Verklýðsblaðið - 02.02.1932, Blaðsíða 3
Sjómannaverkfallið i Evjum
Utvegsbankinn í Vestmannaeyjum hefir forustuna í baráttunni
gegn kröfum sjómanna um fast kaup.
Tvær krötugöngur vikuna sem leið.
A. S. V.
og verkföllin.
Söfnun hafin um land allt.
Styrksending frá Berlin.
Hinn 21. þ. m. hóf A. S. V. söfnun *sína til
styrktar verkfallsmönnum í Keflavík og Vest-^
mannaeyjum. Þrátt fyrir atvinnuleysi og fjár-
skort alþýðu hefir þegar safnast töluvert fé.
Hér í Reykjavík eru komnar um 350 krónur
til gjaldkera. í Vestmannaeyjum hafa safnast
rúmar 800 krónur í peningum 'og á annað
þúsund í vörum. Auk þess hefir frézt um
söfnunina á Akureyri, Siglufirði og' fsafirði.
Mörg verklýðsfélög hafa þegar samþykkt
styrkveitingar til verkfallsmanna sumpart
gegnum A. S. V. og sumpart beint. Járniðn-
aðannannafélagið í Reykjavík gefur 100 krón-
ur og Verkakvennafélagið Ósk á Siglufirði 30
krónur til A. S. V. Sjómannafélagið í Reykja-
vík og Dagsbrún gefa 300 krónur hvort beint
til verkfallsmanna. F. U. J. hefir haldið
skemmtun til ágóða fyrir verkfallsmenn. Á
lienni söfnuðust um 12 krónur til A. S. V.
Þegar um leið og söfnunin var hafin sendi
miðstjórn A. S. V. íslandsdeildarinnar skeyti
til miðstjórnar A. S. V. í Berlín (alheims-
Alþjóðleg aðstoð i vændum.
Skeyti frá miðstjórn A. S. V. í Berlín.
Mótmæli gegn grimdaræði atvinnurekenda.
„Berlin 30. jan. 1932.
f nafni þeirra 20 miljóna verkamanna,
starfsmanna, bænda og menntamanna, sem eru
í A. S. V. vottum við verkamönnunum og
sjómönnunum sem í verkföllum standa,
bróðurlegasta samúð vora og eldheítar
baráttukveðjur. — Þótt nú séu gerðar til
okkar kröfur til styrktar verkföllum í öllum
auðvaldslöndum, munum við samt reyna að
senda hjálp. Lifi sigursæl barátta sósíalistiskt
verkalýðs gegn svívirðilegri launalækkun og
fasistisku grimdaræði atvinnurekenda. Við
heimtum fullkomið frelsi fyrir verklýðsfor-
ingjana og fullkominn verkfallsrétt.
Miðstjórn Alþjóðasamhjálpar verkalýðsins.
Klara Zetkin. Willi Múnzenberg.
Henri Barbusse. Francesco Misiano.
Sven Linderoth. Prófessor Alfons Goldschmith.
Georg Ledebour. Poul Scholze.“
stjórnarinnar), skýrði frá hinni miklu þýð-
ingu þessara verkfalla fyrir íslenzkan verka-
lýð og bað um styrk.
Svarið kom um hæl. Þrátt fyrir það þótt
A. S. V. verði að styrkja ótal verkföll í öllum
auðvaldslöndum, er heitið aðstoð. Skeytið birt-
um vér hér í blaðinu. f öðru skeyti frá
Berlín sama dag er tilkynnt að 100 mörk séu
á leiðinni sem bráðabirgðastyrkur.
í Vestmannaeyjum hefir á 10 dögum verið
úthlutað 484 krónum í peningum og matvæli
og fatnaður fyrir 1286 krónur. í Keflavík hef-
ir ekki verið um neina úthlutun að ræða ennþá
vegna þess, að deilan stendur nú aðeins milli
atvinnurekenda og Alþýðusambandsins, en A.
S. V. er hvenær sem er reiðubúin til að styrkja
Keflavík, þegar þess verður þörf, og þess
verður krafizt. Sama gildir um Blönduós.
A. S. V. skorar á alla einstaklinga og félög
sem enn hafa ekki styrkt söfnun þess, að
gera það nú þegar, jafnframt er skorað á alla
safnendur að skila af sér sem fyrst. og sem
oftast.
Miðstjórn A. S. V. fslandsd.
Munið að úrslit verkfallsins í Vestmannaeyj-
um velta á því hve mikla hjálp A. S. V. getur
Veitt. — Notið hverja einustu frístund til að
safna fyrir A. S. V.
í síðasta blaði var ítarlega skýrt frá deil-
unni í Vestmannaeyjum. í kaupdeilu þessari
hefir ekkert nýtt gerst síðustu viku, stórút-
gerðarmenn neita að semja við Sjómannafé-
lagið og allt stendur við sama.
En það sem eftirtektarvert er við verkfallið
er það, að Útvegsbankinn hefir algjörlega í
hendi sér forustuna í kaupdeilunni gegn sjó-
mönnum. Það er reyndar ekkert nýtt að banka-
valdið í Vestmannaeyjum hafi kúgað niður
kaup verkalýðsins. En nú er svo komið, að
bankinn neitar útvegsbændunum um lán
nema með því skilyrði að þeir ráði sjómenn
sína upp á hlut, eða með öðrum orðum, semji
ekki við Sjómannafélagið.
Kröfum útvegsbænda til bankans um að fá
lán án milligöngu kaupmanna og kaupfélaga,
hefir á engan hátt verið sinnt. Enn einu sinni
eiga fátækir bændur og sjómenn í Vestmanna-
eyjum að fá að þræla heila vertíð til þess að
grynnka á eyðsluskuldum nokkurra ístru-
belgjakaupmanna við bankann.
Nú er svo komið að „allra flokka bankinn“,
— banki Jóns Baldvinssonar — stendur
fremstur í kaupkúguninni gegn verkalýðnum.
Kratarnir reyna að veikja samtökin í Vest-
mannaeyjum með rógburði.
Jafnhliða því sem Jón Baldvinsson, forseti
Alþýðuflokksins, rekur erindi atvinnurekend-
anna í Útvegsbankanum, reyna kratabroddar
að rógbera deiluna í Eyjum. Á fundi sem
haldinn var í Sjómannafélaginu í vikunni sem
leið, tróðu nokkrir kratar upp með hinar og
aðrar lygar um sjómannasamtökin í Vest-
mannaeyjum. Formaður félagsins, Sigurjón
Ólafsson, greip lygar þessar glóðvolgar, hljóp
á fund sem haldinn var í Verkakvennafélag-
Allt stendur við sama í Keflavíkurdeilunni.
Morgunblaðið heldur áfram að æsa til hermd-
arverka og hefir á hverjum degi fundið upp
nýjar lygasögur til þess að gera verkamála-
ráð Alþýðusambandsins ábyrgt fyrir því að
vélbáturinn „Hulda“ fórst. Er þetta gert í
þeim tilgangi að æsa upp hugi smáútvegs-
manna í Keflavík og rugla huga þeirra, svo
að hann sé ekki móttækilegur fyrir neinum
skynsamlegum rökum. Er Morgunblaðið og
erindrekar bankavaldsins í Keflavík með þessu
á góðum vegi að leggja útgerð smáútvegs-
manna í rústir og gera þá sjálfa að öreigum.
Flestir smáútvegsmennirnir í Keflavík hafa
þegar fyrir löngu séð þetta og vilja semja.
En vikapiltar Ólafs Thors hindra það. Samn-
ingstilraunir hafa þegar verið gerðar, en
árangurslausar.
Um afstöðu Alþýðusambandsins verður að
segja hér nokkur orð. Það hefir látið við bann-
ið eitt sitja, enda þótt hér hafi verið nauð-
syn á allt öðrum ráðum og gagngerðari. Því
að með banninu einu varð ekki hindrað, að
atvinnurekendur í Keflavík eyðilegðu verka-
lýðsfélagsskapinn þar. Þetta hefir mönnum
ÖREIGAÆSKA.
Svo heitir bæklingur, sem Samband ungra
kommúnista hefir gefið út núna nýlega. Fjall-
ar hann um baráttu verklýðsæskunnar, bar-
áttusamtök hennar, hlutverk hennar sem stoð
í allsherjarbaráttu verklýðsins, nauðsyn-
inu í sama húsi og hélt þar svívirðilega ræðu
um samtökin. Sagði hann meðal annars að
Sjómannafélagið hefði samið fyrir skammar-
lega lágt kaup við smáútvegsbændurna og að
aldrei hafi hlutur verið svo aumur að hann
hafi ekki náð slíku kaupi.
Sannleikurinn er sá, að kaup það, sem náðst
hefir með samningum við smáútvegsmenn, er
síst verra, en hinar upphaflegu kröfur sjó-
mannafélagsins, sérstaklega vegna þess að
tryggt er hækkandi kaup, með frekari krónu-
lækkun. Kratarnir virðast því hreint og beint
reka erindi Útvegsbankans og mæla með
hlutnum, sem þýðir að sjómenn yrðu margir
að ganga alveg kauplausir frá vertíðinni —
og sumir þeirra jafnvel skuldugir fyrir mat-
inn.
Afstaða kratanna til hinnar harðvítugu deilu
verkalýðsins í Vestmannaeyjum sýnir greini-
legast hvaða hug þeir bera til verklýðssam-
takanna, að þeir skuli grípa til þeirra ráða að
veikja fylkingar verkalýðsins þegar mest á
reynir að þær séu traustar, af þeirri einföldu
ástæðu, að kommúnistar hafa forustu í deil-
unni fyrir hönd verkalýðsins.
Kröfugöngur í Vestmannaeyjum.
Tvo daga í röð í síðustu viku gengu sjómenn
í Eyjum kröfugöngu um bæinn til þess að
bera fram kröfur sínar og hvetja alla alþýðu-
menn að standa með verkfallsmönnunum. Jafn-
framt báru þeir fram kröfur Kommúnista-
flokksins fyrir hönd atvinnuleysingjanna um
atvinnubætur eða atvinnuleysisstyrk frá bæj-
arstjórn. Voru kröfugöngur þessar fjölmennar
og tóku þátt í hinni fyrri 150 manns en í síð-
ari kröfugöngunni voru 240 manns, þar af um
30 konur.
eins og Ólafi Friðrikssyni og Héðni Valdimars-
syni heldur ekki dulizt. Það er opinbert leynd-
armál, að þeir gerðu eina tilraun til þess að
manna bát og senda til Keflavíkur. Báðu þeir
í þessum tilgangi um mótorbátinn „Faxa“, sem
er eign Útvegsbankans. En þá brá svo ein-
kennilega við, að Jón Baldvinsson, sem eins og
allir vita er fyrst og fremst Útvegsbankastjóri
og aðeins í öðru lagi forseti Alþýðusambands-
ins, neitaði að lána bátinn og tók þar með
fullkomlega afstöðu með atvinnurekendunum
í Keflavík. Er þetta enn ein sönnun þess, að
Alþýðusamband íslands er þess ekki megnugt
að heyja þá stéttabaráttu, sem leiðir til sig-
urs svo lengi sem agentar auðvaldsins spila þar
fyrstu fiðlu.
Keflvískir smáútgerðarmenn! Hagsmunir
ykkar eru ekki sömu og fiskheildsalanna og
bankanna í Reykjavík. Látið ekki vikapilta
þeirra eyðileggja atvinnu ykkar, lífsmöguleika
og framtíð. Gerið sömu kröfur og stéttarbræð-
ur ykkar í Vestmannaeyjum. Þær fáið þið að-
eins uppfylltar í bandalagi við verkalýðinn til
sjós og lands!
ina fyrir öflugri pólitískri forystu, er leitt geti
hana fram til sigurs í baráttunni. Bæklingur-
inn er ein örk og kostar 25 aura. Kaupið bæk-
linginn og gerist útsölumenn hans. Hann fæst
hjá Afgreiðslu Verklýðsblaðsins, Aðalstr. 9B,
P. O. Box 761, Reykjavík.
Kcflavikurdcilan