Spegillinn


Spegillinn - 30.07.1943, Qupperneq 2

Spegillinn - 30.07.1943, Qupperneq 2
SPEGILLINN XVIII. 15. Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliuilllllllllllllllllllimillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllrllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll ^íwixÍScjrinn bygy ir upp lanJið 'Jftikk- og stállpisíunnuverlam. icr hafií ögóííavotv olt órií Háppdrítti HÁSXOIA líLAm Þingvallanefnd hefur nú ritað stjórninni og farið fram á hæfilega fjárveitingu til þess að flytja jarðneskar leifar Jónasar skálds Hall- grímssonar heim úr útlegðinni í Danmörku, en þar hefur hann nú verið (dauður) í 98 ár, ef oss ekki skjöplast. Ætti fé þetta að fást greið- lega, á þessunV ríkdómstímum, þar sem ekki mun meira vera orðið eftir af góðskáldinu en svo, að vel mætti biðja farþega fyrir það. Sumir leggja þetta tiltæki þannig út fyrir nefndinni, að hún hafi viljað tryggja sjer einhvern Jónas í reitinn á Þingvöllum og þá farið eftir reglunni: Ef ekki það bezta, þá það næstbezta. Nýlega fannst hluti af mannsfæti í einum sorphaugi bæjarstjórnar- innar, og kom af stað miklum heilabrotum hjá kaffihúsasjerlokkum vorum, og eftirfarandi reyfarasögum. Síðar kom þó i ljós, að fótstykk- ið var ættað frá einhverri skurðarstofu, og virðist svo sem þeim sé annað betur gefið en nýtni með það, sem þeim er trúað fyrir. Ná- grannar sorphauganna, sem njóta góðs af ilmi þeirra, liggja nú á bæn um það, að þeim auðnist bráðum að finna forráðamenn sorphreinsun- arinnar á haugunum — og helzt í heilu líki ef hægt er. Elmer Davis, yfirmaður fréttastofu ameríska hersins, hefur verið hér á ferðinni, en stóð skammt við. Þó nógu lengi til þess að fræða oss á því, að framfarir hefðu orðið stórstígar í fréttastarfsemi, að hann hafi lesið Islendingasögurnar á stúdentsárum sínum, og að hann langaði ósköp til að koma hingað aftur. Yér viljum virðingarfyllst láta í ljós það álit vort, að þetta séu allt heldur litlar fréttir og vafa- samar það iítið þær eru. Landsbankinn hefur í nýútkominni árbók sinni m. a. getið um brennivínsframleiðsiuna hér á landi, en hún hefur á tveim árum selt afurðir fyrir álíka upphæð og Sogsvirkjunin kostaði, og er gott að taka þetta til samanburðar, þar sem hívertarnir í Áfenginu og starf- semi þeirra mega heita einskonar sogsvirkjun. Hins vegar er oss ekki ljóst, hvers vegna Landsbankinn er að tala um brennivín í árbók sinni; ekki drekka þeir brennivín þar. Stúdentagarðinum nýja hafa nú áskotnazt 40 herbergi, sem metin til peninga kosta 400 þúsund krónur, og fylla garðinn langdrægt, en samt kostar hann allur hálfa aðra milljón. Enda þótt gangar, kjallari o. s. frv. kosti líka mikið fé, finnst oss þetta undarleg reikningsvísindi, og er ekki furða þótt klifað sé um aukna stærðfræðikennslu. Annars var SPEGILLINN að hugsa um — hefði nokkurt pláss verið eftir — að gefa herbergi, sem skyldi heita Leirulækur, til minningar um Fúsa, og fela húsaleigunefnd að ráðstafa því, meðan hennar nyti við. Ekki tókst henni svo illa með Hallgrím. Félag íslenzkra Hljóðfæraleikara hefur nú efnt til annarar stræku á Hótel Borg, og á sú að verða betur undirbúin en hin fyrri. Á fyrsta verk verkfallsmanna að verða það að mölva graffifóninn fyrir Jó- hannesi. Vér erum fullir samúðar og skilnings á þessu tiltæki: Mölvið þið bara graffifóninn og strækið þið síðan að eilífu, bæði á Jóhannes og aðra — þið getið ekki trúað, hvað þið mynduð slá ykkur upp á því! Sólaleður hefur verið ófáanlegt um langt skeið, svo að skóarar hafa haft nokkrar vikur samfleyttar með tómum skóaramánudögum í. Blöð- in hermdu fyrir nokkru, að leðrið kæmi seint í þessum mánuði, en þegar þetta fér í pressu, er leðrið ennþá ókomið. Eina bótin er sú, að hitaveitan og fleira er búið að kenna oss að bíða. ÞjóSviIjinn segir, að Vísir sé á leið til vesturs og vilji draga ísland með. Þá finnst oss Þjóðviljinn ætti að reyna að draga landið til aust- urs, og ef hann verður jafnsterkur kollega sínum, mun það verða kyrrt á sínum stað, nema því aðeins hinir flokkarnir taki sig til og dragi það norður og‘ niður. Flugvélin fann fyrir nokkru stórhveli, 40' á lengd, og var það síðan dregið til Siglufjarðar til flensunar. Mun þetta vera fyrsti hvalrekinn, sem Flúgfélagið fær á æ'vi sinni, en Vonan'di ekki s'á síðasti. RafmognsmóJorar Landvélar Aðaí'unboðsmcnn á íslandi: S. STEFÁNSSON & C. O. Hafnarhrtsi. GfirseiHu . Sími S573 . B^x 10% Hanzkaskinn Bókbandsskinn Húsgagnaleður Tðskushtnn Vatnslcður Beltaleður Saum, margar teg. Tvlnna og margskonar e/nivðrur til skdsmiða. Ennfremur: Skðdburð Bðn. Lcðurfeltl Leðurverzlun Magnújar Viglundssonar Oirðiritrcti 37 . Pöithólt 876 . Simi 5668 . Reykjivtk Höfum ofiast fyrirliggjandi: 122

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.