Spegillinn


Spegillinn - 01.05.1937, Qupperneq 8

Spegillinn - 01.05.1937, Qupperneq 8
SPEGILLINN XII. 9. kvæmda fyr en undir áramótin, þegar við erum búnir að vinna kosningarnar og kúska Tímamennina enn eftirminni- iegar en hingað til. Samherjar (Jon Sívertsen og Kristj- lán Bergsson meðtaldir)) ! Þið hafið s\ro oft sýnt það 1. maí, að ykkur er sameining alþýðunnar hjartans mál. Látið ekki komma-djöflana ginna ykk- ur í sína kröfugöngu, til þess að dreifa kröftum hinna vinnandi stjetta. Þeir eru búnir að sýna það, að þeir eru bara að vinna fyrir íhaldið og skara um leið eldi að sinni köku — og sú kaka er ekki úr Alþýðubrauðgerðinni, heldur er það kaka sundurþykkis og úlfúðar, sem ætti skilið að kolbrenna í bakarofni íhaldsins og Hannesar litla, og gerir það líka, ef þið standið ykkar pligt. Munið, að Biltingagaff- allinn er betra vopn og sigurvænlegra heldur en hamar og sigð samanlögð. Ef þið fjölmennið. 1. maí og kjósið rjett 20. júní, getur vel skeð, að við gefum ykkur nýja fjögra ára áætlun. 1. maí-nefnd SPEGILSINS. Um daginn og veginn. Góðir lesendur! Þó jeg segi sjálfur frá, virðast þess- ir litlu kaflar mínir um daginn og veg- inn hafa bætt úr brýnni þörf með þjóðinni, og er mesta furða hvað hún hefir komist af hingað til, daglaus og veglaus — nú, en það er nú ekki altaf líf þó lifað sje, eins og maður veit. Jeg værð rjett að geta þess, þó jeg geti 'ekki fjölyrt frekar um það í þessum köflum, fyrir borgun, að jeg hef þeg- ar fengið nokkrar áskoranir um að þjóða mig fram til þings, en hef bara ekki ráðið það við mig enn, hvaða kjördæmi jeg á að leggja í, því úr nógu er að velja. Fyrirspurnum rignir stöðugt yfir mig, og hef jeg ekki við að grafa upp lausnir til þess að geta svarað spyrj- endum sem rjettast, og meira en það: svarað þeim hárrjett — minna má, að mínu viti, ekki gagn gera. Yil jeg nú svara eftir þeirri röð, sem brjefin og fyrirspurnirnar hafa borist mjer. HiúsmóSir spyr: „Hversvegna er aldrei getið um verð, þegar matvörur eða aðrar nauðsynjar eru auglýstar "^jkóJaijprneiiflur á Akureyrt eiyíiVleitt uiurtfól’. . iii'Hr tV>í* ið',XiHkinn dirusa fjTÍr daitslisG i„rti vetur Sigurður Ou«- mií’mKsun danskcnnari er ný- kominn Cr fei i'alnjíi noröan ír:i •Aknrcyri þar stm iia|in dvaldr Mil íi'ö' kenna dans i Montnskóh; íanum. Iðnskólanum. C.agnfræði ^kólnnum/og viðar. ■ _ Scgist Sigurður hafa notio góðrar áðstoðar Sigurðar Guð-' ♦muhdssonat* skólameistara. sem ^greiddi götu hansr í Mentaskól- •ánunTog hafði 'óhurra á a8 nem-! •/sndur danslist. í blöðum bæjarins?“ Jeg svara: Það er ekkert undarlegt þó kaupmenn eða aðrir, sem vörur hafa á boðstólum, kynoki sjer við að auglýsa verð, með- an Hannes á Tanganum er að baxa við að fella krónuna; má því ekki bú- ast við, að neitt verð sje auglýst fyr en sjeð er, hvernig Bændaflokkurinn, sem nú á frægan sigur vísan í kom- andi kosningum, snýst í málinu, og hvað langt hann getur þrykt krónunni niður — þegar hann er kominn til valda. Ung — líklega sæt — stúlka spyr, hvernig jeg vildi hafa konuefnið mitt klætt, ef jeg ætlaði að halda kirkju- brúðkaup. Ja, nú verð jeg að hjala við ykkur, kæru lesendur. Jeg veit, að jeg hef tekið að mjer daginn og veg- inn, og þó jeg verði þess var, einkum upp á síðkastið, að ýmsir eru farnir að liggja á því lúalagi að leggja fyrir mig spurningar, sem hjer um bil er ómögulegt að svara, þá skuluð þið samt halda áfram að spyrja, og svo sjáum við til, hver skjöldinn ber. Jeg mun leysa úr vandræðum ykkar — eða dettur kanski nokkrum í hug, að stjórn SPEGILSINS hafi trú- að nokkrum manni fyrir öðru eins starfi og Dagur og Vegur er, sem elcki er fyllilega starfinu vaxinn? Nei, SPEGILLINN borgar ekki nema úr- valsmönnum prófessors laun. Þá snúum við okkur að brúðar- kjólnum, og sjer mjer enginn bregða. Efnið vildi jeg hafa annaðhvort glansandi Crepe Satin eða matt Crepe de Chine. Sje brúðurin með útslátt, eða bólur á hálsinum, þá verður kjóll- inn að vera með prinsessusniði, en sje húðin í lagi, skal hafa kjólinn með kniplingaermum, sem stangaðar ei’u við stuttar fastar ermar kjólsins. Hafi brúðurin fallega handleggi, ætti ekki að nota lausu ermarnar, en hinsvegear sjálfsagt að hafa þær, sjeu handlegg- irnir skáldaðir horleggir eða pípu- stillcar. Með slóða mun fara um 575 cm. í prinsessukjólinn, en í hinn 425 cm; breidd 96—100 cm. Svo er best að taka fyrir spurning- una um bláhvaiinn, þó röðin sje ann- ars eiginlega ekki komin að honum, en bara til að sýna kjósendum — jeg meinti lesendum — livílíkt starf er við Daginn og Veginn. Gamall sjómaður spyr: ,,Hvað skyldi 60 feta bláhvalur vega?“ Hja! Þó jeg kunni ekki við að játa, að jeg þurfi að fara í smiðju, þá verð jeg samt að játa, að í þetta sinn símaði jeg til Tönsberg til frænda hins fræga hvalara Svend Foyn og bar mig saman við hann um þyngdina, og kem-

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.