Stúdentablaðið - 05.10.1928, Side 6
4
STÚDENTABLAÐ
1928
Nestor guðfræðideildarinnar.
Próf. Sigurður P. Sivertsen varð sextugur
2. þ. m., og bar afmæli hans þannig upp á
setningardag Háskólans, Stúdentar í guð-
fræðideild færðu afmælisbarninu veglega
veggmynd að gjöf, um leið og þeir árnuðu
kennara sínum allra heilla. Próf. Sigurður P.
Sivertsen varð rektor Háskólans á liðnu ári
eftir fráfall próf. Haralds Níelssonar.
utan Stokkhólm. Bar þar margt merkilegt
fyrir augu, og eftir að við höfðum skoðað
baðstaðinn og hið fagra umhverfi hans, var
leitað í húsaskjól, því veður var ekki sem
ákjósanlegast, regn af himni, og voru menn
óvanir þesskonar vætu. Var þá sezt að
snæðingi og setið lengi, því marga „langaði
til að segja nokkur orð“. Af merkum mönn-
um, sem þarna vorn viðstaddir, vil jeg nefna
próf. Gösta Forssell, sem mjög er kunnur
orðinn fyrir sitt míkla og þakklátsama starf
í þágu ljóslæknavísindanna. Einn norsku
stúdentanna mælti fyrir minni hans og ávarp-
aði hann eins og gamlan „kameratu en pró-
fessorinn svaraði í sama anda. Að enduðum
snæðingi voru hinir virðulegu prófessorar
teknir og „tolleraðir“ að góðum og gömlurn
sið. Sáu þeir að ekki yrði við neitt ráðið og
lögðu niður embætti8svipinn og urðu ungir
og glaðir stúdentar í annað sinn. Fór það
þeirn mæta vel.
Nú var ekki annað fyrir hendi en dansa
og syngja, vegna hins óhagstæða voðurs, og
voru það engir neyðarkostir, enda var það
gert svo um munaði. Furðaði mig á því, hve
lítið bar á dömuskorti. — TJm kvöldið var
haldið til Stokkhólms og hittust, þá allir á
„Skansinum“. Þar var margt til fagnaðar og
gott að vera.
Festen i iStadxhuset.
Alt tekur enda, og nú var skilnaðarstund-
in upp runnin. Bæjarstjórnin hafði boðið öll-
um þátttakendum mótsins til veizlu í „Stads-
husetu. Er sú bygging fræg fyrir það, hve
fögur hún er og iburðarmikil. Þar var dans
stiginn og óspart tekið lagið. Sögðu sumir
að engin ástæða væri til að harma skilnað-
inn, „því að eftir tvö ár hitturast við aftur
upp á íslandi og byrjum upp á nýttu. —
Mótið hafði farið fram með sænskri snild og
prýði og orðið Svíum til hins mesta sóma,
en öllum, sem nutu þess, til óblandinnar
ánægju. — Fimrn dagar er að vísu ekki
langur tími, en á gleðinnar stund, þar sem
hinn rjetti andi ríkir, eru stúdentar altaf
reiðubúnir til að ganga hver öðrum á hönd,
eins og góðir bræður. — Og það er engurn
efa bundið að með slíkum mótum sem þessu,
eru stór spor stigin í áttina til þess, að kynna
þjóðirnar hver annarri og efla, bróðurlegan
hug og samúðaranda milli þeirra. Og fyrir
hvern einstakan er það heldur ekki án gildis
að eiga glaðar stundir meðal góðra drengja
og minningar þeirra þegar árin líða.
Stúdentamót á fslandi.
Jeg vil þá að endingu minnast stuttlega á
væntanlegt mót hjer heima. A mótinu í Stokk-
hólmi var mikið um það rætt, hvar næsta
mót, sem haldið verður eftir tvö ár, ætti að
vera. Virtíst mér flestir búast við því, að það
yrði haldið hjer. Sænsk blöð fluttu greinir
um það, og vorum við oft um þetta spurðir.
Sögðum við sem var, að engin ákvörðun
hefði ennþá verið tekin um það, en hitt væri
víst að íslenskum stúdentum ljeki hugur á