Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Side 4

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Side 4
2 STÚDENTABLAÐ 1928 Frá stúdentamótinu í Stokkhólmi. Mötetx festliga Prolog. Stockholms Konserthus er mikil bygging og fögur. Þar var norræna stúdentamótið sett 1. dag júnímánaðar síðastl. — Þúsund nor- rænir stúdentar voru þar saman komnir, til þess að skiftast á kveðjuin og meðtaka hið rjetta hugarfar til hinnar miklu hátíðar, er nú stóð fyrir dyrum. Sjálfur erkibiskupinn, Nathan Söderblom, hafði verið valinn til þess að veita mönnum þá andlegu fæðu, er til þess þótti þurfa. Flutti hann þar fjöruga ræðu og afarenjalla, enda er hann bæði fyndinn og frjálslyndur, þótt „geistleguru sje, og tal- inn meðal fremstu ræðumanna sinnar þjóðar. Margt annað stórmenni var þarna viðstatt, svo sem Gústaf kóngur og alt það fólk. — Þegar biskup hafði lokið máli sínu, gekk fram einn fulltrúi fyrir hverja þjóð og þakk- aði fyrir heimboðið með mörgum fögrum orð- um. Af okkar hálfu, íslenzkra stúdenta, tal- aði meistari Þorkell Jóhannesson. — Einhver en tala þeirra, sem láta innrita sig hjer við Háskólann verður að öllum líkindum innan við 20. Bendir þetta tvímælalaust á, að stúd- entarnir sjálflr hafl fundið leiðína út úr þeim „háska“, sem talinn hefur verið stafa af stúd- entafjölguninni og sem mest var talað um í vetur. Nám við erlenda háskóla opnar nýj ar leiðir, sem verður bæði þjóðinni og þeim, sem þær ganga, til gagns; en sú spurning hlýtur að vakna hjá rnanni: væri það ekki ákjósanlegra og affarasælla, að Háskóli vor opnaði mönnum einhverjar slíkar leiðir? Það er einnig álitamál, hve lengi vjer höfum ráð á því að eiga háskóla, sem eingöngu eða svo að segja eingöngu útskrifar embættis- mannaefni, því það kostar þjóðina offjár að þurfa að senda mikinn hluta stúdenta sinna á hverju ári til náms í öðrum löndum. áhrifamesti þátturinn í þessari hátíðlegu setn- ingarathöfn þótti mjer vera hinn ágæti söng- ur og músik sem þar var á boðstólum, enda var þess og að vænta, þar sem Svíar áttu i hlut. Söngflokkur stúdenta söng nokkur lög, akademiska hljómsveitin ljek alla fimm þjóð- söngvana en gervallur þingheimur tók undir og söng fullum hálsi. Aldrei hefur „Ó, guð vors landsu látið jafn vel í eyrum mínum sem þá. — Að endingu var hafinn upp hinn fyrsti stúdentasögur „Sjung om studentens lyckliga dagu, en á meðan var gengið út, úr sönghöllinni, Nú var haldið til Grand Hotel, en þar var dýrleg veizla gjör. Skálaræður voru þar flutt- ar margar og góðar, þar var konan hylt með orðum og atlotum og akademiskur andi var þar drukkinn úr glösum og reyndist ágæt- lega. Loks var dans stiginn fram á nótt. Speœen. Nú voru allir klæddir hátíðaskrúða, því góð skemtun var í vændum, skemtun, sem kannske framar öllu öðru setur gleðinnar svip á stúdentalítíð. Það var stúdentaleikur. Leikflokkur stúdenta frá Lundi ætlaði að sýna mönnum einn af sínum fyndnu og fjör- ugu „spexum“, er þeir nefna svo. Leik þenna höfðu þeir sjálfir samið og nefnt „Uardau eða „Spádómur Stínxinsu. — Atburðirnir ger- ast fyrir fratnan höll Paraós og í grafhvelf- ingum pýramídanna og er efnið bæði fornt og nýtt. Mjög þótti mjer leikur þessi sniðug- lega saminn og vel leikinn, enda spöruðu leikendurnir ekki að krydda hann með alls- konar glettni og skringilegum tilburðum. — Mjer er enn í minni sú stund, þegar hin fagurhærða dóttir Faraós birtist fyrst á leik- sviðinu. Svo fríða meyju og fagurlimaða hafði jeg lengi ekki sjeð. Mjer datt í hug, að ekki væri nú með öllu vonlaust um, að mjer auðn- aðist að hitta hina tignu jómfrú í járnbraut- arlestinni næsta morgun, en þá var ferðinni heitið til Uppsala. Gladdist jeg í hjarta mínu

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.