Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Side 5

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Side 5
1928 STÚDEN TABLAÐ 3 við þá tilhugsun og hjet sjálfum mjer því að votta henni mína aðdáun á „klassiskri14 sænsku, en það mál kunni jeg þó ekki tii fulls. — En alt í einu hrökk jeg upp úr draumum mínum við að heyra rödd ungfrú- „De gamla gudar leva án!‘l arinnar. Það var — bassarödd. — Ó, þú blekking! — öll mín einlæga tilbeiðsla var horfin eins og fis fyrir vindi. Vonbrigði í ást- um af þessu tæi hafði jeg aldrei áðar þekt og mjer datt í hug að beygja af. En þegar jeg heyrði hvað allir aðrir hlógu dátt, fór jeg að þeirra dæmi og hló og liló og hló það sem eftir var kvöldsins. — Aldrei hefi jeg heyrt neinum leik svo vel fagnað. Að end- ingu var formanni leikfjelagsins færður blóm- sveigur og þegar leikendurnir hættu að sýna sig á leiksviðinu, hljóðnuðu fagnaðarlætin smámsaman og menn fóru að tínast út. Þá var vornótt í Stokkhólmi. Upsala. Það var yndislegur vormorgun. Alt bar vott um hið vaknandi líf. — Lestin geystist áfram yfir engi og akurlendi, bljes og dæsti, hróðug yfir því að fá að flytja þenna glað- væra hóp. Upsala, „den eviga ungdoms stadu, var hinn fyrirheitni bær, þessi töfrabær, þar sem gleði og unaðssemdir hins frjálsa stúd- entalífs eru fullkomnaðar og þar sem sænsk menning og vísindi hafa lifað og blómgast um aldaraðir. — Eftir einnar stundar ferð var takmarkinu náð. Frá stöðinni var gengið undir fánum upp í háskólann. Æsku- meyjar Upsalabæjar sátu úti í gluggunum og veifuðu til okkar með vasaklútunum. Við svöruðum með ópum og upphrópunum, sem áttu að tákna okkar djúpu aðdáun og von um góða viðkynningu. -- Eftir hátíðlegar móttökur í hinum veglega háskóla var veizla haldin í „Botaniska tradgárden11. Dagurinn allur leið í dýrlegum fagnaði og sú góða stemning sem ríkti á mótinu, náði þarna há- marki sínu, og er gersamlega þýðingarlaust að reyna til að lýsa því. Mátti með sanni segja, að þarna væri hugsjónin um „den nordiska forbrödringu orðin að veruleika. — Var engu líkara en að andrúmsloftið í hin- um eldgamla háskólabæ væri þrungið ein- hverjum töfrakrafti, sem hleypti þeirri ólgu i blóðið, að allir gleymdu í svipinn að taka tillit til hinnar sívakandi hneykslunargirni og andstyggilega smáborgaraskapar, sem alt vald heimtar á himni og jörðu.-------- Um kvöldið hjeldum við aftur til Stokk- hólms og kvöddum Upsalabæ, þótt flestir hefðu víst gjarnan kosið að vera þarna leng- ur. Hygg jeg, að mörgum hafi fundizt líkt og Wennerberg, að Upsala væri „márkvárdigt brau. Medicinarnas splendida lunch pd Saltsjöhaden. Næsta dag var þátttakendum skift niður eftir deildum. Var læknanemum boðið út til Saltsjöbaden, sem er baðstaður nokkuð fyrir

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.