Verklýðsblaðið - 11.06.1935, Blaðsíða 3
verklyðsblaöið
VERKLÝÐSBLAÐIÐ
TJtgefandi: Kommúnistafl. íslands.
Ábyrgðarm.: Brynj. Bjarnason.
Ritnefnd til viðtals þriðjudaga
og fimmtudaga 6—7.
Afgr.: Vatnsstíg 3 (þriðju hœð).
Sími 2184. — Póstbox 57.
Prentsm. Acta.
KOMMÚNISTAFLOKKUR
ÍSLANDS
(Deild úr Alþj.samb. kommúnista)
Skrifstofa: Vatnsstíg 3 (3. hæð).
Viðtalstími framkv.n. dagi. 6—7.
REYKJAVÍKURDEILD KFÍ
Skrifstofa: Vatnsstíg 3 (3. hæð).
Viðtaist. deildarstj. virka daga 6-7
Sameiginl. viðtalst. fastra nefnda
flokks- og deildarstjórna:
Fræðslu- og útbreiðslunefnd
mánud. 6—7.
Skipulagsnefnd miðvd. 8—9.
Fjárhagsnefnd miðvd. 8—9.
Faglegur leiðtogi þrd. 6—-7.
Mjólkurmálið
„Viðoaandi laasa“
Mjólkurfélagið fær 100 þús.
kr. aukagróða á ári
Viðunandi láu'sn fengin á
m'jólkurmálinu, segir Morgunblað-
ið. Nýja dagblaðið hefir gefið
enn eina . skýringu á ánægju
Sjálfstæðismanna.
Eyjólfur Jóhannsson þóttist
ekki ánægður með þátttöku' aust-
anbúænna í sfcjóm samsölunnar,
og Sjálfstæðisflokkurinn vildi
nota sér óánægju fjöldans til
pólitísks framdráttar. En reynsl-
an sýndi, að „trúnaðarmenn“
austanbúanna voru reiðubúnir að
vera þjónustur stórlaxanna í
Mjólkurfélagi Reykjavíkur. Þeir
vorú reiðubúnir að eyðileggja
mjólkurmarkað austanbúanna
með því að halda sölúverðinu sem
hæstú. Fleira bætist við, samkv.
frásögn N. dbl.
Mjólkurfélag Reykjavikur fær
3 aura fyrir hreinsun á hverjum
mjólkurlítra. Á Akúreyri er sá
kostnaður 2 aurar. Fyrir flöskur
2 aura á lítra. Á Akureyri er sá
kostnaður Vz eyrir. Þessi kostn-
aður á ekki að þurfa að vera
meiri hér en á Akúreyri. Með
13300 lítra sölu á dag græðir
Mjólkurfélag Reykjavíkur því á
viðskiptúnum daglega, sem hér
segir:
Á hreinsun.........kr. 133,00
Á flöskum...........— 199,50
Samtals kr. 332,50
Það er ekki furða, þótt Mjólk-
urfélag Reykjavíkur, Sjálfstæðis-
flokkurinn, Thor Jensen ogMorg-
unblaðið sé ánægt með þessa
„lausn“ á málinu. Rúmar 100
þús. kr. er þénustan hjá Mjólkur-
félaginu yfir árið, og það þótt
sölunni sé haldið svona niðri.
Þetta er skatturinn, sem smá-
bændurnir verða að bera að sín-
um hluta á meðan verið er að
eyðileggja fyrir þeim mjólku'r-
markaðinn.
Morgunblaðinu fer að verða
Bæjarfulftrúar Atþýðuflokhsíns
berjast fyrir stefnu íhaldsins
Morgunblaðið þakkar
Morgunblaðið hefir varla við
að þakka Alþýðuflokksforingjun-
um liðveizlu þeirra.
Á sunnudaginn þakkar það nú
Ólafi Friðrikssyni fyrir, áð hann
skuli hafa staðið með stefnu
íhaldsins í því að finnast sjálf-
sagt að vörubílstjórarnir „slægju
af“ taxta sínum, þegar um milda
flutninga væri að ræða. En Ól-
afur var þá að deila á Björn
Bjarnason, fulltrúa K. F. 1., fyrir
að hann réðst á allan afslátt í
Sogsdeilunni sem kauplækkun' og
ávítti harðlega bæjarstjórn fyrir
alla framkomu Jiennar í því rnáli.
Alþbl. gætir þess vel að þegja
um þetta allt saman. Það er yfir-
leitt sagnafátt um Sogsdeiluna,
en grípur í það sem síðasta hálm-
strá, að reyna að ljúga því upp
á einstaka kommúnista að þeir
standi með því. Þessi viðleitni til
að reyna að klína sér utan í ein-
staka kommúnista og draga þá
með sér niður í sorpið, sýnir bezt,
að Alþbl. veit hvernig flokkur
þess hefir gerspillt fyrir sér með^l
verkalýðsins í Sogsdeilunni, en
Kommúnistaflokkurinn unnið á,
og þraútalendingin er því að
hrópa: „Kommúnistarnir eru ek"k-
| ert betr: en við“!!
ur þessari samþykkt sýslufund-
ar? Svarið við þessu liggur mjög
í augum uppi. Hræðslan við vax-
andi fylgi kommúnistanna og
aukið traust þeirra hjá æsku-
lýðnum, ef þeir fengju að starfa
óhindrað að áhugamálum félags-
ins hefir fyrst og fremst rekið
Rákon til þessa örþrifaráðs. Og
hinsvegar persónulegir hagsmun-
ir Hákonar og hans nánustu.
Með þessu hyggst hann að draga
verkefnin og starfsmöguleikana
úr höndum ungmennafélagsins og
með þeim veiku forsendum, að
hann þurfi ekki nema 120 kr.
styrk til kennslunnar í stað þess
150 kr. styrks, sem félagið hefir
íengið. En það, sem Hákon fær
fyrst og fremst áorkað með þessu)
óþokkabragði sínu .er það, að þeir
möguleikar minnka, að æskulýð-
urinn á Barðaströnd geti semj
fyrst eignast sæmilega sundlaug.
Og- sterkir árangrar eru venju-
lega ekki svo lítils virði í augum
þeirra manna, sem hata allar
l'ramfarir, sem miða að auknum!
þroska og vaxandi heilbrigði al-
þýðuæskunar í landinu.
Fjörráðin víð Ungmennafélag
Barðstrendinga
Innræti Hákonar i Haga birtist í sinni rétta mynd
Eins og kunnugt er, hneigist
nú fjöldi æskulýðs um allt land
til fylgis við Kommunistaflokk-
inn og stefnu hans. Eymd og úr-
ræðaleysi borgaraflokkanna, sam-
fara síauknu atvinnuleysi og vax-
andi rotnun auðvaldsskipulagsins,
sannfærir æ fleiri og fleiri hugs-
andi æskumenn um' það, að líf-
vænleg framtíð fyrir þá er
óhugsandi undir stjórn borgara-
stéttarinnar og framleiðsluhátt-
um.
Hatur og fyrirlitning hinnar
deyjandi borgarastéttar og hinna
ýrnsu fulltrúa hennar í garð
]?eirrar alþýðuæsku, sem fylkir
sér undir merki kommúnismans
og fyrir sigri sósíalismans, kemur
ekki ósjaldan fram í dagsljósið
og í ýmsum myndum. Hér birtist
aðeins eitt dæmi, sem er að
mörgú leyti eftirtektarvert.
Vestur á Barðaströnd starfar
fjölménnt ungmennafélag. Svo að j
segja hver einasti æskumaðúr og j
kona í sveitinni er méðlimur
þess. Á aðalfundi félagsins í jan-
úar s. 1. vorú eingöngu kosnir í
fctjóm félagsins og varastjórn
kommúnistar og róttækir æsku-
menn.
Félagið hefir allt frá stofnun
þess haldið úppi sundkennslu í
sveitinni við mjög erfið og léleg
skilyrði. En takmarkið hefir verið
og er: Steypt sundlaug. Hvert
sundpróf hefir jafnan fært félag-
inu dálitlar tekjúr og aukið rnögú-
leikana til þess að þessú takmarki
verði náð, með sameiginlegum
átökum1 félagsmanna.
Til sundkennslunnar hefir fé-
lagið jafnan notið 150 kr. styrks
úr sýslusjóði Vestur-Barnastrand-
arsýslu. En á sýslufundi í vor
varð breyting á þessu. Hákon í
Haga, sem er sýslunefndarmaður
Barðastrandarhrepps fékk þeirri
breytingu til leiðar komið, að
styrkurinn var lækkaður ofan í
120 kr, og veittur með því skil-
yrði, að Hákon ráði sundkennar-
ann og sjái algerlega um kennsl-
una sjálfur.'
Nú munu menn spyrja? Hvað
liggur hér á bak við? Hvað veld-
Þær kröfur sem úngmennafé-
lagið og allir góðir Barðstrending-
ar verða nú að gera í sambandi
við þetta mál, og halda til streitú,
erú fyrst og fremst þessar:
1) að sá ágóði, sem kann að
verða af sundkennslunni renni í
sjóð ungmennafélagsins,
2) að til kennslunnar verði ráð-
inn hæfur kennari og ekkert ann-
að látið ráða vali hans,
3) að næsti sýslufundur veiti
Ungmennafélagi Barðstrendinga
— en ekki Hákoni í Haga —
styrk til að halda uppi sund-
kennslu á Barðaströnd.
Skó- og g’úmmiviimustofa
Árna Fálsso&ar
Hverfisgötu 40,
teknr allskonar skófatriað til viðgerðar. Sími 4757
Sæki og Sendi um allan bæ
lægs*a verö í bænum. Komíð cg reynið viöskiptín.
..EÉTTUR“
ffip El| BLÍÍáSÉÍ BÍhÍ EÍáÉYálj SÍIilÉÍ
Timarit um þjúi télsgs- og menningarmál
Ritstjóri: Einar Olgeirsson.
Kemur út mánaðarlega, 32 síður hvert hefti.
Árgangur kostar fimm krónur. —
Afgreiðsla:
Bókaverslunin „HEIMSKRINGLA"
Laugaveg 33 — Pósthólf 57.
það vænst, að vera ekki með
þetta uppgerðamagg út í Mjólk-
ursamsöluna. Það getur alltaf
orðið til þess að stjórnarblöðin
ljóstri upp leyndarmálum1, sem
allri burgeisastéttinni kemúr
bezt að ekki komist í hámæli.
Stlórnmálafundirnír
Framh. af 2. síðu.
sambandsins hafa haft veg og
vanda af að eyða honúm.
Sig. Einarsson sagði að nú væri
bráðum búið að framjkvæm'a 4
ára áætlunina! — Skemmtu menn
sér vel yfir þessu gríni hans.
Bjarni Ásgeirsson var miklu
nær veruleikanum. Hann sagði,
að hlútverk stjórnarinnar væri
að „halda öllu fljótandi", og
mætti þykja gott meðan flýtur,
en elvki sekkur.