Spegillinn


Spegillinn - 01.05.1937, Síða 11

Spegillinn - 01.05.1937, Síða 11
XII. 9. SPEGILLINN ur hjer svarið: Merkja skal hvert fet á hvalnum og skera svo niður úr þannig, að 60 stykki, hvert eitt fet, komi fram, rjett eins og þegar við brytjum ýsu í pottinn. Hvert stykki vegur þá eitt tonn, m. ö. o. 60 feta hvalur 60 tonn, og þar af leiðandi 80 feta hvalur 80 tonn. Eins og menn sjá uf þessu, er hvalurinn afar þungur og um leið sterkasta skepna jarðarinnar. Annars vil jeg mælast til þess, að vís- indalegar spurningar sjeu ekki lagðar fyrir mig margar, t. d. kostaði þessi ■spurning útgerð Dags og Vegar kr. 7,13 í skeyti, símtöl o. f 1., og haldi ■slíkt áfram, verður að heimta, að sPyrjendur leggi 25 aura með hverri spurningu um náttúru- og stjörnu- fræðileg efni, til að standast auka- Jíostnað, en stjörnufræðileg spurn- ing er þegar komin, og verða henni S'erð skil á sínum tíma. Þá kemur hjer spurning frá bál- vondum heiðursmanni, sem varð fyrir því — með leyfi að segja — að eyði- ieggja nýjar buxur í Strætisvagni. Hann skýrir frá þrengslunum í vagn- inum — taldi 45 höfuð (með börnum) í vagninum — og lentu hinar fínu, ný- pressuðu buxur hans í slæmu nágrenni við olíubrúsa, sem einhver hafði með- íerðis, auk þess sem hann var nærri kafnaður, því landsynningur og stór- i'igning var. Hann spyr: ,,Hve margt má, skv. veglunum, vera í strætisvagni, og hve mikið hlass þolir undirvagninn? “ Jeg ■svara: Það er letrað inni í flestum vögnunum, að 24 — líklega fullorðn- lr — megi ferðast í þeim í senn. Ef við nú tökum töluna — rúnn súmm — þ- e., að upp og niður vegi hver ein- ■staklingur 50 kíló, þá er 1200 kg. þungi inni í vagninum og 70 kíló bet- Ur ^ieð bílstjóranum, og reiknum við yfirbyggingu 3 skippund, þá hvílir um 114 tonn á undirbyggingunni, en þegar á henni hvíla 2*4 tonn, þegar ilest er, nefnist það yfirkraftur, eins °g í Vickmanns mótorvjel, 25—45 bestafla, þar sem 45 er yfirkraftur, í\em við mentuðu mennirnir köllum súrplús. í bígerð mun vera að setja viðbótar- hæð með sætum ofan á strætisvagn- 'ana, og hverfur þá af sjálfu sjer á- letrunin „24 farþegar“. Til að greiða götu almennings og fá lögfesta skýr- ingu á, hve marga menn strætisvagn- ar megi taka, ræð jeg yður til, ó- ánægði maður, að fara í mál út af brókunum og fá hæstarjettardóm í málinu, sem svo gildir seinna fyrir aðra, per analogiam. Jeg sje, að jeg er kominn langt fram yfir tímann, svona er það þegar hugðnæm efni grípa mann, nauðugan viljugan. Verið þið sæl- Aðaljón SPEGILSINS. Umferðareglur Spegilsins. 1. gr. Fótgangandi menn skulu altaf og alstaðar vera vita rjettlausir. 2. gr. „Það er vítavert, að sjá mann ganga yfir götu jafnvel þó hann sjái bifreið vera að koma“. Það kann að vera, að þetta þykir þurfa sltýringar við, en samt sem áður er þetta ákaflega auð- skilið. Meiningin er sem sje sú, að hver sá, sem horfir á annan mann, eða þó ekki sje nema af tilviljun að hann sjái hann rjett í svip krossa strítinn, þá skal umræddur áhorfandi sæta þungri refsingu, að minsta kosti hjer í heimi. Hegninguna ákveður dómsmálaráð- herra vor og þarf hann ekki að hafa fyrirskipað sakamálshöfðun nje þar til heyrandi glæpamálarannsókn áður. Náðun kemur ekki til greina, jafnvel þótt delinkventinn kunni að hafa sjeð, einhversstaðar langt, langt í burtu bíl, sem kann að hafa verið á einhverskon- ar ferðalagi, út í bláinn. 3. gr. Bifreiðastjórar skulu aka yfir menn, nema að þeir sjái það borga sig betur fyrir, því ©11 stopp valda töfum. Ekki að standa, sem örsjaldan mun koma kemur til mála að víkja bílnum neitt út af beinu striki. 4. gr. „Það er mjög hættulegt að sjá hjól- reiðamenn fara fram hjá bifreið vinstra megin“, og mun jafnan vita á ilt, enda talið mesta ólánsmerki. Ekki skal samt ákveða neina refsingu fyrir þetta afbrot, því að glæpurinn ber sjálfur í sjer refsinguna fyrir þessa ó- tilhlýðilegu hnýsni. Eftirhreyta. Þar sem því er ekki að treysta, að ritstjóri Spegilsins nenni að laga galla þá, sem vera kunna á ritsmíð þessari, bæði að orðfæri og efni; höfum vjer leitast við að hafa hana svo úr garði gerða, að því leyti til, að ekki sje þörf á miklum lagfæringum. Z. B. Spegilsins. Undir leiðum lögum. ('Háttatal). Okkar rjettláta ríkisstjórn, rummungs fróm, bæði í orði og verki; ríkissjóður þess sýnir merki; — —hún brúkar hann eins ogbrennifórn, Hermanns viska, Eysteins æska, eðallyndi Haralds og gæska, fleytti hyskinu fram yfir páska fram hjá ryskingum, slysum, háska. Goðrauður og Gráfeldur, bræður, gjörðu sjer upp reiði, en Gunnhildur lagði ráðin á; launmorð, brennur og svik voruá seyði, — svona var pólitíkin þá. (Hlíðin mín fríða). Stólfótastillir, steinolíukyllir, besti bílafyllir, blíði Rússagrillir; auðvalds spaki spillir, Spánarstjórn þig gyllir — — Hermann þig hyllir. Enn þá er Finnur fátækur og frómur í besta lagi. Þó vart sje hann eins og Vilmundur, að verð’ ’onum að því bagi. Eitt heilt eintak (óbundið) af SPEGLINUM frá upp- hafi — 11 árgangar — fæst hjá af- greiðslunni. Sími 2702. 79

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.