Verklýðsblaðið - 20.06.1933, Page 2
inu útrýmt og kjör v^rkamanna
og bænda bætt stórkostlega.
Takmarkið, sem stefnt er að,
er:
Fullkomið félagslegt frelsi og
þjóðfrelsi íslenzku alþýðunnar!
Útstrikun skuldanna við er-
lenda auðvaldið!
Tafarlaus aðskilnaður við Dan- j
mörku.
Sköpun sósíalismans að dæmi
Sovét-ríkjanna!
Vináttu- og verzlunar-bandaJag
við Sóvétríkin!
Verkamanna- og bændastjórn á
íslandi.
Kommúnistaflokkur Islands.
■ ■
Oryggisleysið
á vinnustððvunum-
Glæpsamleg vanræksla
byggingarmeistara verð-
ur einum verkamanni að
bana.
S. 1. miðvikudag vildi það til
við hús, sem er í smíðum við j
Öldugötu, að lyftupallur frá
hrærivél féll niður og lenti á ein- j
um manninum, sem lét í hrærivél-
ina, Páli Finnbogasyni, Grettis-
götu 43 A, og meiddist hann svo
ógurlega, að hann lést samdæg-
urs. Var sérstök heppni, að ekki
meiddust fleiri. Sá er stóð uppi á
pallinum og tók á móti löguninni,
slapp með naumindum inn á loft-
ið, og sá, er tók úr hrærivélínni,
komst undir hana og sakaði ekki.
Ekki hefir nein rannsókn farið
fram út af þessu hræðilega atviki
svo blaðið viti til, enda mun hin
borgaralega löggæzla hafa um
annað að hugsa en >að hvernig
verkamenn hrökkva upp af. Og
borgarablöðin tala svo lítið um
þetta slys, sem þau geta. Þau
vilja ekki gera sig sek um það,
að vekja eftirtekt á svona glæp-
samlegu athæfi, sem hér hefir
átt sér stað, þar sem nokkra
króna hagnaður atvinnurekend-
anna lagði líf og limi verkamann-
anna á fórnarstallinn með köldu
blóði. Frágangur lyftupallsins var
svo lélegur, að hann var hvergi
festur við húsið og lét allur til
fyrir Vindi og átökum lyftunnar,
fyrir augunum á byggingarmeist-
aranum og byggingarfulltrúa bæj-
arins, athugasemdalaust.
Verkamenn! Krafa okkar við-
víkjandi þessu glæpsamlega at-
viki verður að vera: Fullkomin
rannsókn á slysinu og ábyrgð á
hendur þeim manni, er þetta
verk hafði með höndum, og að
hann verði sviftur réttindum til
að standa fyrir byggingum fi-am-
vegis.
Þegar slysið varð við Þjóðleik-
húsið í fyrra, krafðist Verklýðs-
blaðið þess, að málið yrði rann-
sakað. Því var ekki sinnt. 1 kjöl-
far þessarar óverjandi yfirhilm-
ingar, kemur svo þetta slys.
Fleiri munu á eftir koma, ef
ekki verður tekið í taumana.
Þetta atvik sýnir okkur ljóst
nauðsynina á samtökum verka-
mannanna á hverjum vinnustað
— vinnustöðvarsamtök, er sýni
þann styrkleika, að atvinnurek-
andinn getur ekki leyft sér hvaða
ósvífni sem er gagnvart verka-
r. önnunum.
Atvinnuleysið.
Síðastliðinn miðvikudag héldu
samfylkingarsamtök sjómanna
og hafnarverkamanna fund til
þess að ræða atvinnuleysið í
bænum, kröfur atvinnuleysingja
og skipulagningu á baráttu
þeirra.
Fundurinn var á einu máli um
baráttu fyrir þeirri sjálfsögðu
réttlætiskröfu verkalýðsins, að
allir atvinnuleysingjar fái vinnu
eða fullnægjandi atvinnuleysis-
tryggingu og styrki. Sem næstu
sporin í atvinnuleysisbaráttunni
áleit fundurinn skipulagning á
baráttunni fyrir eftirfarandi
stundarkröfum:
1. Að hafin sé þegar atvinnu-
bótavinna fyrir a. m. k. 400
manna.
2. Að bærinn setji þegar á
stofn ókeypis mötuneyti fyrir at-
vinnuleysingja.
Ennfremur var rætt um nauð-
synina á ókeypis útbýtingu
þeirra matvæla (fisk o. fl.), sem
nóg er til af í landinu í höndum
auðmannanna.
Samfylkingarsamtökin ákváðu
að boða til almenns atvinnuleys-
ingjafundar á miðvikudaginn 21.
þ. m. til þess að taka endanlegar
ákvarðanir um kröfur atvinnu-
leysingjanna og baráttuna fyrir
þeim í samráði við sem flesta at-
vinnuleysingja. Það er því alveg
knýjandi nauðsyn að sem flestir
atvinnuleysingjar mæti á fundin-
um og ræði um málefni sín.
Atvinnuleysingjar! Vinnuleysið
er þegar orðið meira en á sama
'tíma í fyrra. Með aðstoð hins
nýstofnaða stéttarhers atvinnu-
rekendastéttarinnar hyggst auð-
valdið að bæla niður kröfur ykkar
um vinnu. Og hið aukna atvinnu-
leysi ykkar og skort ætla atvinnu-
rekendur að notfæra sér til þess
Farið ekki úr bænum
án þess að kjósa.
Allir þeir, sem hafa í hyggju að
fara úr bænum fyrir kjördag
þann 16. júní geta nú þegar kos-
ið. Kosning fer fram í miðbæjar-
barnaskólanum daglega klukkan
10—12 og 1—5 (sbr. augl. lög-
manns á öðrum stað í blaðinu).
Látið ekki dragast fram á síð-
asta dag að greiða atkvæði.
Skrifstofa B-listans í Bröttu-
að ráðast á laun verkalýðsins í
landinu yfirleitt. Ríkisauðvaldrð
hefir riðið á vaðið og lækkað stór-
kostlega laun vegavinnumanna.
Útgerðarmenn eru nú að undir-
búa launaárás á kjör alls verka-
lýðs á sjó og landi við síldar-
vinnu.
Til þess að koma fram kröfum
sínum og hindra launalækkunar-
tilraunir atvinnurekenda, þurfa
atvinnuleysingjar og vinnandi
verkalýður að taka höndum sam-
an og skapa virkilega baráttu-
samfylkingu. Lærdómamir frá 9.
nóv. f. ár sanna okkur það, að
samfylkingarbarátta verkalýðsins
er eina leiðin sem tryggir sigur-
vænlegan árangur. Að sama skapi
og ríkisvaldið og atvinnurekendur
eru nú betur vopnaðir (ríkislög-
reglan o. s. frv.) heldur en í
fyrra, að sama skapi verður
verkalýðurinn nú að treysta fylk-
ingar sínar og mynda stærri og
öflugri samfylgingu í baráttunni
en nokkru sinni fyr.
Hver einasti samfylkingarmað-
ur verður að skoða það sem
skyldu sína að taka virkan þátt
í því, að skipuleggja þá samfylk-
ingarbaráttu, sem framundan er,
með því að sýna stéttarbræðrum
sínum — atvinnuleysingjum og
verkamönnum á vinnustöðvunum
— fram á, að þeir verði einnig
að taka þátt í baráttu stéttar
sinnar gegn atvinnuleysinu og
árásum atvinnurekenda á lífskjör
verkalýðsins.
Á atvinnuleysingjafundinum á
morgun , (21. þ. m.) þurfa at-
vinnuleysingjar að fjölmenna. A
þeim fundi verður að hefja skipu-
lagningu á baráttu atvinnuleys-
ingjanna fyrir vinnu, en gegn yf-
irvofandi árásum auðvaldsins á
lífskjör verkalýðsins.
Samfylkingarmaður.
götu (Sími 2184) gefur allar nán-
ari upplýsingar viðvíkjandi kosn-
ingunni.
Þið, sem vitið af mönnum, sem
fara úr bænum fyrir kjördag
eruð beðnir að gefa skrifstofunni
j upp nöfn þeirra og aðstoða við að
! láta þá kjósa.
j Kjósið B-listann — lista Komm-
i únistaflokksins
2184
•z simi VerklýðsblaBsIn*.
Bókadeild Menningarsjóðs.
Hin nýja bók
Ðr. Einars Ól. Sveinssonar:
U m N j á 1 u
bost hjá bóksölum. er se-lja bickur Menn-
ingarsjóös. Verð ób. 10 ki\, en 14 kr. í
fióöu skimibandi, oir 18 kr. i vönduðu
skinubnndi.
Aöalútsala iij i :
E. P. BRIE
Framboð flolclcanna
við Alþingiskosningar
16. Júlí.
Reykjavik: B-listi (K.): Brynjólfnr
Bjamason, Guðjón Benediktsson vkm.,
Guðbrandur Guðmundsson vkm.,
Stefán Pétursson. A-listi (A.): Héðinn
Vald., Sigurj. Ólafsson, Jónína Jóna-
tansd., Sigurður Ólafsson. C-Iisti (S.):
Jakob Möller, Magnús Jónsson, Pétur
Halldórsson, Jóhann Möller. — Hafn-
arfjörðnr: Bjöm Bjamason vkm. (K.),
Kjartan Ólafsson (A.), Bjami Snæ-
bjarnarson (S.). — Gullbr.-Kjósars.:
Hjörtur Helgason vkm. (K.), Guð-
brandur Jónsson (A.), Klemens Jóns-
son (F.), Ólafur Thors (S.). — Borg-
arfjarðars.: Sigurjón Jónsson (A.),
Jón Hannesson (F.), Pétur Ottesen
(S.). — Mýrasýsla: Matthías Guð-
bjartsson vkm. (K.), Hallbjörn Hall-
dórsson (A.), Bjami Ásgeirsson (F.),
Torfi Hjartarson (S.). — Snæfellsnes-
Hnappad.s.: Jón Bald. (A.), Hannes
Jónsson (F.), Thor Thors (S.), Arthur
Guðmundsson og Óskar Clausen ut-
anflokka. — Dalasýsla: þorst. Briem
(F.), þorst. þorst. (S.). — Barða-
strandars.: Andrés Straumland (K.),
Páll þorbjörnsson (A.), Bergur Jóns-
son (F.), Sig. Kristjánsson (S.) —
Vestur-Ísaíj.: Gunnar Magnússon (A.),
Ásgeir Ásg. (F.), Guðm. Benedikts-
son (S.) — Ísaíjörður: Jón Rafnsson
sjóm. (K)., Finnur Jónsson (A.), Jó-
hann þorsteinsson (S.). — Norður-
ísafj.: Halldór Ólafsson vkm. (K.),
Vilmundur Jónsson (A.), Jón Auð-
unn Jónsson (S.). — Strandasýsla:
Tryggvi þórhallsson (F.). — Vestnr-
Húnav.s.: Ingólfur ' Gunnlaugsson
vkm. (K.), Hannes Jónsson (F.), þór-
arinn Jónsson (S.). — Austur-Húna-
v.sýsla: Erling Ellingsen (K.), Guðm.
Ólafsson (F.), Jón Pálmason (S.). —
Skagafjarðars. Elísabet Eiríksdóttir,
Pétur Laxdal (K.), Guðjón Baldvins-
son (A.), Steingrímur Steinþórsson,
Brynleifur Tobíasson (F.), Magnús
Guðm., Jón Sigurðsson (S.). — Eyja-
ijarðars.: Gunnar Jóhannsson vkm,
Steingrímur Aðalsteinsson vkm. (K.),
Felix Guðmundsson, Jóh. F. Guðm.
(A.), Bernharð Stefánsson, Einar
Árnason (F.), Einar Jónasson), Garð-
ar þorst. (S.) — Akureyri: Einar 01-
geirsson (K.), St. Jóh. Stefánsson
(A.), Árni Jóhannsson' (F.), Guð-
brandur ísberg (S.). — Suður-þing-
eyjars.: Aðalbjöra Pétursson (K.),
Ingólfur Bjarnason (F.), Kári Sigur-
björnsson (S.), Jón H. þorbergsson
utanflokka. — Norður-pingeyjarsýsla:
Björn Kristjánsson (F.), Júlíus Hav-
steen (S.), Benjamín Sigvaldason ut-
aníiokka. — NorSur-Múlas:. Gunnar
Bsnediktsson, Sigurður Árnason,
bóndi, Heiðarseli (K.), Páll Her-
mannsson, Halldór Stefánsson (F.),
Gísli Helgason, Jón Sveinsson (S.). —
Seyðisfjörður: Haraldur Guðm. (A.),
Lárus Jóh. (S.). — Suður-Múlas.:
Arniinnur Jónsson, Jens Figved (K.),
Jónas Guðm., Arni Ágústsson (A.),
Ingvar Pálmason, Evsteinn Jónsson
(F.), Magnús Gíslason, Jón Pálsson
(S.), — Austur-Skaftafellssýsla: Ei-
ríkur Helgason (A.), þorleifur Jóns-
son (F.), Stefón Jónsson (S.). —
Vestur-Skaftaiellss.: Lárus Helgason
(F.), Gísli Sveinsson (S.). — Rangár-
vollos.: Sveinbj. Högnason, Páll Zop.
(F.), Jón Ólafsson, Pétur Magnússon
(S.).-—Árnessýsia: Haukur Björnsson,
Magnús Magnússon vkm. (K.), Ein-
ar Magnússon, lngimar Jónsson (A.),
Jör. Brynj., Magn. Torfason (F.), Ei-
rikur’ Einarsson, Luövík Nordal (S.).
Vestmannaeyjar: ísleifur Högnason
(K.), Guðm. Pét. (A.), Jóhann Jósefs-
son (S.).