Verklýðsblaðið - 11.06.1935, Blaðsíða 4
TímaritiB ,
R É T T U R
kemur út mAnaðarlega.
Arg 5 kr. — Gerist áskrifendur!
VERKLYÐSBLAÐID
LESENDUR!
Kaupið hjá þeim, sem auglýsa
hjá okkur og getið þá
________________Verklýðsblaðains!
Negraverkamenn
í Suður*Afriku
i verkfalli og uppreisn
EINKASKEYTI
TIL VERKLÝÐSBLAÐSINS.
Kaupmh. 6. júní
Frá London er símað:
Liigreglan í Roan Antelope í Suður
Afríku'i skaut nýlega 7 svarta verka-
menn. Er fregnin um morðin barst
út réðust 3000 námaverkamenn á bygg
frelsi á fundnnum í
Sigurður Einarsson hefir í
nafni Alþýðuflokksins boðað til
10 þingmálafunda í Banðastrand-
arsýslu dagana 13.—23. júní. —
Voru fundirnir auglýstir í út-
varpinu og Sjálfstæðisflokknum,
Framsóknarflokknum og Bænda-
flokknum boðin þátttaka.
Kommúnistaflokkurinn hafði í
hyggju að senda fulltrúa á
þessa fundi og sneri sér til
Sigurðar Einarssonar og spurði
hann hvort Kommúnistaflokkur-
inn fengi ekki sömu réttindi á
fundunum og hinir flokkarnir.
Sigurður svaraði, að fulltrúi frá
Kommúnistaflokknum myndi ekki
fá að tala.
Með þessari ósvífni, — að ætla
að útiloka Kommúnistaflokkinn
frá opinberúm stjórnmálaumræð-
ingamar, þar sem stjóm námahluta-
félagsins hefir aðsetur sitt. Var verk-
fall hafið og taka 10000 námaverka-
menn þátt í þvi. Sá hluti borgarinn-
ar, sem Evrópumenn búa í, er í um-
sátursástandi. Allir innfæddir menn
standa með verkfallsmönnum í bar-
áttu þeirra fyrir launahækkun. ...
NORDPRESS.
BarðastrBndörsýslu?
um, — er enn ein tilraunin gerð
til að banna Kommúnistaflokkn-
um' opinbert, leyfilegt stjórnmála-
starf. Ennfremur bætist við sú á-
stæða hjá Sig. Ein., að kommún-
istar hafa svo oft og svo rækilega
afhjúpað hið „róttæka“ glamur
þessarar landsfrægu „mjólkur-
hetju“, að hann vill nú reyna að
hindra, að Kommúnistaflokkur-
inn eigi fulltrúa á fundum þeim,
sem hann boðar til, svo hann sé
einn með glamur, sitt „gegn“ í-
haldinu og lygar sínar um kom-
múnista.
En honum verður ekki kápan
úr því klæðinu. Kommúnista-
flokkiirinn mun sjá til þess, að
honum verði mætt á fundunum
og talað gegn honum sem öðrum
erindrekum auðvaldsins þar.
Samkvæmt símtali við
Eskifjörð í dag.
Hreppsnefndin á Eúkifirði hef-
ir sagt af sér, þar sem hún treysti
sér ekki til að stjórna bæniun.
Slíkt öngþveiti var allt komið í.
Alþýðan á Eskifirði hefir kosið
bráðabirgðanefnd tij að stjórna
bænum. Hefir alþýðan einróma
samþykkt og sent eftirfaranrii
kröfur til ríkisstjórnarinnar:
1) 35000 lcr. framlag til hjálp-
ar fólkinu (þar |af 25000 kr. til
atvinnubóta og ræktunar, 10000
kr. rekstursfé hreppsins til fá-
tækraframfærslu etc.).
2) að bærinn fái allan tekju-
og eignaskatt, sem innheimtist á
staðnum, og allt verðjöfnunar-
gjald af fiskinum.
3) að togari sé gerður út frá
Eskifirði, til að bæta úr neyðar-
ástandi fólksins.
Ríkisstjórnin hefir mótmælt
nefndinni sem ólöglegri, en sent
um leið 1500 kr. til hmnar „ólög-
legu“ nefndar, til að reyna að af-
saka sig!
Borgarafundur var haldinn í
gær (10. júní) og var mjög fjöl-
mennur. Var þar samþykkt
traustsyfirlýsing til nefndarinnar
og mótmælum ríkisstjórnarinnar
í engu skeytt.
Nefndin hefir ákveðið að.
hreppsnefndarkosning fari fram
nú í vikunni, á fimmtudag lík-
lega. Verklýðsfélögin og Komm-
únistaflokkurinn hafa þegar
ákveðið samfylkingarlista til
kosninganna, sem alþýðan fylkir
sér eindregið um án tillits til
st j órnmálaskoðana.
Talið er, að eini mótlistinn
verði frá íhaldinu ásamt verstu
afturhaldsöflum Framsóknar.
Stjórnarflokkarnir, sem gaspra
um sívaxandi fylgi, þora líklega
ekki að stilla upp lista.
Þessi fjöldasamfylking á Eski-
fisði er byrjunin að þeirri upp-
reisnarhreyfingu, sem lalþýðan á
íslandi hlýtur að grípi til gegn
hiiiu vaxandi neyðarástandi auð-
valdsskipulagsins undir núver-
andi ríkisstjórn.
Alþýðan á Eskifirði
tekur til sinna ráða
Hreppsnefndín fer frá — alþýðan kýs
bráðabirgðastjórn.
Ríkisstjórnin mótmælir
Hreppsnefndarkosning á fimmtudaginn
Samfyiking verkalýðsíns hefir yfirtökin
Ætlar Sigurður Einarsson
að neita fulltrna Eommnnistaflokksins nm mál-
Þýzku landráða-
samningarnip
Framh. af 1. síðu.
bindingar hefðu verið gefnar um.
að ekki mætti selja bátafisk í
þýzkum höfnum. Hann gerði
þetta móti betri vitund. Hann
vissi, að hann fór með rangt ipál.
Verklýðsblaðið mun sýna fram á
það svörtu á hvítu innan skamms.
En hann varð að viðurkenna
aðalatriðin. Auðvitað með alls-
konar útúrsnúningum, með alls-
konar málalengingum, var hann
að viðurkenna, að íslenzkia ríkis-
stjórnin hefði gefið þýzkum út-
gerðarfélögum sömn fríðindi við
síldveiðar í íslenzkri landhelgi
og Norðmönnum voru gefnar í
norsku samningunum illræmdu.
Hann varð ennfremur að viður-
kenna, að rétt væri það atriði
landráðasamningsins, að þýzku
togarafélögunum hefði verið gef-
in yfirlýsing um sérstakíir íviln-
anir gagnvart þýzkum landheigis-
br jótum, sem væru með ólöglegan
veiðarfæraútbúniað í íslenzkri
landhelgi.*
Á sama tíma sem þessar játn-
ingar eru píndar upp úr hinilm
nýbakaða þjóni Thorsaranna,
stendur Sigfús Sigurhjartarson á
fundinum í Grindavík og segir
ásakanir kommúnista lýgi frá rót-
um, stendur Emil Jónsson á fund-
inum í Garði og segir afhjúpanir
Verklýðsblaðsins helber ósann-
indi, stendur fulltrúi Framsókn-
arflokksins á Keflavíkurfundinum
og lýsir þær svívirðilegan upp-
spuna. Slík eru heilindi stjórn-
málamanna þeirra, sem kalla sig
fulltrúa vinnandi stéttanna í
landinu.
ISLENZKIR TOGARAR
VERÐA AÐ BORGA
PRÓSENTUR AF SÖLU
SINNI í ÞÝZKAN
„PROPAGANDA^-SJÓÐ.
Þrátt fyrir hinar himinhróp-
andi svívirðingar um þýzku' samn-
ingana, sem Verklýðsblaðið hefir
þegar afhjúpað, er þó ekki enn
allt opinskátt. Verklýðsblaðið
mun gera sér far um að upplýsa
um öll atriði þessara nýjustu
landráða íslenzkrar yfirstéttar.
í dag getur blaðið skýrt frá
því, að þrátt fyrir öll hlunnindin,
sem þeg'ar er búið að veita þýzk-
um togarahringum, um réttindi í
íslenzkri landhelgi við þorskveið-
ar og síldveiðar, nm eftirgjöf á
vitagjaldi, um skuldbindingar við-
víkjandi bátafiskinum, hefir rík-
isstjórnin skuldbundið sig til
þess að öll sala á íslenzkum ís-
fiski í þýzkum höfnum verður að
ganga í gegnum Þýzku togara-
félögin sem umboðsmenn, að ís-
lenzku togaramir verða að greiða
af andvirði seldrar vöru visst
gjald í sjóði þýzku útgerðarhring-
amia og þýzku böðulsstjómarinn-
ar. Nemur gjald þetta 2°/00 í svo-
kallaðan „propaganga“-sjóð og
l°/oo í annap, sjóð. Nemur þessi
skattar þúsundum króna á hverju
ári.
ÞAÐ VERÐUR TAFAR-
LAUST AÐ RJÚFA
ÞÝZKA LANDRÁÐA-
SAMNINGINN.
Fyrsta spor til baráttu gegn
landráðasamningnum við Þýzka-
land er þegar stigið. Flokkur
verkalýðsins hefir í þetta skipti
getað flett ofan af leynimakki
íslenzkrar yfirstéttarklíku. Þögn-
in hefir þegar að nokkru verið
rofin, landráðamennirnir hafa
\erið knúðir til andsvara. En þar
við má ekki láta sitja.
Burt með þýzka landráðasamn-
inginn, er krafa íslenzkrar al-
þýðu. Um þá kröfu verða vinn-
andi stétta landsins nú að fylkja
sér af slíkum krafti að ríkis-
stjórnin og íhaldsfulltrúar henn-
ar verði undan að láta.
Rauð saiRVÍnnuféfðg
Kaupmh. 8. júní
Frá Prag er símað:
Hin rauðu samvinnufélög Tékkó-
slovakiu, Vcelas, eru nú 30 ára gömul.
í tilefni af því hafa verið haldnir 150
fundir og 70000 verkamenn fóru í
kröíugöngur til að krefjast verðlækk-
unar á nauðsynjavörum.
NORDPRESS.
Atvinnulausir
iárnsmíðir
roæti hjá formanni FÉLAGS
JÁRNIÐNAÐARMANNA n. k.
miðvikudag og fimmtudag milli
kl. ú og 8 e. h.
Stjórnin.