Spegillinn - 01.08.1968, Side 7
l’M I.ANDSINS GÖÐA KOSTI,
FEGURÐARDROTTNINGARNAK.
*
I friðsælum dölum við fjárdrátt og stóð
og flughraðan straumvatnanið
vex fslenzkur blómi við árdegissól
og öndvegissöngfuglaklið,
í brakandi þurki hið bragðslungna hey
er borið í hlöðu og garð,
•hið göfuga starf vekur grósku hjá mey,
sem gjafvaxta af puðinu varð.
Hinn bráðgerði þroski í búki og sál
er búsflag fátækri þjóð
og jafnast að gæðum við fturbrætt ál,
til útflutnings betra en stóð,
svo fj allkonan unga er flokkuð og greidd
og förðuð og vegin og mæld
og þvoluð og dustuð og þvegin og breidd
og þurkuð og hituð og kæld.
En dómnefndir streitast í daglangri önn
og dómsorðin vítt eru send;
Um magann skal ummálið minna en spönn,
en meter um bringu og lend,
frá ökla f rass er svo risastórt spor,
- f reyndinni takmarkalaust, -
að sá, sem að leitar þar lagsins í vor,
hann lendir á jörðinni í haust.
A landshornum öllum er leitað og spurt
og litið og skimað og hváð,
hvort finnist ei stúlkukind, flytjar -l: burt,
ef fengi hún málunum náð,
þvf hagvaxtarrýrnun er hættulegt stand
og hér ríkir vægast sagt neyð,
og öllu var siglt í hið aumasta strand,
meðan útflutningsvaran var skreið.
Nú býrð þú ei lengur við beljur og stóð,
þú bóndi, sem dæturnar átt,
því töðufengsvonin er töluvert góð,
þótt túnið sé kalið og grátt,
úr fegurðardísum þú býrð þér til brauð,
sem bezt verður framvegis selt.
Nú steypir þú baulu af stóli og sauð,
en stóðið skal drepið og gelt.
Vort land er í dögun af annarri öld
og útflutningsmarkaður nýr,
á kynbomburæktun og kynorkuvöld
blæs kynlegur vindur og hlýr.
Svo kynstór og göfug og kynfylgjugóð
sinn kynþroska dóttir vor fær,
og kynroðalaust okkar kjmvædda þjóð
á kynfiskamiðunum rær.