Verklýðsblaðið - 06.12.1930, Síða 2
Y fix'lýsing
nm vantranst á stjórn Alþýðnsam-
bands íslands og naudsyn
kommúnistaflokks
Fylkið ykkur um Kommúnistaflokkinn!
Raðið ykkur inn í fylkingar hans!
Fylgið dæmi stéttabræðranna í Ráðstjómar-
rikjunum!
Heill alþjóðasambandi Kommúnista!
Heill Kommúnistaflokki íslands!
Kommúnistaflokkur íslands.
Burt úr
II. Internationale
Tillaga kommúnista
á þingí Alþýðusambandsins
Þai sem „Socialistische Arbeiter Intemation-
ale“ (II. Intemationale) er alþjóðasamband
sósíaldemókrata, sem með hverju ári sanna bet-
ur og betur fjandskap sinn við stéttabaráttu
verkalýðsins (blóðbað sósialdemókrata á verka-
mönnum í Berlín 1. maí 1929 o. fl.), frelsisbar-
óttu kúguðu nýlenduþjóðanna (fangelsun og víg
brautryðjenda indversku alþýðunnar framin af
sosialdemókratastjóm Bretaveldis o. fl.) og við
ráðstjómarríki verkalýðs og bænda (stríðsund-
irbúningur gegn þeim í samráði við stórveldin)
filyktar Alþýðusamband íslands að segja sig
samstundis úr II. Intemationale og beitast fyr-
ir því að eyða áhrifum sosialdemókrata og af-
má völd þeirra yfir verkalýðshreyfingunni og
Alþýðuflokknum.
Jafnhliða lýsir Alþýðusamband Islands fyllstu
samúð sinni með Alþjóðasambandi Kommúnista
(III. Intemationale), Ráðstjórnarríkjunum og
frelsisbaráttu nýlenduþjóðanna og vill með sam-
vinnu við þessi meginöfl undirstéttanna í heim-
inum heyja frelsis&tríðið við heimsauðvaldið og
leiða sósialismann til fullkomins sigurs.
Tillögu þessari vísuðu sósíaldemókratar frá
með rökstuddri dagskrá).
Sfrið gegn Sovjet
Síðustu 2 árin hefir rússnesku lögreglunni,
G. P. U., tekist að hafa upp á ýmsum samtök-
um verkfræðinga og sérfræðinga af borgara-
stétt, sem notuðu aðstöðu sína til að reyna að
koma á víðtækri kreppu í Rússlandi með skipu-
lagðri svikavinnu (sabotage). Margt benti til
þess, að öll þessi smásamtök hefðu samband
með sér, og að það aftur stæði í nánu sambandi
við hina fyrri verksmiðjueigendur og jafnvel
við stjómir stórveldanna.
Þegar réttarrannsóknin fór fram gegn þeim
mönnum, sem þá urðu uppvísir að svikavinnu,
ráku öll auðvaldsblöðin upp ógurlegt öskur um
að nú væri bolsastjómin að fóma sakiausurn
mönnum til þess að dylja glappaskot sín. Jafn-
vel íslenzku auðvaldssneplamir bmgðust ekki!
Rannsóknir G. P. U. leiddu í ljós, að foringj-
amir ættu sæti í æðstu iðnaðarstjórnum ráð-
stjórnarríkjanna, í yfirstjórn og í skipulags-
nefnd þjóðarbúskaparins. Og loksins tókst að
hafa upp á foringjunum, sem eru 8 að tolu.
Hinn 25. f. m. hófust réttarhöldin í riiáli
þeirra. Þeir hafa allir játað sig seka og skýrt
afdráttarlaust frá starfsemi sinni. Þeir voru
foringjar hins svokallaða „Iðnaðarflokks“ og
hafði hann um 2500 meðlimi. Hlutverk flokks-
ins var: 1. áframhaldandi og aukin svikavinna
og eyðileggingar í iðnaðinn. 2. að vinna að því,
Á Alþýðusambandsþinginu lögðu kommúnist-
ar fram eftirfarandi
tillögu um vantraust á stjórn
Alþýðusambandsins
Sambandsþing lýsir fyllsta vantrausti sínu á
fráfarandi sambandsstjóm, sökum þess:
1) að hún hefir vanrækt starfsemi í faglegum
málum verkalýðsins og bragðist þannig í sjálf-
sögðustu hagsmunabaráttu stéttariimar.
2) að hún hefir með þingstarfsemi sinni
gengið inn á vítaverða afsláttar- og bræðings-
pólitík við borgaralega ríkisstjóm, stutt ráðu-
neyti fjandsamlegt verkalýðnum og gerst þátt-
takandi í stjóm fyrirtækja, hringa, fjármála-
og ríkisauðvaldsins í stað þess að halda uppi
vægðarlausri andstöðu gegn ríkisvaldi auðvalds-
ins í hvaða mynd, sem það birtist.
3) að hún hefir með stjóm sinni á málgagni
flokksins, Alþýðublaðinu, gersamlega vanrækt
að boða og útbreiða sósíalisma og marxisma svo
að blaðið hefir í stað þess að verða vopn til að
efla sósíalistiskan þroska verkalýðsins orðið
tæki til að viðhalda og auka borgaralegan hugs-
unarhátt hjá alþýðu.
Ástæðan til þess að sambandsstjóm hefir
brugðist verkalýðnum er sú, að hún er skipuð
sósíaldemókrötum. Hafa þeir bezt sýnt með
þessari stjómarstefnu sinni, að þeir eru ófærir
til að leiða verkalýðinn í baráttunni við hið
borgaralega ríkisvald og auðvaldið. Þeir gerast
þvert á móti liðsmenn stéttarandstæðinganna
og lama alla sókn verkalýðsins í stéttabarátt-
unni við auðvaldið. Er þetta sérstaklega hættu-
legt, þegar svo harðvítug barátta stendur fyrir
dyrum sem nú. Álítur sambandsþingið því að
nauðsynlegt sé fyrir verkalýðinn að setja sósíal-
að 5 ára áætlunin kæmist ekki í framkvæmd
með því að láta einstaka liði hennar dragast
aftur úr. 3. njósnir fyrir stórveldin. 4. tilraunir
til að spilla aganum í rauða hemum og múta
einstökum herforingjum. 5. að undirbúa eyði-
leggingu framleiðsluaflanna eftir megni um leið
og árás stórveldanna yrði hafin.
1 utanlandsferðum fyrir stjómina höfðu þeir
komist í samband við flokk rússneskra flótta-
manna í París, hina svokölluðu „Iðnaðar- og
verzlunamefnd (í henni er meðal annara Nobel
sonur „friðarpostulans"). Auk þess í samband
við útlenda iðjuhölda, svo sem vopnakónginn
Wickers.
En „Iðnaðar- og verzlunarnefndin“ hafði
einnig samband við ensku og frönsku stjómim-
ar og við herforingjaráðið franska. Samband
þetta var siðferðilegs, fjárhagslegs og hemað-
arlegs eðlis.
„Iðnaðarflokknum" urðu greiddar fleiri mil-
jónir rúbla fyrir milligöngu tveggja meðlima
sendisveitarinnar frönsku í Moskva og honum
vora sendar áætlanir og fyrirskipanir um eyði-
leggingar- og æsingastarf. Árásaráætlanimar
voru útbúnar af herforingjaráðinu franska með
aðstoð sérfræðinga úr ýmsum öðrum löndum, t.
d. Englendingsins Lawrence ofursta, sem er sér-
fræðingur í undirróðri.
Rúmenía skyldi hefja sóknina undir ein-
hverju yfirskini, síðan skyldi Pólland, Eystra-
saltslöndin og Finnland skerast í leikinn, og
enski og franski flotinn skyldi aðstoða með
árásum frá Eystrasalti og Svartahafi og senda
demókratana frá völdum í sambandinu og koma
á stjóm kommúnista í Alþýðusambandinu i
staðinn.
Eftir að þingið hafði fellt þessa tillögu, gáfu
fulltrúar vinstri armsins á þinginu eftirfarandi
, yfirlýsingu um nauðsyn
kommúnistaflokks
Þar sem meiri hluti fulltrúa Alþýðusam-
bandsþingsins, þrátt fyrir megnustu óánægju
verkalýðsins um allt land með bræðings- og
stéttasamvinnustef nu Alþýðusambandsstj óm-
arinnar, hefir fellt vantraust á sambandsstjóm-
ina og neitað að losa verklýðshreyfinguna við
yfirráð sósíaldemókrata á hættulegustu barátt-
tímunum við auðvaldið, hefir ennfremur hafnað
því að segja sig samstundis úr 2. Intemationale
og að lokum veitt inntöku í sambandið félagi
verkfalísbrjóta og flokkssvikara úr Vestmanna-
eyjum, en bolað hinu gamla, trausta jafnaðar-
mannafélagi burtu, ályktar vinstri armur
verkalýðshreyfingarinnar að brýna nauðsyn
beri til að skapa forastu fyrir verkalýðinn í
hinni harðvítugu stéttabaráttu, sem fram und-
an er, með myndun Kommúnistaflokks íslands.
Ingólfur Jónsson, Brynjólfur Bjamson, Her-
mann Eiparsson, Dýrleif Ámasdóttir, Aðalbjöm
Pétursson, Elísabet Eiríksdóttir, Bjöm Gríms-
scn, R. Á. Ivarsson, Sigurður Fanndal, Krist-
ján Júlíusson, Gunnar Jóhapnsson, Stefán
Pétursson, Angantýr Guðmundsson, Isleifur
Högnason, Haukur Bjömsson, Einar Olgeirs-
son, Jón Rafnsson.
flugheri sína til að eyðileggja Leningrad og
Moskvu.
Samtímis átti iðnaðarflokkurinn að koma á
uppreisnum og koma ringulreið á framleiðslu
Rússlands. Fyrst var áætlað að stríðið skyldi
hafið 1930, en síðar var því frestað til 1931.
Fyrir starf sitt var foringjum iðnaðarflokksins
lofað ráðherrastöðum í hinni nýju stjóm, en
England skyldi fá Kákásus með Baku, Frakk-
land, Rúmenía og Pólland hluta af Ukraine og
ýms önnur lönd eitthvað líka.
En heimskreppan færist yfir auðvaldsheim-
inn og fyrir eldmóð rússneskrar alþýðu og
áhuga hennar á uppbyggingu sósíalismans tókst
að gera áætlanir „sérfræðinganna“ að engu. T.
ds verður hráefnaframleiðslan 1932—33 2,2-
földuð í samanburði við hámarksáætlanir „sér-
fræðinganna“ og framkvæmd 5 ára áætlunar-
innar á 4 árum er tryggð. Smámsaman tókst
að hafa upp á svikurunum og nú loks á foringj-
unum. En aðalforsprakkamir: Poincaré, Briand
og Chamberlain sitja enn óáreittir sem „stjórn-
skörungar" og „friðarvinir". Þó ekki lengi, þeir
munu brátt fá sinn dóm líka.
Stríðshættan er ekki horfin. Erfiðleikar auð-
valdsins aukast stöðugt og þar með líka þörf
þeirra á því, að ráða niðurlögum Sovjet-Rúss-
lands áður en það verður of seint. Reynsla lið-
inna alda sýnir, að kúgarastéttirnar gefast
aldrei upp baráttulaust. Stríðið gegn Sovjet-
Rússlandi er yfirvofandi! Aðeins samtök hins
vinnandi lýðs um allan heim getur hindrað það!
E. E.