Verklýðsblaðið

Issue

Verklýðsblaðið - 22.10.1934, Page 2

Verklýðsblaðið - 22.10.1934, Page 2
TERKLÝÐSBLAÐIÐ FroL vinnwl'óáyum Er þetta það, sem koma skalP Erindi eem Þorbergur Þórðarsoo rithfifundar flytur um Rússlandsför sína i Iðnó þriðjudaginn 23. október klnkkan 8,30 siddegis. Aðgöngumiðar á eina krónu seldir í Hljóðfærahúsinu, hjá Sigf. Eymundsen og við innganginn. Halldór Hiljan Laxness talar á „silfurplötn". Pantið tíma hjá Atla Olafssyni í síma 3015, 3656 eða 2756. — HLJÓÐRITUNARSTÖÐIN, Bankastræti 7 (uppi). Opin 3—7. Sími 3656. Karlm.>vetrarfrakkar sérstaklega fallegir, nýkomnir Slitið ekki kröftunum ad óþörf'u! Sparið peningana í kreppuhni! Bónið gólfin úr Mána-bórai Skóna úr MÁNA-SKÓÁBURÐI, og húsgögnin úr REX-húsgagnalegi. Smjörlíki hinna vandlátu - Blái borðinn - Bömin þekkja hann á bragðinu. Frá Dagsbrúnarfundinum i gær Allar hagsmunakröfur verkaiýðsins eru »klofningstillðgur kommúnista« segir Olafur Fríðriksson Á Dagsbrúnarfundi í gær voru kosnir fulltrúar á Alþ.sambands- þing. Kom sú lcosning flestum á óvart, enda mun fundurinn tæpl. hafa verið auglýstur með lögleg- um fyrirvara. — Samfylkingar- menn í „Dagsbrún” lögðu fram stefnuyfirlýsingu um brýnustu hagsmunamál félagsmanna. — Listi þeirra fékk 45 atkv., en listi kratanna rúm 100 (samkv. þeirra eigin vafasömui talningu). Á fundinum voru bomar frami eftirfarandi tillögur: Tillaga um að leiðrétta þegar í stað taxtabrotin á vörubílstjórum í bæjarvinnunni.' Mótmæli gegn hækkun benzín- tollsins. Áskorun til Alþingis, að sam- þykkja lög um atvinnuleysis- tryggingar. Krafa til bæjarstjómar um að fjölga í atvinnubótaviimunni upp í 400 manns. Krafa um lækkun mjólkurinnar og kjötsins. t umboði kratabroddanna er Ól. Friðriksson látinn tala á móti öllum þessum tillögum. Vora rökin meðal annars hroðalegar sögur, sem virtust teknar úr þýzkum nazistablöðum, um at- vinnuleysi í Rússlandi(!) Létu broddamir hann bera fram til- lögu um að vísa öllum þessum ' tillögum frá og til Alþýðusam- bandsþings, þar sem hér væri um klofningstillögur kommúnista að ræða!! Þessi óheyrilega tillaga var samþ. samkvæmt talningu krat- anna sjálfra. Þessi tillaga er skýlaus yfirlýs- ing um að Alþýðusambandsþing- ið eigi að vera andvígt öllum þessum hagsmunakröfum. Enda er hér um að ræða kröfur, sem verkalýðurinn berst fyrir í dag, en þing Alþ.samb. verður seint í nóvember. Iíér er líka um mjög þýðing- armikla yfirlýsingu að ræða, sem sé þá, að öll barátta fyrir hags- munamálum verkalýðsins, heitir á máli krataforingjanna: „klofn- ingsstarfsemi kommúnista". Dagsbrúnarmenn! Svona er verið að fara með félag ykkar! Látið þetta ekki viðgangast. Það er á valdi ykkar sjálfra, að hindra þessa eyðileggingarstarf- semi, með þvi að fjölmenna á fundina. Sparið penínga með því að kaupa benzín og smurningsolíur hjá H.f. Nafta Verklýðsráðstefnu heldur Verklýðssamband Norðurlands, er hefst í Reykjavík 15. nóv. Helztu dagskrármál: Kreppan og áhrif hennar á kjör verkalýðsins. Baráttan gegn atvinnojeysinú og hlutaráðningunni. Nauðsyn á sameÍTiiiigu verkalýðshreyfingarinnar og skipu- lagnmgu samfylkingarinnar. (Nákvæm dagskrá auglýst síðar). Rétí til að senda fulltrúa á ráðstefnuna hafa: 1) Öll vörklýðsfélög á Islandi (1 fyrir félagið og 1 fyrir hverja 100 meðlimi og brot úr 100). 2) Öll vinnustöðvasamtök og samfylk- ingarlið, eftir sömu reglum. 3) Stjóm Alþýðusambands íslands. Sé meirihluti einhvers verklýðsfélags andvígur að senda full- trúa á ráðstefnuna, hefir minnihlutinn rétt til að senda fulltrúa . fyrir sig. Akureyri, 15. okt. 1934 Stjóm Verklýðssambands Norðurlands. Orífanda kaffi er drýgst!

x

Verklýðsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.