Verklýðsblaðið - 06.12.1930, Síða 4
Ókeypis ferð tíl Sovét Rússlands
(Moskva) með öllu uppihaldi í 6 v.
Þad eru verðlannin sem Verklýðsblaðið veitir
þeim sem safnar flestum áskrifendum aö blaðinu
fyrir 1. febrúar. 1931.
Öllum er gefið tækifæri til þess að taka þátt í samkepphi þessari.
Hefurðu fengið þér söfnunarlista?
Ertu byrjaður að safna?
Ef ekki þá fáðu þér strax í dag söfnunarlista hjá
útsölumauni blaðsins á þínum stað.
ATHUGIÐ! Hinir nýju áskrifendur skulu skrá sig á lista þá, sem
þar til eru gerðir. Lista þessa má jafnan fá hjá afgreiðslu-
mönnum blaðsins. Fyrir hvem áskrifanda skal fylgja áskriftar-
gjald fyrir einn ársfjórðung (kr. 1,25) fyrirfram. Söfniuiarlistam-
ir sendist jafnóðum afgreiðslu blaðsins í Reykjavík og verður þá
um hæl send kvittun fyrir tölu áskrifendanna. Samkeppninni lýk-
ur 1. febrúar og skulu þá allir listar vera sendir.
Auk þess verða tólf þeim næstu veitt bókaverðlaun. Enginn læt
ur sér þetta einstaka tækifæriúr greipum ganga!
Jafnaðarmannafélag'ið „SFARTA“
Fnndur
verður haldinn sunnudaginn þann 7. þ. m.
klukkan 2 e. h. í Kaupþing-salnum
Dagskrá:
1. Skýrsla frá stofnþingi Kommúnistaflokks Islands.
2 Fréttir frá Alþýðusambandsþingi og Verklýösráð-
stefnunni
’V'erkamerm. velkomnir á
Stjórnin
S. U. K.
Baráttusjóður S. U. K.
F. U. K. í Reykjavík hefir þegar stofnað
deild úr Baráttusjóði S. U. K. og einnig á ísa-
firði.
Frá Reykjavíkurdeildinni Lnnkomið
fyrir tvo síðustu fundi....... kr. 24,00
Innkomið fyrir sölu á myndum af
sámbandsþinginu.........• • • • — 105,00
‘ : Alls kr. 129,00
Félagar!
Við þurfum að herða agitationina fyrir Bar-
áttusjóð S. U. K. ennþá meir. Byrjunin er
ágæt. Og munum, að takmarkið er að fá alla
verklýðsæskuna, einnig hina óskipulögðu, til að
styrkja Baráttusjóð S. U. K.
Búningar S. U. K.
Ef fleiri félagar ætla sér að fá búninginn,
þá ættu þeir að snúa sér til sambandsstjórnar
eða stjórnar F. U. K.
Efri hlutinn kostar kr. 16,50, en buxuraar
kr. 20,00.
Frá Eyrarbakka
Fyrir stuttu hélt verklýðsfélagiö á Eyrar-
bakka fund. Var verklýðssambandið þar aðal-
lega til ummræðu og gátu sósíaldemókratamir
drepið tillögu fylgjandi því, með 1 atkvæðis
meirihluta.
Nýr formaður félagsins var kosinn Andrés
Jónsson, ágætur verklýðsmaður.
Einnig var kosin nefnd til að undirbúa árs-
hátíð félagsins 12. des. Er mjög mikill áhugi
fyrir að gera hana sem bezta.
KlofninestiIIögurnar
samþykktar
Alíar klofningstillögurnar, sem getið var um
í síðasta blaði,tillagan um að svifta kommúnista
pólitískum réttindum í verkamannafélögunum
og tillagan um stofnun nýrra fjórðungssam-
banda, voru samþykktar á sambandsþinginu.
Ennfremur var samþykkt tillaga frá Héðn i
Valdimarssyni, um að meðlimir jafnaðar-
rnannafélaga í Alþýðuflokknum megi ekki til-
heyra öðrum stjómmálaflokki. Samkvæmt þess-
ari tillögu yrði að leysa upp flestöll jafnaðar-
mannafélög í flokknum. Á Siglufirði t. d. myndu
líklega verða eftir 4 menn í félaginu þegar bú-
ið væri að reka alla kommúnistana. Þessi tillaga
sýnir bezt klofningsvígamóð kratanna.
Loks var samþykkt að taka inn í sambandið
verklýðssvikara- og verkfallsbrjótafél. Þórs-
hamar í Vestmannaeyjum, þó áður væri búið að
fella það. Svo mikils þótti við þurfa, að fundar-
sköp voni brotin og fulltrúar knúðir til að greiða
atkvæði eins og sósialdemókratarnir vildu.
Rauði fáninn
kemur út í næstu viku. Flytur m. a. grein-
ir um brottvikningu Ásgeirs Magnússonar úr
Menntaskóla Norðurlands o. fl.
Eiður Thorarensen
hefir beðið Verklýðsblaðið að geta þess, að
hann hafi ekki skrifað grein þá um kjör verka-
manna í Álafossverksmiðjunni, sem kom hér í
blaðinu. fyrir skömmu. ,
„Verklýasblaði3“. Ritstjóm: Ritnefnd „Spðrtu". —
Ábyrgðarm.: Brynjólfur Bjamason. — Árg. 5 kr., í
lausasölu 15 aura eintakið. — Utanáskrift blaösins:
Verklýðsblaðið, P. O. Box 761, Reykjavík.
Prentsmiðjan Acta.