
málið óbrjáluðum huga, er vel ljóst,
að varnarmáttur herstöðvarinnar í
Keflavík er á algjöru núllmarki.
Hin fræga "rússagrýla", sem var
notuð til þess að sýna fram á land-
varnarþörfina, er stórkóstleg blekk-
ing, þar sem Sovétríkin, sem höfðu
beðið mikið manntjón í styrjöldinni,
og stríðshrjáð alþýða Austur-Evrópu
höfffu ekki hinn minnsta áhuga á né
ástæðu til að ráðast gegn nágrönn-
um sínum í vestri.
S JAL FS TÆÐIS FLOKK URINN.
tvístígandi í afstöðunni til veru hers-
ins hérlendis. Flokkurinn stóð að
öllum þeim samningum, sem hafa
verið gerðir um veru erlends hers
og aðildina að NATO. Einn helsti
forustumaður flokksins, Jónas Jóns-
son, var mikill talsmaður "her-
verndar" Bandaríkjanna. Hann gaf út
blaðið "Landvörn" (1946), þar sem
hann sagði m. a. :
"Kjósendur landsins geta enn
bjargað framtíð þjóðarinnar með
því að knýja frambjóðendur borg-
araflokkanna til að heita því að...
hefja við Bandaríkin skipulegar
viðræður um landvarnarmál ís-
lands."
(1. árg. , 5. tbl.)
Eysteinn Jónsson sagði þann 14. des.
1953:
"Sameiginlegar varnarráðstafanir
allra lýðræðisríkjanna draga úr
ófriðarhættu."
I þeim tilgangi að réttlæta afstöðu
sína í herstöðvamálinu gerðist Tím-
inn ákafur boðandi "landvarnarkenn-
ingarinnar" :
"Ovarið Island gæti beinlínis orðið
til þess, að styrjöld væri hafin."
(21. apríl, 1953).
En forusta flokksins hefur ekki alltaf
litið þannig á málið - bæði I kosning-
unum 1956 og nú '71 hefur flokkurinn
biðlað til kjósenda undir því yfirskyni
að hann myndi sjá til þess, að herinn
fari af landinu. En um efndirnar
þarf ekki að fjölyrða.
Orsakir þessa tvískinnungs er sá,að
Framsóknarflokkurinn er flokkur
einokunarauðvalds (SlS), sem byggir
atkvæðafylgi sitt á smáborgurum til
sjávar og sveita. Þannig hefur flokks-
forustan talið hentugt að setja fram
"herinn burt" kröfuna í kosningunum
1956 - en í þessum kosningum bauð
Þjóðvarnarflokkurinn fram. Sá flokk-
ur hafði það eitt mála á sinni stefnu-
skrá að vernda íslenska menningu og
forusta Framsóknar hefur talið hættu
á atkvæðatapi til flokksins (reyndar
tapaði Framsókn 2,4% til Þjóðvarn-
arflokksins).
ALÞÝÐUFLOKKURINN.
Sjálfstæðisflokkurinn er fulltrúi
borgarastéttarinnar og færir fram
afstöðu hennar I þessu máli, þar af
leiðandi hefur flokkurinn ekkert að
fela og kemur fram sem opinber
málsvari þeirrar stefnu, að fslandi
beri að vera í NATO og leggja fram
sitt í baráttunni við alheimskomm-
únismann með því að hafa hér eftir-
litsstöðina í Keflavík.
FRAMSOK NAR FLOKKURINN.
Framsóknarflokkurinn hefur verið
Flokkurinn hefur alla tíð verið gjall-
arhorn auðvaldsins. Þau ítök, sem
flokkurinn hafði meðal verkalýðsins
notaði hann dyggilega til að efla áhrif
borgarastéttarinnar innan raða verka-
lýðsins. Forystumenn flokksins,
s.s. Stefán Jóh. Stefánsson hafa ver-
ið eitilharðir talsmenn "vestrænnar
samvinnu" - þeir hafa gengið fram
fyrir skjöldu I baráttunni gegn sósíal-
ismanum og afstaða þeirra í her-
stöðvamálinu byggir á blindu komm-
únistahatri. Flokkurinn er í alheims-
samtökum sósíalfasista og "sósíal-
svikara", Socialist International,
sem eru rotnandi leifar II. Alþjóða-
sambandsins.
AFSTAÐA SMABORGARANNA.
Smáborgaralegu sósíalistarnir, með
Einar Olgeirsson í broddi fylkingar,
hafa blásið í herlúðra gegn "banda-
rfska valdinu á lslandi". I þeim
hrærigraut sem settur hefur verið á
borð sem "rök" fyrir málflutningi
þeirra kennir margra grasa, Þeir
segja beinum orðum að lsland sé
hernumið:
"Fyrsta leppstjórn Ameríkana var
mynduð á felandi 4. febr. 1947. "
"Ameríska auðvaldið hefur kúgað
þjóðina og arðrænt hana síðan það
náði tökum á efnahag hennar og
stjórnmálum. "
"Byssustingir Bandaríkjahers voru
komnir til aff taka við af blekkingum
Alþýðuflokksins, Ihalds og Fram-
sóknar. "
(Ur bæklingi Sósíalistaflokksins,
"Hverjum getur þú treyst í sjálf-
stæðismálinu", 1953).
Hér er ekki neinum blöðum um það
að flétta, landið er nýlenda Banda-
ríkjanna með leppstjórn sem stýrir
nýlendunni fyrir herrana, en það
sem er sérstakt með "hernám" smá-
borgaralegu sósíalistanna er það, að
því má aflétta með kosningum:
"Ef þeir kjósendur, sem hingað til
hafa kosið Ihaldið, Framsókn og
Alþýðuflokkinn. . . rísa upp og mót-
mæla yfirgangi amerísks auðvalds
á Islandi með því að kjósa Sósíal-
istaflokkinn, þá er valdi þessara
leppa lokið. "
(Sama rit).
Þetta er einsdæmi í mannkynssög-
unni: "kúguð þjóð" gengur til kosn-
lýðsins.
Enn ein kenningasmfð smáborgara-
legu sósíalistanna gengur út á það að
íslenska borgarastéttin sé háð banda-
rfsku hervaldi til þess að geta við-
haldið völdum sínum hér. Þessi
kenning er tiltölulega ný af nálinni og
á sér aðallega talsmenn meðal stú-
denta sem þykjast hafa djúpan skiln-
ing á öllum þráðum "hernámsins".
Gestur Guðmundsson segir f 1. des.
blaði stúdenta 1972:
"1 aila staði verður dvöl bandaríska
hernámsliðsins hér á landi til þess
að efla áhrif Bandaríkjanna í land-
inu og baktryggir um leið völd fs-
lensku auðstéttarinnar og erlent
fjármagn hérlendis." (undirstr.
okkar)
Þessi talsmaður hins "óháða" auð-
valds lokar augunum fyrir þeirri
staðreynd, að íslenska auðvaldið hef-
ur í áratugi ráðið landinu eitt, án er-
lends hers, án aðildar að hernaðar-
bandalögum, og var þó stéttabaráttan
töluvert hatrammari en nú er. Stað-
reyndin er sú, að borgarastéttin er
sjálfri sér næg, hvað varðar kúgunar-
tæki, hún hefur lögreglulið og land-
helgisgæsluna, einnig varalið, sem
kveða má út með stuttum fyrirvara,
eins og sýndi sig 1949, þegar rætt
var um NATO-aðildina á Alþingi.
Einnig kom þetta í ljós við heimsókn
Nixons og Pompidús; þá voru kvadd-
ar út sveitir, sem töldu nokkur hund-
ruð manns og hlutu þjálfun f kylfu-
sveiflum.
"ÞJOÐFRELSISHETJURNAR"
Þjóðrembingsáróður smáborgaralegu
sósíalistanna er beinn stuðningur við
borgarastéttina, þar sem hann leit-
ast við að villa verkalýðnum sýn.
Þessir íslenskustu Islendingar beita
öllum klækjum til að geta tryggt sér
"Alþýðan slær í gegn". Þessi mynd
er táknræn fyrir alla stefnu "her-
náms"- og "herstöðvaandstæðinga"
- hnefi í fánalitum íslensku borgara-
stéttarinnar, landið í fánalit banda-
rísku borgarastéttarinnar. Þjóð-
rembingur smáborgaranna er sérlega
skýrt túlkaður í þessari mynd.
(Mynd úr 1. des. blaðinu 1973).
"Hreinsum landið", krafa stúdenta
1. des. *72. Smáborgaraleg viðhorf
þeirra krefjast þess, að íslenska
auðvaldsþjóðfélagið sé hreinsað af
"óhugnaði" erlends auðvalds og er-
lends hervalds.
(Mynd úr 1. des. blaðinu 1972).
inga og losar sig þar með við kúgar-
ana, sem meira að segja hafa stað-
sett herlið f landinu. Þetta eru dæmi
um þær svívirðilegu blekkingar, sem
"sósíalistarnir" beittu fyrir sig.
Þessir svikarar við málstað verka-
lýðsins gerðu allt til þess að teyma
öreigastéttina frá stéttabaráttunni
inn á þingræðisbrautir borgaranna.
Önnur kenning gengur út á, að "her-
námsflokkarnir" (þ. e. fulltrúar bor
borgarastéttarinnar á þingi) hafi
sjálfviljugir gengist yfirráðum
Bandaríkjanna á hönd. Islensku
borgararnir hafi samið með kurt og
pf af sér eigið sjálfsforræði w svo
einfalt er það. Hinar fáránlegu
ásakanir Sósíalistaflokksins á hendur
borgarastéttinni um landráð byggjast
á þeirri ósk smáborgaranna, að
borgarastéttin bindi ekki trúss sitt
við hernaðarveldi. Krafa smáborgar-
anna um að íslenska borgarastéttin sé
hlutlaus í baráttunni gegn sósíalism-
anum sýnir hversu fjarri Sósíalista-
flokkurinn stóð hagsmunum verka-
fáein þingsæti, blása til "þjóðfrels-
isbaráttu" gegn "erlendum kúgurum"
þegar hinn raunverulegi óvinur er
innlend borgarastétt. 1 þessu felast
hin svívirðulegu svik þjóðrembings-
sósíalistanna - þeir eru sósíalistar í
orði, en þjóðernissinnar á borfii.
Undir þessa pólitík heyrir allt brölt
"fullveldisstúdentanna", afstaða
þeirra er afstaða "þjóðfrelsisbaráttu-
mannanna" sem blekkja verkalýðinn
til fylgis við innlent auðvald undir
yfirskyni baráttu gegn "erlendu auð-
valdi" og "leppum þess". Mikill er
"marxismi" þeirra kappa - mikil er
hetjulund þeirra að snúa bakhlutanum
í baráttuna og beina geirum sínum í
afleiðingarnar en ekki orsökina.t
Hvaða augum líta svo þessir Don Qui
jotar nútímans heimsvaldastefnuna ?
Jú, auðvitað sem erlenda auðhringa
og erlent hervald. Alltaf er þáttur
innlendu borgarastéttarinnar gerður
fátæklegur - hún hefur verið flekuð
til fylgis við myrkraöflin. I mál-
flutmngi_^þjóðfrelsishetjanna" er inn-
LOPPA DOLLARAVALDSINS LÆSIR SIG UM ISLAND
LEYSIÐ ISLAND ÚR HELGRBPUM PESSA VALDS 28. JÚNll
"Leppar" ameríska valdsins sjást
hér með augum "sósíalistanna", sem
svo hatrammir vilja vernda allt,
sem "íslenskt" er - þeir vilja jafnvel
vernda íslensku borgarastéttina frá
sínum eigin "barnaskap". Kenningin:
íslenska borgarastéttin er viljalaust
verkfæri bandarísku auðhringanna,
kemur hér skýrt fram.
(Mynd úr bæklingnum "Dollara-
valdið", útg. Sósíalistaflokkurinn.)
"Sjálfstæðisbaráttu smáþjóðar lýkur
aldrei." - Þetta var eitt af kjörorð-
umstúdental. des. s.l. Nú er Jón
Sigurðsson kominn í spilið, hann,
sem var leiðandi í baráttu hinnar
ungu borgarastéttar gegn danska ný-
lenduvaldinu verður að hefja aðra
umferð. Hinir nýfrjálsu íslensku
borgarar eru ekki fyrr lausir undan
Dönum en þeir ganga sjálfviljugir
undir vald "risans í vestri". "Hvað
er þá orðið okkar starf í sex hundr-
uð sumur ?"
( Mynd úr Rétti nr. 2, 1973).
lent auðvald varla til, og ef það tórir
einhverstaðar, þá er það sem um-
boðsaðili fyrir erlent hringaauðvald.
"SMANARBLETTURINN11
"Herseta á íslenskri grund er smán-
arblettur, í senn á okkar ástkæra
landi og þeim mönnum sem innleiddu
hersetuna, vegna aðgerða þeirra í
þjónkunarskyni við erlent stórveldi.
Við viljum þurrka smánarblettinn
af landinu og krefjast þess að her-
inn verði látinn hverfa á brott. . . "
(Ur "Keflavíkurgangan", riti á veg-
um samtaka hernámsandstæðinga).
Þetta er barátta smáborgaranna í
hnotskurn "fvoum smánarblettinn,
herinn burt! Island fyrir Islendinga
alla. " (Ur ræðu Magnúsar Kjartans-
sonar í Keflavíkurgöngunni 1960)!
Viðleitni smáborgarastéttarinnar til
þess að "betrumbæta" auðvaldsþjóð-
félagið og draumar þeirra um einok-
unarlaust auðvald koma fram í þess-
ari "landhreinsunar og þjóðfrelsis-
stefnu" þeirra. Öll þeirra "barátta"
gegn hernum og NATO hefur farið
fram undir merkjum þjóðrembings.
BYLTINGARSINNUÐ AFSTAÐA ÖR-
EIGAS TÉ TTARINNAR
Gegn öllum kenningum smáborgaranna
um "hernám" landsins og ósjálfstæði
íslensku borgarastéttarinnar - gegn
öllum áróðri borgarastéttarinnar um
"vörn fósturjarðarinnar" stendur
byltingarsinnuð afstaða öreigastéttar-
innar. Kommúnistasamtökin m-1 eru
einu byltingarsamtökin á Islandi og
þannig þau einu sem færa fram af-
stöðu öreigastéttarinnar í þessu máli.
Við afneitum öllum kenningum smá-
borgaranna um hernám, en bendum
á að það er vilji fslensku borgara-
stéttarinnar að berjast gegn sósíal-
ismanum - þess vegna taka þeir þátt
í NATO sem er stofnað í þeim til-
gangi. Vera bandaríska hersins er
framlag þeirra til þeirrar baráttu.
Islenska borgarastéttin ræður öllum
undirstöðugreinum framleiðslukerf-
isins hér á landi, hún hefur full
stjórnarfarsleg réttindi og hefur ekki
afsalað sér neinum þeirra í hendur
"hernámsliðsins".
Við afneitum öllum kenningum sem
lúta að þvf að íslenska borgarastétt-
in sé háð bandaríska hernum til þess
að geta haldið völdum. . -Islenska
borgarastéttin hefur ríkt í marga
áratugi án þess að vera í hernaðar-
bandalögum, án þess að hér væri er-
Ke flavíkurganga undir íslenska fánanum. Tákn borgarastétt-
arinnar, sem hún tók upp, þegar henni tókst að sigra danska
nýlenduveldið. "Hernámsandstæðingarnir" eru íslenskastir
allra Islendinga. Baráttan beinist að því að "betrumbæta"
fslenska auðvaldsþjóðfélagið.
(Mynd úr Dagfara ^áfyigni "Herstöðvaandstæðinga").
•marfskH Henrildl
"Vilji" íslensku borgarastéttarinnar f túlkun smáborgara-
legu sósfalistanna. Borgararnir kjósa að afsala sér
sjálfsákvörðunarrétti sfnum í hendur bandarfska auð-
valdsins. Islensku borgararnir viljalausir fáráfflingar,
sem vita ekkert betra en erlenda kúgun á þjóðinni -
sannkallaðir svikarar við málstaö þjóðarinnar.
Mynd úr bæklingnum "Hverjum getur þú treyst í
sjálfstæðismálinu?", útg. Sósíalistaflokkurinn,'53).
lendur her til þess að "baktryggja"
völd hennar. I rauninni er það þann-
ig, að kúgunartæki íslensku borgar-
anna er nægilega sterkt við þær að-
stæður sem ríkja og hafa ríkt til
þessa. Völdum borgarastéttarinnar
hefrfr aldrei verið ógnað að neinu
marki þar sem verkalýðurinn hefur
ekki verið færi um að fylgja eftir því
ástandi sem skapast hefur. Sem
dæmi má nefna árið 1932; þá barðist
verkalýðurinn í návígi við lögregluna
- en sú barátta var engin úrslitabar-
átta þar sem verkalýðurinn treysti á
svikara eins og Héðinn Valdimarsson
en hélt ekki á braut byltingarinnar.
Stéttin var ekki skipulögð til baráttu
undir kommúnískri forystu. Það er
rangfæfsla að halda því fram að ís-
lensk borgarastétt sé veikburða -
líkt og smáborgararnir halda fram í
Neista; samkvæmt þeirra "útskýring-
um" nægir að "einangra" íslensku
borgarastéttina frá erlendum stéttar-
bræðrum. (Sját.d. Neista7. tbl.
Ý2). Með þessari kenningu segja
þeir, að smáborgaralega baráttan
fyrir útsögn úr NATO - barátta sem
ekki er tengd baráttunni gegn sjálfum
völdum borgarastéttarinnar, sé fram-
sýn barátta.
Við, kommúnistar, erum þeirrar
skoðunar að öll sú barátta, sem ekki
beinist að markmiði öreigastéttarinn-
ar - sósíalísku byltingunni - þjóni
hlutlægt borgarastéttinni. Sú barátta
vinnur ekki að því að safna verkalýðn-
um til áhlaups gegn völdum borgara-
stéttarinnar, sú barátta afvegaleiðir
og þreytir verkalýðinn!
Við höldum þvf fram að eina leiðin
til þess að berjast gegn veru Islands
f NATO sé sú, að ráðast gegn völdum
fslensku borgarastéttarinnar. Bar-
attan gegn NATO verður að byggja á
alþjóðahyggju öreiganna. Með því að
búast til atlögu gegn íslensku auð-
valdi, sem er einn hlekkurinn í keðju
heimsvaldastefnunnar, gegnir íslensk-
ur verkalýður alþjóðlegri skyldu sinni
við verkalýð annarra landa.
An byltingarsinnaðrar leiðsagnar
verður ekki um byltingarhreyfingu að
ræða. ÞESS VEGNA ER ÞAÐ EINA
RÉTTA LEIÐIN TIL ÞESS AÐ BERJ-
AST, AÐ BYGGJA UPP FRAMVÖRÐ
VERKALÝESSTÉTTARINNAR -
kommUnistaflokk!
Við skorum á alla sem í rauninni
vilja berjast gegn innlendu og erlendu
auðvaldi að ganga f námshring hjá
KSML og taka þátt í uppbyggingu
kommúnistaflokks. Byltingarsinnað
námsstarf er alþjóðahyggja öreiganna
f verki!
Röng afstaða
KSMLtil NATO
Afstaffa KSML til NATO og herstöð-
vamálsins hefur verið röng í tveim-
ur meginatriðum. 1 upphafi tilveru
samtakanna var tekin afstaða á smá-
borgaralegum þjóðernisgrunni - al-
þjóðahyggja öreiganna mótaði ekki
afstöðu okkar. Þessi villa - þar
sem "þjóðfrelsi" og sjálfsákvörðunar-
réttur voru f fyrirrúmi - er leifar
af þeim hentistefnuarfi, sem KSML
fékk frá smáborgaralegum "vinstri"
hreyfingum hér á landi. Villan kom
fram m. a. í þeirri fullyrðingu, að
fslensk alþýða hafi orðið að sjá á bak
sjálfsákvörðunarrétti sínum 1949.
I Rauða Fánanum nr. 1, 1972, segir :
"Þannig varð líka um Island. Höf-
uðmóthverfan varð nú milli heims-
valdastefnunnar, sem bjóst til
stríðs gegn sósíalismanum, og al-
þýðu landsins semvarð að sjá af
sjálfsákvörðuninni vegna hagsmuna
heimsvaldalandanna."
Hin villan hefur komið fram sem
vanmat á kúgunarmætti íslensku
borgarastéttarinnar. Það hefur
villt um fyrir mörgum, að á Islandi
er ekki fastaher (þ.e. her, sem er
stöðugt undir vopnum).
Þess vegna hafa skotið upp kollinum
hugmyndir um "vanmátt" hérlendrar
borgarastéttar til að verja hendur
sínar og tryggja völd sín. 1 Stétta-
baráttunni 3. tbl. "73 var þetta túlk-
að þannig:
"I ákefð sinni að koma íslandi f
NATO og baktryggja þannig auð-
valdið gegn harðnandi stéttabar-
áttu."
I 75. grein stjórnarskrárinnar seg-
ir:
"Sérhver vopnfær maður er skyld-
ur að taka sjálfur þátt í vörn
landsins, eftir þvf sem nákvæmar
kann að verða fyrir mælt í lögum."
Hér er það skýrt, að í rauninni get-
ur borgarastéttin, með einu penna-
striki, komið á fót her. Þannig er
íslenskur her, sem hefur sama
hlutverk og aðrir borgaralegir her-
ir, að verja völd borgarastéttarinn-
ar, í rauninni fyrir hendi. Það sem
skilur hann frá örðum herjum er,
að hann er ekki standandi her -
að hann er ekki fastaher - ekki undir
vopnum eða í herþjálfun í dag.
SMABORGARALEG MYNDUST
Einn liður í herferð smáborgaralegu
sósfalistanna kringum 1. des. var að
troða upp með pólitíska myndlistarsýn-
ingu hjá SUM. Og sú sýning var Vissu-
lega pólitísk, en pólitíkin, sem þar var
færð fram á ekkert skylt við byltingar-
sinnaðan málstað verkalýðsins og bar-
áttu hans. Þar veður þjóðrembingur-
inn uppi og kallað er á verkalýðinn til
stéttasamvim.; við auðvaldið vegna
þess að þjóðin öll eigi í baráttu við
sameiginlegan óvin - NATO/USA.
"Hinir virðulegu háskólaborgarar, er
standa að sýningunni" (Mbl. 15.12.),
urðu heldur en ekki ruglaðir og tauga-
veiklaðir, þegar einn listamaðurinn,
sem átti myndir á sýningunni, Guð-
mundur Armann Sigurjónsson, félagi í
KSML, krafðist þess að myndir sínar
yrðu teknar niður, eftir að ljóst var
hvers eðlis sýningin var og gagnbylt-
ingarsinnað markmið hennar. Brugð-
ust þeir hart við og reyndu ýmist með
fortölum og lygum að fá Guðmund ofan
af þessari ætlun sinni, en árangurs-
aust.
Astæðan fyrir því, að þessu smáborg-
arahyski, sem treður upp með þjóð-
rembingsmyndlist sfna í SUM, er svo í
mun að klófesta og hengja upp myndir
kommúnísks listamanns, er einfaldlega
sú, að þeir verða undir fölsku yfir-
skyni að pretta þjóðernispólitík sinni
inn á verkalýðinn. Þetta er sú aðferð,
sem smáborgarar allra tegunda nota
til að reyna að dylja rotna pólitík sína.
Þeir reyna á kostnað byltingaraflanna
og í nafni þeirra að breiða út þá kenn-
ingu, að :
"Sú vísa er aldrei of oft kveðin, að
sjálfstæðisbaráttu smáþjóðar lýkur
aldrei."
(Þjóðviljinn 1. des. *73, undirstr.
okkar).
Með þessari pólitík sinni básúna þeir
út sameiningu verkalýðsstéttarinnar
með borgarastéttinni á þjóðernisleg-
um grundvelli, þeim sama grundvelli
og var leiðarljós Þýskalands Hitlers,
Italfu Mussolinis og Bandaríkja
Nixons.
Þessi þjóðrembingspólitík gengur öll
út á það, að skipuleggja hluta verka-
lýðsins fyrir markmið borgarastéttar-
innar gegn verkalýðsstéttinni og efla
alræði borgarastéttarinnar um "aldur
og asvi".
Félagar úr KSML taka niður verk
Guðmundar Armanns af sýningu SUM.
Gagnbyltingarsinnarnir þegja yfir því:
• að sjálfstasðisbaráttu Islands sem
kúgaðrar þjóðar lauk 1. des. 1918.
Þá fékk fslenska borgarastéttin
sjálfsákvörðunarrétt sinn til að
kúga og arðræna verkalýð Islands.
• að fyrir dyrum er skipulagning
verkalýðsstéttarinnar fyrir
frelsis- og sjálfstæðisbaráttu
sinni gegn gjörvöllum kapítalism-
anum.
• að verkalýðsstéttin getur aðeins
orðið frjáls með því að vinna sig-
ur á borgarastéttinni með sósíal-
ískri byltingu og stofnsetja alræði
öreiganna.
Listin er stéttbundin.
"I heimi nútímans tilheyrir öll menn-
ing, allar bókmenntir og listir ákveðn-
um stéttum og er samtvinnuð ákveðn-
um, pólitískum sjónarmiðum. Það er
í raun og veru ekkert til, sem heitir
listin listarinnar vegna, list, sem
stendur ofar stéttum - eða list, sem
er laus frá og óháð pólitíkinni."
(Mao Tsetung, Ræða um bókmenntir
og listir í Yenan, 1942).
1 bréfi. til forráðamanna sýningarinnar
í SUM gerir Guðmundur grein fyrir
þeim ástæðum, að hann tekur ekki
þátt í sýningunni, hann segir m. a.:
"Sú pólitík sem fullkomlega er
ráðandi á sýningunni er ekki póli-
tík, sem túlkar hagsmuni verka-
FRAMHALD AF FORSlÐU:
„OLÍUSKORTURIIMN”
kreppuna, hefur auðvaldið í æ meira
mæli gripið til þess eina ráðs, sem
það hefur, að velta henni yfir á herð-
ar verkalýðsins. Þannig hafa raun-
laun verkalýðsins f öllum löndum
heimsins lækkað til muna undanfarin
ár, samtfmis því, sem vöruverð hef-
ur stigið upp úr öllu valdi. Verk-
smiðjur eru víða erlendis reknar
hálfa vikuna eða lokað að fullu. A
sviði alþjóðaverslunar hefur gjald-
eyriskreppan þegar dýpkað verulega
og verslunarhöft og einokunartollar
hafa tekið við af hinni frjálsu verslun
eftirstríðsáranna. Hérlendis heyr-
ast þær raddir æ oftar að nú verði að
koma í veg fyrir kauphækkun verka-
lýðsins til að atvinnuvegirnir geti
borið sig, útgerðarmenn gráta yfir
skertum gróðamöguléikum og iðnað-
urinn rambar á barmi erfiðleikanna
Borgaralegir hagfræðingar og smá-
borgaralegir umbótasinnar, sem
reynt hafa að útskýra þessa örðug-
leika auðvaldsins, grípa æ oftar til
röksemdafærslu, sem er ætlað að
dylja þær innri mótsetningar auð-
valdsframleiðslunnar, sem orsakað
hafa kreppuna, nefnilega orkukrepp-
urnar. Þeir taka undir með olíu-
auðhringjunum og fullvissa verka-
menn um að olíuskortur sé yfirvof-
andi, um leið og þeir áminna verka-
lýðinn í föðurlegum tón um að sýna
skilning á þessu sameiginlega vanda-
máli alls þjóðfélagsins og alls
heimsins. Verkamenn eiga að hætta
kaupkröfum sínum, hætta að kynda
hús sín, taka atvinnuleysi eða hálfri
vinnu með þögn og skilningi, allt til
að þjóðarbúskapurinn beri sig.
Þjóðarbúskapurinn er hagsmunir
auðvaldsins og ekki verkalýðsins.
Þess vegna hefur sósíalfasisminn í
verkalýðshreyfingum Evrópu og víð-
ar fengið það hlutverk æ meir, að
sannfæra verkamenn um að kaup-
gjaldsbarátta þeirra gegn auðvaldinu
sé óæskileg og stefni atvinnuvegunum
í voða, verkamenn valdi eigin at-
vinnuleysi með því að krefjast hærri
launa. Eitt af þeim vopnum, sem
sósíalfasistarnir grípa til er lyga-
saga um olíuskortinn, lygasaga sem
er ætlað að gera Arabaríkin ábyrg
fyrir óleysanlegum móthverfum auð-
valdskerfisins, sem ber með sér
kreppur, atvinnuleysi og styrjaldir.
Er olfukreppan til ? - Eða er hún
lygasaga auðvaldsins ?
FRAMHALD AF FORSÍÐU
ISAL
• ••
varnarlaus. Allt hjálpast að: eigend-
ur ISALS, verkalýðsforystan og rík-
isvaldið, sem er aðili að Alverk-
smiðjunni.
Aðaltrúnaðarmaðurinn afhjúpar svik
sín við verkamennina.
Hérna í Straumsvík hafa verkamenn-
irnir kosið Örn Friðriksson sem að-
altrúnaðarmann. I tillögum að
breytingum á kjarasamningi við ÍSAL,
sem samdar eru af trúnaðarmönnum
og aðaltrúnaðarmanni er ein af kröf-
unum þessi:
"Aðaltrúnaðarmaður hefur ekki
vinnuskyldu við önnur störf, en þau
sem snúa að málefnum verkafólks
á staðnum."
Kempan úr Sósíalistafélagi Reykja-
víkur, Örn Friðriksson, fer þarna
fram á að vera alla daga á skrifstof-
unni, sem ISAL hefur látið honum í
té. Þessi "róttaski" umbótasinni
hyggst nú klifra uppí verkalýðsaðal-
inn, hvar hann getur dyggilega þjón-
að auðvaldsherrunum í því að svíkja
og blekkja verkamennina. Þar með
hefur þessi gervisósíalisti afhjúpað
sig gjörsamlega og sest til borðs
með hinum stéttsvikurunum.
Olöglegt verkfall: eina leiðin til
varnar.
Verkamenn í Straumsvík! Eina
leiðin fyrir okkur er að við skipu-
leggjum okkur sjálfstætt, án þátttöku
endurbótasinnana í verkalýðsfélögun-
um, því þeir munu svikja okkur!
Við verðum að treysta á eigin krafta
í baráttunni gegn kauplækkunum og
ofsóknum atvinnurekendanna! Eina
vopnið til að verjast þessum kjara-
skerðingum er verkfallsbarátta,
þrátt fyrir að slíkt verkfall sé ólög-
legt. Jafnframt verðum við ávallt
að hafa hugfast, að kjarabætur verða
aldrei varanlegar í þessu þjóðfélagi.
CSckur er nauðsynlegt að skipuleggj-
ast f pólitísku baráttunni með því að
mynda bylting irsinnaðan verkalýðs-
flokk - kommúnistaflokk - sem fær
verði um að hafa á hendi leiðsögn f
stéttabaráttu verkalýðsins á öllum
sviðum þjóðfélagsins.
Hundsum kratabroddana í verkalýðs-
félögunum! Tökum málin í eigin
hendur' Olöglegt verkfall er eina
leiðin!
KSMLfélagar í Straumavík.
Hvað segja raunsæir talsmenn borg-
arastéttarinnar um bessi mál ? ött-
ast þeir heimsendi af völdum olíu-
skorts ? Síður en svo. I bandarfska
auðvaldsritinu US News&World Re-
port segir, að næg olfa sé í USA
sjálfu sem myndi geta fullnægt orku-
þörf USA næstu 60 árin miðað við
sömu breidd framleiðslunnar, ef
hún væri nýtt. Efnahagssérfræðingur
tímaritsins Wall Street Journal full-
yrðir, að hægt yrði að nýta þessar
olíulindir, ef og aðeins ef verðið á
olíu myndi hækka sem svarar 40%.
En svo lengi sem möguleikarnir fyr-
ir að fá ódýrari olíu frá Arabaríkj-
unum eða Venesuela eru fyrir hendi,
hvarflar ekki að olíuhringjunum að
hefja nýtingu á þessum auðlindum.
Hins vegar er verðhækkun á olíu án
þess að vinnslukostnaður hennar
hækki, það sem heimsvaldasinnarnir
álíta ákjósanlegast. Þess vegna hafa
"18 risafyrirtæki hreinlega komið af
stað sögusögnum um að olfuskortur
sé yfirvofandi, eingöngu í þeim til-
gangi að auka gróða sinn", að því er
bandarfska tímaritið Christian
Science Monitor segir í leiðaragrein
Þess vegna hafa USA nú þegar hafið
undirbúning styrjaldar gegn olíuríkj-
unum í V-Asíu, þar sem hagkvæm-
ara er fyrir olíuhringana að tryggja
afnot sín af olíulindum þessara landa
með vopnavaldi, en að greiða mikinn
stofnkostnað til að koma á fót sam-
bærilegri olíuvinnslu í USA sjálfum.
USA hefur þegar látið úrvalssveitir
sfnar hefja þjálfun í eyðimerkurhern-
aði í stað frumskógahernaðar eins og
beitt var í Víetnam.
Gróusagan um olíuskortinn sem yfir-
vofandi sé og leiða muni af sér hrun
hinna vestrænu velferðarríkja, er
búin til í þeim eina tilgangi að rétt-
læta verðhækkun á olíu til að auka
enn frekar gróða olíuauðhringanna.
Olfuskömmtun Araba - framvfs að-
gerð.
Burtséð frá afturhaldssömum tilgangi
stjórna Arabaríkjanna þjónar olfu-
skömmtun þeirra óneitanlega fram-
sínum tilgangi. Annars vegar eru
þeir að slá skjaldborg um þjóðlegan
rétt sinn til að nýta að eigin vild auð-
lindir sfnar og hins vegar þjóna þeii;
hlutlægt séð, byltingaröflum heims-