Verklýðsblaðið - 11.10.1932, Síða 4
1500 skráðir atvinnuleysingjar!
Frh. af 1. síðu.
Þar verða allir góðir Dagsbrúnarverkamenn
og aðrir, sem vinna samskonar vinnu, að
mæta.
3 verkamenn lmýja fram atvinnu fyrir 23
fjölskyldumenn, sem átti að reka á sveitina.
Böðulsháttur atvinnubótanefndar.
Eins og skýrt var frá í síðasta blaði, var
23 fjölskyldumönnum, með hátt á annað
hundrað á framfæri sínu, sagt upp vinnu í
þeim tilgangi, að koma þeim á bæinn. 3
þeirra, sem hafa 20 manns á framfæri, héldu
áfram að vinna, þó að þeir hefðu ekki kort.
Árangurinn af baráttu þessara manna, sem
þannig hafa gerst brautryðj endur, og sam-
fylkingu verkalýðsins með þeim, var, að allir
23 mennirnir hafa nú fengið vinnukort aftur.
Einmitt vegna þessarar sigursælu baráttu
þessara manna fyrir alla hina, verður allur
verkalýðurinn að standa saman til að knýja
það í gegn, að þeim verði greidd laun fyrir
þessa daga, sem þeir unnu án seðla.
Á hverjum morgni undanfarna daga hefir
hópur verkamanna farið upp á skrifstofu at-
vinnubótanefndar til þess að krefjast þess; að
mönnunum yrðu greidd launin. En allt hefir
verið árangurslaust ennþá. Svör þeirra Jóns
Daníelssonar og Kjartans Ólafssonar vom
svör hinna verstu verkalýðsfénda, og mun
Verldýðsblaðið fletta rækilega ofan af þess-
um mútuþegum, sem sitja þarna tvo tíma á
dag fyrir geypilaun meðan verkamenn svelta.
Þessi skrifstofa kostar yfir 2000 kr. á mán-
uði.
Þessir þrír verkamenn, sem gefið hafa hið
ágætasta fordæmi, standa nú uppi nieð heim-
ilin bjargarlaus, vegna þessa, að laun þeirra
nást ekki. Tveir þessara manna hafa leitað til
A. S. V. og hefir A. S. V. hafið söfnun til
styrktar þeim, til þess að þeir þurfi ekki að
leita til bæjarins, meðan stendur í þófinu um
greiðslu launanna. Allir stéttvísir verkamenn
og aðrir verklýðsvinir, sem nokkur ráð hafa
munu leggja nokkra aura í þá söfnun — en
jafnframt er nauðsynlegt að herða baráttuna
fyrir því, að mennimir nái rétti sínum og fá
greidd launin.
Áður en lagt var af stað til atvinnubóta-
nefndarinnar frá Verkamannaskýlinu einn
morguninn, skýrði sjómaður frá því, að hann
hefði fengið vinnuseðil og ekki getað mætt
fyrsta daginn. Þegar hann kom næsta dag vár
hann rekinn úr vinnunni og vinnukort hans
gert ógilt. Kröfðust verkamenn þess að þetta
væri leiðrétt, en þeir herrarnir Jón Daníels-
son og Kjartan Ólafsson harðneituðu því. Með
öðrum orðum, ef verkamaður verður veikur
einn dag, er honum refsað með því að reka
hann úr vinnunni. Voru þessir herrar nú
spurðir hvort þeir væru reknir úr vinnunni,
ef þeir gætu ekki komið á skrifstofuna einn
dag. Varð þeim svara fátt.
Annað kom líka upp úr kafinu í þessari
ferð. Skýrsla fátækranefndar um Arnþór Jak-
obsson er fölsuð. Er þar sagt, að Arnþór sé
einhieypur, þó hann hafi fyrir konu og böm-
um að sjá. Er þetta gert til þess að breiða
yfir hið glæpsamlega framferði gegn Amþóri,
sem hvorki fær fátækrastyrk né atvinnubóta-
vinnu — sem er sveltur til þess að fá tæki-
færi til þessað senda hann norður á land, sem
óbótamann, einmitt með þeim forsendum, að
liann sjái ekki fyrir konu sinni og börnum.
Alla morgnana var atvinnubótanefnd undir
lögregluvernd. Enda er það engin furða að
menn, sem hafa slík óþokkaverk á samvizk-
unni, þykist þurfa á aðstoð lögreglunnar að
halda.
Kóstnaðurinn við atvinnubótavinnxma.
Kostnaðurinn við atvinnubótavinnuna hefir
orðið 109 þúsund krónur í septembermánuði
í stað 60 þús., sem áætlað var. Nú eru vinnu-
laun þessara 200 manna, sem eru í atvinnu-
bótavinnunni aðeins 47 þús. kr. í 4 vikur.
Hvað hefir orðið af hinum peningunum? Til
efniskaupa hafa aðeins farið 7 þús. kr.
CAFÉ HÖFN
selur ódýrar en aðrir heit-
an og kaldan mat, kaffi,
mjólk, öl og gosdrykki.
Verkamenn og sjómenn
kaupa þar, sem verð og
gæði eru bezt.
Sparið peninga
með þvi að
ff' ■ v\ kauj)a
Stotz
Automat
I i stað
| vartappa,
fást hjá
undirrituð-
um.
Bræðurnir Ormsson
Oðinsgötu 25.
Simar 867 — 1429.
Ilringið
í Hringinn
bifreið altaf til taks
allann sólarhring'inn.
Bifr.st. Hringurinn
Skólabrú 2, simi 1232.
CAFÉ Vl F 1 L L
S í M 1 2 7 5
Tvímœlalaust bezti matsölustaðurinn í bœnum.
Allt framleitt úr fyrsta ftokks vöru.
Sendum allt heim.
Eitt af skáldum vorum, sein
daglega neytir G.-S.- kaffl-
bætis, sendir honum eftirfar-
andi ljóðlinur:
Inn til dala, út við strönd,
Islendinga hjörtu kœtir,
»G. S.« vinnur hug og hönd,
hann er allra kaffibœtir.
Smíðastofan
Reynir
Vatnsstig 3.
Smiðar allslconar hús-
gögn og innréttingar
Siir.i 2346.
J------------------
KAUKASUS-
HVEITIÐ
biátt I, er eitthvert bezta
hveitið, sem til landsins
flyzt. Húsmæður! Biðjið
verzlun yðar um þetta
hveiti,ef þérviljiðfá ágæt-
asta hveiti ódýrt.
Kaupmenn og kaupfélög!
Pantið þetta hveiti i tíma.
Einkaumboð á íslandi:
íslenzk rússneska
verslnnarfélaglð h.f.
Sínii 1493. Hafnarstr 15.
Hvík. Simnefui: Isrnv.
Takið oftir húsmæður!
Búsáhöld,
kaffistell, matarsteli, laus-
ir bollar og diskar.
Mesta úrval bæjarins
í LIYERPOOL
i
)
\
<
Og svo láta þessir herrar sig muna um að
greiða þremur mönnum 50 kr. í vinnulaun,
sem þeir hafa unnið-fyrir!
I þessu sambandi er rétt að aðgæta það, að
þessar 109 þúsundir hefðu nægt til þess að
veita 460 manns atvinnuleysisstyrk, jafnháan
og laun þeirra í atvinnubótavinnunni nema —
235 kr. á mánuði hverjum.
Það er umfram allt nauðsynlegt, að verka-
menn leggi ekki eyrun við því, þegar fjár-
skortslómurinn er barinn, meðan þannig er
farið með peningana og meðan burgeisarnir
hafa tekjur, sem nema tugum þúsunda á ári.
Herðum baráttuna.
Tilgangurinn með sultai*pólitík íhaldsins er
fyrst og fremst sá, að buga verkalýðinn til
þess að geta komið fram allsherjar kaup-
lækkun í vetur.
Næsti bæjarstjórnarfundur verður einum
degi fyrir kosningar. Þá verða kröfurnar, sem
nú var vísað til bæjarráðsins, ræddar. Nú ríð-
ur á því að tíminn til næsta fundar verði not-
aður vel til að efla samfylkinguna.
Valdhöfunum má ekki takast að draga mál-
ið á langinn fram yfir kosningar. Ótta þeirra
við dóm kjósendanna. verður að hagnýta til
þess ýtrasta.
Á næsta bæjarstjómarfundi verður verka-
lýður Reykjavíkur að mæta ekki síður en við
kjörborðið;
Ný söngbók fyrir alþýðu.
Það er nú lengi búið að vera mikil þörf á
því, að verklýðshreyfingin hér á landi eignað-
ist söngbók, sem væri í samræmi við baráttu
hennar. Nú er í ráði að slík bók verði gefin út
innan skamms. Til þess að efnisval geti orð-
ið sem mest og bezt er nauðsynlegt að njóta
aðstoðar allra þeirra, sem eitthvað vildu láta
hönd að þessu verki. Vér viljum því fyrst og
fremst skora á allar deildirnar úti á landi og
ennfremur alla þá einstaklinga, sem kynnu að
hafa eitthvað af efni í slíka bók — þýddu eða
frumsömdu — að senda það til Einars 01-
geirssonar, Sigurðar Helgasonar eða Hallgr.
Jakobssonar, P. O. Box 761, Rvík, fyrir 10.
nóv. þ. á.
Leshringur í Marxisma
hefst í Bröttugötu (minni salnum) á föstu-
dagskvöld kl. 9.
VERKLÝÐSBLAÐIÐ
Abyrgðarm:. Brynjólfur Bjarnason. — Árg. 5 krón-
ur, í lausasölu 15 aura eintakið. — Utanáskrift
lilaðsins: Verklýðsblaðið, P. O. Box 57, Reykjavík.
PrenUmlðjan Aeta.
Gleymið ekki að vátryggja
Vátryggingarfélagið
NORGE h.f
Stofnað í Drammen 1857.
Brunatygging.
Aðalumboð á Islandi: JÓN ÓLAFSSON,
málafl.m., Lækjartorgi 1, Reykjavík.
Sími 1250.
Du'glegir umboðsmenn gefi sig fram, þar
sem umboðsmenn ekki eru fyrir.
Gardínu'——
stengur.—
Fjölbreytt úrval nýkomið.
LUDVIG STORR
LAUGAYEGI 15.
Munið
að við erum llúttir á Laugaveg 3 og að
sími okkar er 599.
Nýtt ó> Gamalii
Laugavegi 3.
Rússneska
WMM rúgmjölið
er komið aftui*.
Islenzk-Rússneska verzlunarfélagÍQ