Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Qupperneq 3

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Qupperneq 3
7. blað Reykjavík 5. október 1 » 2 8 Siúdenfablaðið býður nýju stúdenfana velkomna. STÚDENT Ár eftir ár. 0g aftur í ár stendur stúdent í hópi fjelaga sinna á skólaþrepunum og syng- ur: A, a, a, valete studia. Valete studia. Hann kveður gamla skólann beinlínis með virktum — með söng — til þess í sömu andránni að depla augunum frammi fyrir ásjónu lífsins, hins máttuga, hins dularfulla. Það beið hans þó, þrátt fyrir alt. Valete studia. Gamall stúdent horfir á eftir bifreiðun- um, sem þjóta upp úr bænum með hina glöðu Þingvallafara. Hann svarar kveðj- unum, veifar, brosir og veifar aftur. Því einnig hann stóð einu sinni á skólaþrep- unum og söng. Valete studia. En hversvegna leggur honum nú sting fyrir brióst? Honum, sem ekki vildi gera kaup, þótt boðin væri öll veröldin fyrir að hafa farið á mis við þau fáu augnablik, er hann stóð á skólaþrepun- um, grænn í gegn, og drap titlinga fram- an í lífið. Bros þú, bros. Því einnig þetta er lífið, hið dularfulla. L. S. Sumarið. Sumarið er liðið. Maður verður var við, að Háskólinn hefur aftur tekið til starfa, ef litið er inn á Mensa um miðjan daginn. Þar er nú hvert sæti skipað og önn niikil, áður var alt „ödsligt och mörkt och kallt“. Stúd- entalífið er að vakna aftur eftir sumarsvefn- inn — stúdentalífið, því þrátt fyrir alt er stúdentalíf til í þessum bæ. Fátt hefur dritið á dagana í sumar, en þó nokkuð, sem stúdenta varðar. Heimsókn skosku stúdentanna og mótið á Mensa er eitt með því merkara. Skotamótið er nú landfrægt orðið fvrir litlar sakir, mest fyrir smámuna- semi lögregluyfirvalda þessa bæjar. Merkast er Skotamótið fyrir það, að það var fyrsti samfundur íslenskra og erlendra stúdenta, sem Stúdentaráðið beitti sjer fyrir. Sumarið bar í skauti sjer mikil vonbrigði fyrir stúdenta. Það var von manna, að á þessu sumri yrði hafist handa að byggingu Stúdentagarðsins, en það hefur dregist, svo sem kunnugt er, svo að ekki er enn byrjað á verkinu. Hjer skal enginn dómur á það lagður, hvort ástæðan fyrir þessum drætti hafi við nokkra sannsýni að styðjast, en það er i alla staði óheppilegt, að tafið sje fyrir byggingunni, nema miklar sakir komi til. Enn er þó von um, að hægt, verði að byrja á greftrinum fyrir grunni Garðsins í haust. I sumar útskrifuðust í fyrsta sinn stúdent- ar frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri, voru þeir 5 talsins, en hjeðan útskrifuðust 39 stúd- entar. Eftirtektarvert er það, hve margir nýju stúdentanna fóru til náms við háskóla erlendis. A þessu hausti innritast 22 íslensk- ir stúdentar, eldri og yngri, við erlenda skóla,

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.