Spegillinn


Spegillinn - 26.07.1930, Síða 6

Spegillinn - 26.07.1930, Síða 6
118 S p e g i 11 i n n 13., V. ítalarnir, þegar þegar þeir sjá litla Mussolini. . ........................................................................ iiiiiiiiliiliiiniliiiliiliili t ............................................................. Geröardómssamningurinn á milli Spánar og Islands. Sá stórmerkilegi viðburður hefur gerst eftir því sem segir í tilkynningu frá forsætisráðherra vorum, að gerðardóms- samningur hefir verið undirritaður á milli Spánar og íslands, þar sem trygt er að öll deilumál, sem kunna að rísa upp á milli þessara landa og ekki hefir tekist að jafna milli stjórnarfulltrúa ríkjanna, verði leyst með friðsamlegum hætti. Oss íslendingum, sem aldrei höfum átt í hernaði og erum öllum vígaferlum með öllu óvanir, má það vera mikið gleðiefni, að mega treysta því að hvað sem fyrir kemur, jafnvel þó áfengissjopp- unni verði lokað í heilt ár, þá verði oss aldrei sigað út í blóðugan bardaga á móti Spánverjanum. En ekki er þetta siður ánægjulegt fyrir Spánverjan sjálfan. Mun hann hafa fengið nóg af slíku í Kabylastríðinu siðasta og mun sennilega lítið kæra sig um nýjan ófrið í bráðina, enda væri aðstaðan miður glæsileg fyrir Spánverja, ef Kabylar risu upp á móti þeim á ný og sæktu þeir að þeim að sunnan, en íslendingar að norðan, En þessi samningur ætti líka að geta verið dálítið hugvekjuefni fyrir aðrar þjóðir. Hann ætti að geta bent þeim á, að það væri ekki óhyggilegt að reyna að komast að sömu kjörum á meðan vjer erum í þessum friðarhug. Er þetta ekki aðeins mælt til Dana að gefnu til- efni út af Færeyingauppreisninni, heldur er þetta svona almenn bending til fleiri þjóða. Hugsum oss t. d., ef ísl. stríðskipin hefðu ráðist á Rhodney hjer á höfninni á dögunum og annaðhvort eyðilagt skipið eða tekið það að herfangi, þá myndi Bretanum sennrlega ekki farið að verða um sel. Það snjallasta, bæði fyrir hann og aðra, er það að tryggja sjer hlutleysi vort hið fyrsta, á meðan núverandi stjórn situr við völd, því hún virðist hafa bæði áhuga og glöggvan skilning á þessum málum. Hafi stjórnin þökk fyrir vikið, og sannast hjer sem oftar, að um hana má þó segja, að hún er þó dálítið meira en montið. Friðarvinur Spegilsins. Ferðasaga. Jeg brá mjer utan hjerna á dögun- um og af því að danska mamma gat ekki látið mig fá neitt, en af því hún sagði mjer hinsvegar af stórbónda einum meðal Svía, er Kraujer heitir, fór jeg fótgangandi á hans fund. Þó jeg ljeti í veðri vaka, bæði við mömmu og aðra, að ferðinni væri heitið til að skoða í fjósið hjá Kraujer — en hann á margar og góðar kýr, sem mjólka vel — þá fór jeg þessa ferð í eins- konar reiðileysi og út úr stökustu vandræðum, því hvar sem jeg leitaði á um hjálp, vildu menn ekki hjálpa mjer. Jeg kom rjett eftir morgunmjalt- irnar í búgarð Kraujers og sá hvar karl hafði raðað öllum mjólkurtrog- ■11111111111111111 iii iiimiiiiiliiiiiiiiiliilililiiiiiiiiiiiiililllillllllllllimi,llllimil,|,ll,,|i,||||,|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||m|||,m,|||||ilil|,,im,l|lllllll,ll,ll,l,r Konungur heilsar ráðherrunum.

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.