Verklýðsblaðið

Tölublað

Verklýðsblaðið - 16.12.1935, Blaðsíða 1

Verklýðsblaðið - 16.12.1935, Blaðsíða 1
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKUR ÍSLANDS DEILD ÚR ALPJOÐASAMBANDI KOMMÚNISTA Reykjavík, mánud. 16. des. 1935. I ÖREIGAR ALLRA LANDA SAMEINIST- 1 VI. árg., 101. tbl. Tillögur Lavals og Hoare eru undirbúningur Evrópustyrjaldar Blekkingagrímunni svift af brezka afturhaldinu. Enska afturhaldið vann 4 ára völd með blekkingum um baráttu fyrir friði, framförum og vernd- un þjóðabandalagssáttmálans. Fvrstu framkvæmdimar eru þessar: 200 miljón punda hækkun til hernaðarþarfa á kostnað al- þýðutryg-ginga, stuðningur við kolanámueigendui- gegn kröfum kolaverkamannanna um hækkun vikukaupsins, niðurskurður at- vinnuleysisstyrkja, nýjar þving- unaraðferðir í nýlendunum í Ind- landi og Egyptalandi, tollstríð gegn írlandi. — Síðast, en ekki sízt, tillögur utanríkismálaráð- herra Breta, Hoares, í Abessíníu- deilunni. Enska afturhaldið, sem hefir gengið fremst í endurvopnun Þýzkalands til að koma af stað sti'íði gegn Sovét-Rússlandi, er að öllu leyti sjálfu sér samkvæmt. Því sendi það einnig skip eftir skip með vopn og vistir til Musso- lini, meðan Eden talaði fegurst á þj óðabandalagsráðstefnunum. En hefii’ það misreiknað sig? Snýst eitthvað af hinum ágætu fulltrú- um þess gegn því, eða tekst því að stinga upp í þá? Tekst því að lægja þá óánægjuöldu, sem nú rís gegn því sjálfu og fyrirætlunum þess í Englandi? Tekst því að stemma stigu fyrir hinni hraðvax- andi samfylkingu verkalýðsins í Englandi og frelsishreyfingunum 1 nýlendunum? I öllum löndum er beðið eftir svari við þessum spurningum milli vonar og ótta. Frönsku borgarablöðin ganga kaupum og sölum milli ítalíu og Þýzkalands Það er nú tæpt ár síðan Laval og Mussolini töluðu saman í Róm Laval. um undirbúning Abessiniustríðs- ins. Allt féll þar í ljúfa löð milli þeirra. Siðan er öllum heimi kunn afstaða Lavals til glæpaverka í- talska fasismans. Að undirlagi hans slengdi Mussolini seinni part- inn í sumar 100 miljónum franka í mútur til frönsku stjórnarblað- anna, til að fá þau til að halda uppi hróðri sínum. Þetta hneyksli afhjúpuðu frjálslynd blöð ensk í september þ. á. Nú ætlar Hitler að kaupa frönsku þingmennina og frönsku borgarapressuna. Ef til vill er nú skiljanlegt hvað því olli, að Lavalstjórnin ekki féll um daginn og hvers vegna svo margir af þingmönnum sósíalradi- kalaflokksins hjálpuðu honum til að lafa við völd. í útbreiðsluráðuneytinu þýzka var i byrjun nóvember haldin ráð- EINKASKEYTI TIL VERKLÝÐSBLAÐSINS Kaupm.höfn 14. des. Oánægjan. í pýzkalandi út aí mat- arslcortinum fer hraðvaxandi. Sér- staklega er fólkið reitt út af vöntun- inni á íeitmeti, þar sem vitanlegt er, að það er geymt til hernaðarþarfa. Þegar tillögur komu fram um daginn í þingi um niðurskurð þingskrifta og niðurfellingu á prentun umræðuparts Alþingis- tíðindanna, dundu strax ýfir mót- mælin. Áhrifamestu mótmælin voru samt tvímælalaust þau, að á lundi Hins íslenz.ka prentara- félags var samþykkt tillaga um að hóta verkfalli, ef niðurskurður þingskriftanna næði fram að ganga. Eftir að almennt vitnaðist um slíka andstöðu víðar að, féll tillagan um „að spara lýðræðið" við lítinn orðstír — og sýnir það enn sem fyrr áhrif utanþingssam- þykkta og mótmæla verklýðsfé- laganna. En nú hefir fjárhagsnefnd gert þá breytingatillögu við tekjuöfl- unarfrumvarpið, að hækka skuli bensíntollinn um 4 aura, upp í 8 Félagi Litvinov, íiilllrúi Sovétríkjanna í þjóðahandal. stefna með fulltrúum Lavals- stjórnarinnar til að ræða um Vest- ur-Evrópumálin. Á þessari ráð- Hafa óeirðir farið vaxandi undan- farið. Nú stendur yfir leynileg ráðstefna í þýzka hermálaráðuneytinu til þess að taka ákvarðanir og gera ráðstafanir út af meiri háttar óeirðum, sem vald- hafamir búast við að brjótist út með- al fólksins. aura. Skýtur þar með sami draug- urinn upp höfði, sem kveðinn var niður í fyrra fyrir eindregin mót- mæli Dagsbrúnar, vörubílstjóra og áhrifamanna innan Alþýðu- flokksins, svo sem Jóns Guðlaugs- sonar og fleiri. Það þarf ekki að færa nein rök að því fleiri en áður hefir verið gert, hver svívirðing þessi toll- hækkun er: Það, sem ríður á, er að nú sé strax svo skörulega mót- mælt, að þessi bensíntollur verði kæfður í fæðingunni: Vörubílstjórarnir verða að láta hart mæta hörðu, hóta verkfalli, et annað ekki dugar. Það verður að halda Dags- brúnarfund til að ræða þetta mál og hindra hækkunina eins og í fvrra. Framh. á 4. síðu. Þýska stjörnin hrædd um sig NORDPRESS. Hindrid hækkun 'bexizixiskaittsixi.ss Hindrið hækkun benzínsskattsins, eins og niðurskurður á prentun þingtiðindanna var hindraður af prenturum. Sveinafélag múrara gengur í Samband iðnverkammanna Vidtal vid Gadjón Benediktsson Verklýðsblaðinu hafði borizt sú fregn, að tveir fulltrúar frá Sveinafél. múrara hefðu mætt á íulltrúafundi Sambands iðnverka- manna síðastliðinn sunnudag. Fréttamaður blaðsins snéri sér því til Guðjóns Benediktssonar fulltrúa félagsins í Iðnsambandi byggingamanna. Er Sveinafélag múrara gengið í Samband iðnverkamanna ? Já, atkvæðagreiðsla um það hefir staðið yfir síðan 7. nóv. s. 1. og henni mun nú vera lokið og atkvæðatalan var, er ég vissi síð- ast (og hún mun litlum eða eng- um breytingum hafa tekið), þessi: Já, við því að ganga í Guðjón Benediktsson. sambandið sögðu 64, nei 11, 6 greiddu ekki atkvæði, og í nokkra náðist ekki til að fá atkvæði þeirra. LIví hafið þið ekki fyrr gengið í Sambandið, þar sem svo sterkur meirihuti er því samþykkur? Þessi sterki meirihluti er ekki gamall. I fyrra, við stofnun Sam- bandsins, var fellt að senda full- trúa á Stofnþingið. I vor var málið tekið upp aftur og þá sam- þykkt að fresta því fyrst um sinn. I þriðja sinni var það tekið upp á fundi 7. nóv. og árangurinn var atkvæðagreiðslan, er ég lýsti áð- an. , I-Ivað hefir að þínu áliti valdið svona skjótum straumhvörfum í þessu máli innan félagsins? Ég tel víst, að stoínun Vinnu- veitendafélagsins og framkoma þess í sumar hafi opnað augu margra fyrir aukinni samtakaþörf

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.