Verklýðsblaðið - 11.04.1933, Page 3
legar bölsótanir um kommúnista.
Margir verkamenn munu ekki
einu sinni reiðast, heldur hlæja
og hrista höfuðið yfir slíkuro
langlokum, jafnvel smáborgurum,
smábændum dettur ekki í hug að
leggja trúnað á það, sem í slíkum
níðritum stendur. En kjörorð Ól-
afs Friðrikssonar um að „það sem
allt velti á sé að segja hlutinn
nógu oft til þess að honum sé
trúað“ er einnig kjörorð fasist-
anna og hinnar aðþrengdu borg-
arastéttar, sem verður að neyta
hinna örgustu kúgunartækja til
að viðhalda valdi sínu, sem gerir
nú síðustu tilraun til þess að
bjarga hinu gjörrotna, deyjandi
þjóðskipulagi kapitalismans, með
því að æsa upp slíkan djöfladans,
sem stiginn er af stormsveitum
Hitlers og öðru liði hans. Verka-
menn og konur! Hlægið ekki, en
hervæðist! Skerpið baráttuna
gegn launaárásum kapitalismans,
baráttuna gegn atvinnuleysinu.
Með efling samfylkingar verka-
lýðsins og aðeins á þann hátt
mun okkur takast að hindra vöxt
og viðgang íslenzks fasisma.
Hver er tilgangurinn
með rikisldgreglmmi ?
1 fyrradag skrifa leiguritarar
Morgunbl. eftirfarandi klausu
undir nafninu „sjómaður“.
„Og engum manni getur dottið
í hug, að lögregluvaldi verði beitt
móti verkföllum, sem eru sam-
þykkt af Alþýðusambandi ís-
lands“.
Hversvegna? Vegna þess að
verkföll, sem eru undir forustu
Alþýðusambandsbroddanna eru
ekki hæftuleg fyrir auðvaldiö. ?ar
sem broddar Alþýðufl. ráða, er
ekki barizt fyrir hagsmunum
verkalýðsins á kostnað auðvalds-
ins. Forusta Alþýðuflokksbrodd-
anna, er miklu haldbetri trygg-
ing en nokkur ríkislögregla fyrir
sigri auðvaldsins og ósigri verka-
lýðsins.
Hér er það hreinskilnislega
játað, að ríkislögregluna eigi að
nota í þeim verkföllum, þar sem
verkalýðurinn hefir sjálfur
stjórnina, eins og í járniðnaðar-
verkfallinu og nýafstaðinni deilu
á Akureyri.
Og af þessu dregur Morgun-
blaðið þá ályktun, að Alþýðu-
flokksforingjarnir eigi ekki að
vera móti ríkislögreglu.
Þeir eru það heldur ekki. Þess-
vegna hindra þeir alla baráttu,
sem dugar til að kæfa ríkislög-
regluna í fæðingunni. Þess vegna
hjálpa þeir til að auka og víg-
búa bæjarlögregluna í Reykjavík
og þess vegna voru þeir hvata-
menn að herútboðinu á Akureyri.
Þing V. S. N.
Fyrstu dagana 1 apríl hélt
Verkalýðssamband Norðurlands
5. þing sitt á Akureyri. Full-
trúar voru mættir frá flestum
verkalýðsfélögum í Norðlendinga-
fjórðungi, einnig þeim, sem enn
eru utan V. S. N. í næsta blaði
kemur grein um þetta þing, sem
er stórmerkilegt fyrir alian ís-
lenzkan verkalýð.
Flokksþing Framsóknar
Jónas frá Hriflu i hreinum meirihluta. Sam-
þykktir i kjördæmamálinu og rikislögreglumál-
inu á móti samsteypustjórninni. Stjórnin hefir í
hyggju að fresta Alþingi til þess að forða sér
frá falli!
Síðan 5. apríl hefir þriðja
flokksþing „Framsóknarmanna"
setið á rökstólum hér í Reykja-
vik. Er það skipað 230 fulltrúum
hvaðanæfa af landinu, mest kaup-
félagsstjórum og efnaðri bænd-
um, svo og alþingismönnum
„Framsóknarflokksins“.
Þegar þetta þing var kallað
saman í vetur að undirlagi Jón-
asar frá Hriflu og á móti vilja
Ásgeirs Ásgeirssonar og Tryggva
Þórhallssonar, þá var það öllum
vitanlegt, að á því átti að gera
út um það, hverjir völdin hefðu
í „Framsóknarflokknum“, hægri
eða vinstri bitlingamennirnir, Ás-
geir Ásgeirsson og klíkan í kring
um hann, sem er fjárhagslega
ánetjuð íhaldinu og af þeirri
ástæðu vill halda núverandi sam-
steypustjórn áfram, eða Jónas
frá Hriflu og hans menn, sem
vilja steypa samsteypustjóminni
og mynda nýja „Framsóknar-
stjóm“ með stuðningi Alþýðu-
flokksforingj anna.
Það er augljóst mál, að Jónasi
frá Hriflu hefir tekizt að ná mikl-
um meirihluta flokksþingsins til
fylgis við sig í þessari togstreitu.
Meiningamunurinn í þeim málum,
sem fyrir þinginu liggja, er lítil-
fjörlegur eins og venjulegt er,
þegar tvær klíkur, sem báðar til-
heyra yfirstéttinni, berjast sín í
milli. En tillögurnar, sem liggja
fyrir þinginu og samþykktirnar,
sem þegar hafa verið gerðar með
geysilegum atkvæðamun, eru þó
allar stílaðar upp á það, að bregða
fæti fyrir samsteypustjóm íhalds
og „Framsóknar“ og undirbúa
bandalagið milli „Framsóknar" og
Alþýðuflokksins.
Þannig hefir nefnd sú, sem
þingið kaus til þess að gera til-
lögur um lausn kjördæmaskipun-
armálsins, lagt til að þingmönn-
um Reykjavíkur verði fjölgað upp
í 7, að gamla landkjörið, sem
gildir fyrir allt landið, einnig
Reykjavík, verði lagt niður, og í
stað þess komi 6 landkjörnir upp-
bótarþingmenn utan Reykjavíkur,
en að öðru leyti haldist hin
gamla og úrelta kjördæmaskipun
óbreytt. Tala þingmanna megi
ekki fara fram úr 46 (50 í frum-
varpi samsteypustjórnarinnar).
Eiga þessar tillögur að útiloka
allt samkomulag milli íhalds og
Framsóknar og þar með að verða
banabiti samsteypustj ómarinnar.
f ríkislögreglumálinu hefir
flokksþingið einnig gert sam- ■
þykkt, sem gengur á móti ríkis-
lögreglufrumvarpi samsteypu- i
stjórnarinnar, en í öllum aðal-
atriðum er sniðin eftir tillögum |
Jónasar frá Hriflu og Hermanns í
Jónassonar. Gengur hún út á það,
að engin formleg ríkislögregla sé
stofnuð, heldur sé ríkisstjórninni
heimilað að fyrirskipa bæjum,
sem hafa 1000 íbúa eða fleiri að
liafa allt að 2 lögregluþjónum á
hverja 1000 íbúa óg greiða kostn-
að við þá að V«. Að slík lögregla
muni engu síður en hin fyrirhug-
aða ríkislögregla verða notuð á
móti verkalýðnum í vinnudeilum,
vita upphafsmenn þessarar sam-
þykktar ofurvel. Það sýna hin
hlægilegu niðurlagsorð hennar, að
flokksþingið leggi áherzlu á að
lögreglan „sé ekki notuð til þess
að hafa úrslitaáhrif á niðurstöðu
í vinnudeilum^C!). Á móti þessari
samþykkt greiddi aðeins einn
einasti fulltrúi atkvæði, Þorberg-
ur Þorleifsson frá Hólum í Horna-
firði, sem mælti á móti öllum her-
búnaði af hálfu ríkisvalds og
bæjarfélaga, 1 hvaða mynd sem
væri. Allmargir sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Til þess að tryggja það, að
þessum samþykktum flokksþings-
ins verði fylgt einnig á Alþingi,
hefir ný skipulagsskrá verið
samþykkt fyrir „Framsóknar-
flokkinn“, sem ákveður, að „ef
meirihl. miðstjómar og meirihl.
þingmanna flokksins gerir sams-
konar samþykkt um afgreiðslu
máls á Alþingi er sú samþykkt
bmdandi fyrir alla þingmenn
flokksins í því máli“. Þetta
ákvæði vakti á þinginu allmiklar
deilur, en var þó samþykkt með
130 atkvæðum á móti 30.
í miðstjórn flokksins hefir
þingið kosið: Ásgeir Ásgeirsson
ráðherra, Eystein Jónsson skatt-
stjóra, Gísla Guðmundsson rit-
stjóra, Guðbrand Magnússon
framkvæmdarstjóra, Eyjólf Kol-
beins bónda, Hannes Jónsson
dýralækni, Hermann Jónasson
lögreg'lustjóra, Jónas Jónsson frá
Hriflu, Jón Ámason fram-
kvæmdastjóra, Pál Zophóníasson
ráðunaut, Sigurð Kristinsson
framkvæmdastjóra, Sigurþór ól-
afsson bónda, Tryggva Þórhalls-
son bankastjóra, Vigfús Guð-
mundsson frá Borgarnesi og Þor-
stein Briem ráðherra. Eins og sjá
má er yfirgnæfandi hluti mið-
stjórnarinnar skipaður mönnum
Jónasar frá Hriflu.
Það er augljóst mál, að dagar
samsteypustjórnarinar væru tald-
ir, ef samþykktum flokksþingsins
yrði framfylgt af „Framsóknar-
mönnum“ á Alþingi. En til þess
að hindra fyrst um sinn að til
þess komi hefir íhaldið og málalið
þess í Framsókn, Ásgeir Ásgeirs-
son og klíka hans, í hyggju að
fresta Alþingi áður en til at-
kvæðagreiðslu kemur um þau mál,
sem ágreiningurinn er gerður
um: fyrst og fremst kjördæma-
málið.
Fyrir samsteypustjórnina er
íhaldið reiðubúið til þess að
fórna „réttlætismálinu“ einnig' á
þessu þingi.
Kommúnistaflokkur
s" ' F5 Isiands
(Reykjavíkurdeildin)
heldur fund í fundarsalnum við
Bröttugötu þriðjudaginn 11. apríl
kl. 8i/2 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Samfylkingartilboð til Alþýðu-
flokksins.
2. Akureyrarverkfallið.
3. Útlendar fréttir(Dýrleif Árna-
dóttir).
Reykjavíkurdeildin.
tMmHassmBBwœmixaEBmmaamamBMm
F. U. K.
Kaffikvöld
heldur Félag ungra kommúnista
á fimmtudag (skírdag) kl. 8V2 í
K.R.-húsinu uppi.
Til skemmtunar verður:
Ræða.
Upplestur.
Leikhópar.
Söngur og fleira.
Félagar fjölmennið og takið með
ykkur gesti.
Aðgöngumiðar fást á afgreiðslu
V erklýðsblaðsins.
Skemtifundur
\
verður haldinn' af F. U. K. í
Bröttugötu laugardaginn 5. apríl
kl. 9 e. h .
Fjölbreytt skemmtiskrá.
Skemmtifundurinn, sem átti að
vera síðastliðinn laugardag, verð-
ur miðvikudaginn 12. apríl kl. 9
e. h. með þeirri skemmtiskrá, sem
búið var að auglýsa.
Héðmn Valdimarsson
agent Hitlers á Islandi
Héðinn Valdimarsson flytur
lesendum Alþýðublaðsins þá
fregn, að Alþjóðasamband komm-
únista hafi rekið foringja þýzka
kommúnistaflokksins, félaga Thál-
mann, úr flokknum, fyrir „ósæmi-
lega framkomu“.
Þessi fregn er frá lygamiðstöð-
inni í Riga, sem flutt hefir flest-
ar reifarasögurnar um „þjóðnýt-
ingu kvenna“ í Rússlandi 0. s.
frv. Fer vel á því, að Héðinn ger-
ist boðberi hinnar illræmdu mið-
stöðvar gagnbyltingarmannanna í
Riga.
Það, sem síðast hefir spurzt
af félaga Thálmann, er að hann
sást liggjandi á gólfinu í pynt-
ingarklefa Nazistanna, aðfram-
kominn eftir ægilegar misþyrm-
ingar. Enginn veit með vissu,
hvort hann er lífs eða liðinn.
Meðan lífið er kvalið úr for-
ingja þýzka verkalýðsins, situr
Uéðinn Valdimarsson í luxusíbúð
sinni og vegur aftan að honum
með níði Hitlersbandíttanna.
Um knéfall, eigi aðeins forseta
þýzka Alþýðuflokksins, OttoWels,
heldur flokksins í heild, fyrir
Hitler, hefir blaðið fengið nánari
fregnir en útvarpsfrétt þá, sem
birt var í síðasta bláði, og verð-
ur nánar skýrt frá því í næsta
blaði.