Verklýðsblaðið - 05.10.1934, Side 3
VERKLÝÐSBLAÐIÐ
i tugthúsið með bankaþjófinn Sig. Eggerz
Sigurður Eggerz dæmir ión Rafnsson og 7 akureyrska verkamenn
i fangelsi. - Heímtum fulla uppgjöf saka fyrir baráttumenn þá, sem
dæmdir eru fyrir þátttöku i frelsisbaráttu verkalýðsins.
VERKLÝÐSBLAÐIÐ
Útgefandi: Kommúniistafl. íslands.
Ábyrgðarm.: Brynj. Bjamason.
Ritnefnd til viðtals þriðjudaga
og fimmtudaga 6—7.
Afgr.: Bröttugötu 6, Rvík.
Sími 2184. — Post-box 57.
KOMMÚNISTAPLOKKUR
ISLANDS
(Deild úr Alþj.samb. kommúnista)
Skrifstofa: Bröttugötu 6.
Viðtalstími framkv.n. dagl. 6—7.
REYKJAVÍKURDEILD KFÍ
Skrifstofa: Bröttugötu 6.
Viðtalst. deildarstj. virka daga 6-7
Sameiginl. viðtalst fastra nefnda
flokks- og deildarstjórna:
Fræðslu- og útbreiðslunefnd
mánud. 6—7.
Skipulagsnefnd þrd. 6—7.
Faglegur leiðtogi iniðv.d. 6—7.
Fjárhagsnefnd miðv.d. og laugard.
kl. 6—7.
Kjðtverðhækkunin
Sigurður Eggerz ætti sem
fyrv. íslandsbankastjóri fyrtr
löngu að vera kominn í tugthús-
ið með kumpánum sínum Claes-
sen og fleirum. í staðinn situr
hann sem sýslumaður og bæjar-
fógeti á Akureyri, erindreki sain-
bræðslustjórnarinnar, heimtar
þar byggt tugthús og lögreglu
fjölgað og kveður nú upp hinn
svívirðilegasta stéttardóm ut af
Borðeyrar-deilunni.
Hann dæmir Jón Rafnsson í 2
mánaða óskilorðsbundið fangelsi
og 7 aðra verklýðssinna á Akur-
eyri, hvern í mánaðarfangelsi.
Þetta er hámark svívirðingar-
innar undir „stjóm hinna vinn-
andi stétta“.
Bandíttar burgeisastéttarinnar,
sem sjálfir eru stórbrotlegir við
borgaraleg lög, eru settir sem
dómarar yfir þá, sem berjast
fyrir rétti hins fátæka, fyrir
samtökum verkalýðsins, fyrir
sigri allra, sem kúgaðir ern og
þjáðir.
Verkalýðurinn heimtar Is-
landsbanka'nneykslið . tafarlaust
tekið fyrir og hina seku í því
tafarlaust fangelsaða, — en fulla
sakaruppgjöf undir eins fyrir
verklýðssinna þá, sem nú hafa
verið dæmdir.
Mðrg hindrnð fJOIskyldur húsnæðislausar
Hvemig sr. Ingimar & Co.
í kjötverðlagsnefndinni
hækka verðið.
Kjötinu er skift í 3 flokka og
er selt þannig í heildsölu:
Fyrir 50 kg. af fyrsta flokks
kjöti varð að borga í fyrra
kr. 4SÍ00 — en nú fcr. 57.50.
Fyrir mismuninn kr. 12.50
hefði í fyrra mátt fá 13,88 kg.
Hækkunin á dýrasta kjötinu er
því 28%.
Fyrir 50 kg. af annars flokks
kjöti varð að borga í fyrra
kr. 40.00 — en nú kr. 52.00.
Fyrir mismuninn kr. 12.50
hefði í fyrra mátt fá 15,62 kg.
Hækkunin á 2. flokki er því
31,25%.
Fyrir 50 kg, af ódýrasta kjöt-
inu varð að borga í fyrra
kr. 30.00 — en nú kr. 47.50.
Fyrir mismuninn kr. 17.50
hefði í fyrra mátt fá 29,16 kg.
Hækkunin á ódýrasta kjötinu,
því kjöti sem fátækur verkalýð-
ur helzt getur veitt sér, nemur
58,5%.
Þannig hugsar Framsóknai'- og
krataklíkan um1 hagsmuni alþýð-
unnar. — Það er ekki nóg með
að þær hækki nauðsynjar henn-
ar í verði.
Verkamaðurinn er látinn borga
kjötverðhækkim á kjötkaupum
burgeisanna.
MJólkurverð hækicar
Það er orðið heldur hljótt um
kröfu Sigurðar Einárssonar og
loforð Alþýðuflokksins um lækk-
un mjólkurverðsins.
Því háværari verður krafa
verkalýðsins:
Mjólkurverðið niður í 35 aura!
að verða. — Fyrsti árangur hins
„vísindalega“ skipulags á mjólk-
ursölunni er kominn í ljós.
k^jólkurhringurinn hefir hækk-
að mjólkurverðið til útsölustað-
anna.
Sölulaun útsölumanna * hafa
verið lækkuð úr 15% niður í
rúmlega 9%.
K. F. í. heimtar leigunám
á auðmannaíbúðum.
Aldrei hefir ástandið með hús-
næði verið eins ógurlegt og nú.
Verkalýðsfjölskyldur eru hús-
næðislausar svo hundruðum
skiftir. Franski spítalinn er næst-
um íullur af fólki, sem fær að
búa þar til bráðabirgða. — En
hundruð fjölskyldna hafa bók-
staflega verið leystar upp og
meðlimum. þeirra verið holað nið-
ur hér og hvar. Og í skjóli þessa
húsnæðisleysis leyfa sumir hús-
eigendur sér annað eins og það að
vísa fjölskyldum burt úr húsi,
fyrst þær ekki geti greitt húsa-
leig-u fyrir allan veturinn fyrir-
fram. — En hvorki bæjar_ né
ríkisstjórn hreyfa legg né lið, og
öll blöðin þegja.
Verkalýðurinn heimtai- að taf-
arlaust sé ráðin bót á þessu
Kaupfélagsstjómin heldur
leynifund með nokkrum út-
völdum kaupfélagsmeðlim-
um.
í heilt ár hefir kratastjórninni í
Kaupfélagi Alþýðu verið ljóst um
óreiðuna í félaginu. Hún hefir
þrátt fyrir það aldrei kallað sam-
an félagsfund. Hún hefir brotið
skýlaus ákvæði í lögum félagsins
og landslögum um að kalla sam-
an aðalfund.
Aðalfund átti að halda í aprd,
— enn hefir hann ekki verið
boðaður.
Ilvar kemur spai-naðurinn
fram? Hjá neytendum? Nei!
Auknar tekjur fyrir bændur?
Nei!
Aðeins aukinn gróði í vasa
mjólkurhringsins.
ástandi. Það er nægilegt húsnæði
til handa öllum, en skiptingin er
svívirðileg. Hótel Borg stendur
hálfauð — á ríkisins kostnað —
og luxusíbúðir burgeisanna ó-
skattlagðar. Við heimtum hluta af
luxusíbúðunum og öðrum lítt not-
uðum stórhýsum tafarlanst tekið
leigunámi hiuida hiniun húsnæð-
islausu — með bráðabirgðalögum,
ef ekki er hægt öðru vísi.
Á bæjarstjómarfundi 1 gær bar
fulltrúi K. F. í. fram tillögu um
að fá heimild til að taka leigu-
námi íbúðir húsabraskara og auð-
manna, sem þeir þurfa elíki að
nota eða standa auðar, til að bæta
úr húsnæðisvandræðum fátækasta
verkalýðsins, sem er nú á göt-
unni.
thaldið felldi tillöguna. En
hvað gera nú „vinir alþýðunnar“ í
ríkisstjóminni? Vilja þeir bæta
úr þessu vandamáli verkalýðsins ?
Kaupfélagsstjómin hefir mán-
uðum saman hilmað yfir stór-
kostlegan þjófnað í kaupfélag-
inu, án þess að skýra meðlimum
þess frá því. —
Hún hefir neitað að svara fyr-
irspurnum löglegra meðlima fé-
lagsins um rekstur þess.
Eftir því sem frézt hefir nem-
ur tjónið hjá Kaupfélagi Alþýðu.
33 þúsund krónum.
Mestu af upphæðinni hefir verið
stolið smámsaman. Hvar er nú
eftirlitið frá hendi kratastjómar-
innar? Iivar er starf þeirra hátt-
virtu endurskoðenda, sem áttu að
leggja fram endurskoðaða reikn-
inga félagsins fyrir aðalfund í
apríl? Verklýðsblaðið getur upp-
lýst, að annar þessara endur-
skoðenda er Pétur Ilalldórsson,
sonui- Bmnabótafélagsforstjór-.
Þj áf naðurínn
i Katiptélagi Aiþýði*
Ný kolalög hafa fundizt í Kusnezn-
kolahéruðunum í -Síheríu. Talið er,
að hin nýfundnu kolalög nemi 370
miljónum smálesta. þessi nýi kola-
fundur hefir stórkostlega þýðingu
fyrir eflingu iðnaðarins í iðnaðar-
umdæmi því, sem skapazt hefir á
þessum slóðum vegna kolaauðlegð-
arinnar, og nefnt er Kusbas.
„Littke“ leiðangurinn. 20. sept s. 1.
kom ísbrjóturinn „Littke" til Mur-
mansk eftir 83 daga ferð norður og
vestur um Síbiríu. ísbrjóturinn lagði
af stað frá Vladivostok 28. júní í
sumar, og leiðangurinn hefir leyst af
hendi mikilsverðar vísindarannsókn-
ir á þessari för. „Littke“ hjálpaði
nokkrum skipum, sem voru innikró-
uð í ísnum, með því að brjóta þeim
leið út í opinn sjó. þetta er í fyrsta
sinn sem nokkurt skip fer í einum
áfanga norðurleiðina, frá Kyrrahafi
til Hvítahafs.
Grænmetisrækt í 4000 metra hæð.
Vísindaleiðangri jurtalíffræþingsins
Bararoffs prófessors hefir tekizt að
rækta ýmsar grænmetistegundir á
tilraunasvæði, sem búið var til í
austurhluta Pamírfjallanna í 4000
metra hæð. í sumar fengust þroskað-
ar hreðkur og ýmsar káltegundir.
Kartöfhir þrífast þar einnig ágæt-
iega.
ans, sá sonur, sem eignaðist vill-
uua upp við Smáragötu á þann
hátt, sem Alþýðublaðið lofaði há-
tíðlega að rannsaka ofan í kjöl-
inn.
Kaupfélagsstjórnin ber fyrst
og fremst ábyrgð á óreiðu félags-
ins. Hún heldur enn áfram ský-
lausum lagabrotum og ofbeldi
gagnvart rétti meðlimanna. 1
vikunni sem leið boðaði hún í
stjórnarnafni til leynifundar með
nokkrum útvöldum meðlimum.
Á fundi þessum voru teknar
undirbúningsákvarðanir um
framtíð félagsins.
Meðlimir kaupfélagsins verða
að krefjast þess, að starf kaup-
félagsstjómarinnar verði rann-
sakað. Það verður að rannsaka
meira. Það þarf að draga fram
í dagsljósið alla sögu kratakaup-
félaganpa og afskifti kratabrodd-
anna af þeim. Það þarf að endur-
skoða söluna á kaupfélagseignum
í tíð Haraldar Guðmundssonar til
Silla & Valda og allt það mál. —
Verklýðsblaðið mun gera sitt til
þess að stuðla að þeirri rann-
sókn.
Broddunum í Alþýðuflokknum
skal aðeins gefið það heilræði
að hugsa dálítið rneira um á-
stand heimabúskaparins og
kjafta dálítið mimia um viðreisn
jijóðarbúskaparins.