Spegillinn - 01.05.1937, Síða 7
XII. 9.
SPEGILLINN
Kröfugango vor.
Það er engin tilviljun, að vjer Al-
þýðuflokksmenn höldum uppi kröfu-
göngum hinn 1. maí. Framsókn þarf
þess ekki, þar sem hún jú fjekk sinn
Jónas þennan dag fyrir æfalöngu, og
íhaldið veit ekki, hvers biðja ber. Það
vitum vjer þó, sem betur fer, og að sið
dana, sem um langt skeið klæddu oss,
fæddu og skæddu, göngum vjer um
götur höfuðborgarinnar í dag, státnir
og frjálsmannlegir, til að heimta dá-
lítið meira. Vonandi verða engin veik-
indaforföll meðal leiðandi manna
flokksins, eins og stundum er 1. maí
■— sem er óhentugur tími, því þá grass-
en sjúklinginn eigi hann vísan. Þegar
hann kemur til sjúklingsins, var hann
auðvitað dauður. Eins hugsar Her-
mann, að hann hafi kónginn í hendi
sjer en Strandamenn ekki. Getur far-
ið fyrir Hermanni líkt og prestinum,
að hann fái ekki krossinn, sem honum
var ætlaður á krýningarhátíðinni, og
kóngur stríði honum auk þess með því
að hengja hann á Harald eða Ölaf
Thórs.
Pólitíkus Vor.
erar kvef með mesta móti og legst sjer-
lega hart á feita menn. Vjer höíuin
haft viðbúnað mikinn; hrífusköft og
pappaspjöld hafa verið keypt svo
hundruðum skiftir, þrátt fyrir inn-
flutningshöftin og skrautritarar vorir
hafa verið önnu mkafnir undanfarið
að letra kröfur vorar á spjöldin. Höf-
um vjer að mestu fengið það samþykt
í hinum ýmsu 1. maí-nefndum vorum,
hverir spjöldin skuli bera, og birtum
vjer örlítið sýnishorn af því hjer. Þó
eru breytingar áskildar, ef svo ber
undir. Fylgja hjer á eftir nöfn spjald-
beranna og áletranir:
Stefán Pjetursson: Niður með kom-
múnista!
Jón Baldvinsson: 8 stunda hvíld!
Har. Guðmundsson: 8 stunda svefn!
Hjeðinn Valdimarsson: 8 stunda
máltíðir-
Sigurður Einarsson: Nýtt embætti
við fáfræðideild 'Háskólans, og mjólk-
urlíterinn niður í 10 aura!
Finnbogi Rútur: Ríkisútgerð á Al-
þýðublaðinu!
Árni Ágústsson; Atvinnuleysisstyrk
handa þeim, sem ekki vilja vinna, en
atvinnu handa hinum!
Guðm. R. Oddsson: Jeg vil hafa
meira fyrir snúð minn!
Guðm. Pjetursson: Betri heyrnar-
tól!
Vilmundur: Ókeypis kenslubækur
eftir sjálfan mig!
Jón Axel: Nýja og betri fjögra ára
áætlun!
Sigfús Sigurhjartarson: Þar er
drjúgt, sem drýpur!
Það yrði alveg ógjörningur að telja
upp allar áletranirnar, sem þjóðin fær
að sjá í dag, en geta má þess, að heimt-
að verður uppgjör Kveldúlfs, burt með
olíuokrið hjá Shell og H. f. S., fleiri
barnaleikvelli handa Hjeðni, varúðar-
ráðstafanir við morðtilraunum borg-
arstjóra við börnin okkar, og svo síð-
ast en ekki síst það, sem mest er mat-
arbragðið að: 8 miljón króna lántaka
erlendis, og nokkrar fiskimálanefndir
í viðbót við þá, sem fyrir er og er svo
góð, að hún þarf ekki að sýna neina
reikninga, því þjóðin trúir henni papp-
íralaust. Þá má ekki gleyma, að Kveld-
úlfsuppgerðin er annað og meira en
tóm uppgerð, því hún táknar alhiiða
viðreisn sjávarútvegsins, sem vjer höf-
um lengi haft á prógrammi voru, en
komum henni bara ekki inn á þingið
fyr en rjett fyrir þingrofið, svo það er
ekkert að marka þó hún kæmist ekki
í gegn og geti því ekki komið til fram-
75