Stúdentablaðið - 05.10.1928, Síða 8
6
STÚDENTARLAÐ
1928
Stúdentagarðurinn.
Samtal viö formann stúdentagarösnefndarinnar
Þorkel Jóhannesson, mag. art.
I síða3ta blaði var þess getið, að byrjað
yrði á byggingu Stúdentagarðsins í sumar.
Dráttur hefur þó orðið á þessum framkvæmd-
um, svd að ekki er enn farið að hefjast handa
að byggingunni. Formaður stúdentagarðs-
nefndarinnar, Þorkell Jóhannesson mag. art.,
hefur dvalið ytra i sumar. Eftir heimkomu
hans leitaði blaðið upplýsinga hjá honum
um hvernig komið væri málum Stúdenta-
garðsins.
— Fyrsti drátturinn á byggingu Garðsins
var sá, segir Þorkell, er komst á málið í
fyrravor, þegar teiknisamkepnin fór út um
þúfur. Engin teikning reyndist algjörlega full-
nægjandi, en hugmyndin var upphaflega sú,
að teiknisamkepnin skæri úr því, hvaða
byggingameistari yrði fenginn til að teikna
bygginguna. Kom þá til orða í fyrra haust,
annaðhvort að bjóða teikninguna út aftur,
eða ráða einhvern byggingameistara til þess
að gera teikninguna í samráði við nefndina.
Meiri hluti nefndarinnar áleit, að óheppilegt
væri að bjóða teikninguna út á ný sökum
þess, að þá yrði enn dráttur á framkvæmd-
um, og var þá samþykt að fela Sigurði Guð-
mundssvni, byggingarmeistara, að gera teikn-
inguna. Var svo til ætlast, að hann lyki teikn-
ingunni í vor, svo hægt væri að byrja á
byggingunni í sumar.
Teikningin var þó siðar tilbúin en menn
höfðu upphaflega gert sjer vonir um. En er
hún var tilbúin, var hún send til byggingar-
nefndar. Var það í miðjum júlímánuði. Hafði
byggingarnefnd teikninguna til meðferðar
þangað til síðast í ágúst, en neitaði loks að
samþykkja hana. Málið kom fyrir bæjarstjórn
og var þar til umræðu á tveimur fundum og
varð niðurstaðan sú, að bæjarstjórn samþykti,
að bygt væri samkvæmt teikningunni.
— En hvernig er málinu komið nú?
— Sem stendur liggja teikningarnar fyrir
ríkisstjórninni til athugunar og samþykkis,
sem er venju samkvæmt, þegar um er að
ræða mannvirki, sem ríkissjóður leggur veru-
lega fjárupphæð til, en tillag ríkissjóðs er
100,000 krónur.
— Er þá nokkur von um að ráðist verði
í framkvæmdir í haust?
— Já, ef greið afgreiðsla fæst á málinu
hjá ráðuneytinu, er þá ekki vonlaust um, að
hægt verði að byrja á greftrinum í haust og
jafnvel sjálfri byggingunni ef tíð leyfir. Enda
er það nauðsynlegt, ef maður á að geta gert
sjer vonir um, að húsið verði komið upp 1930,
sem margir telja nauðsynlegt.
— Vegna norræna stúdentamótsins?
— Meðal annars* en það er allra hluta
vegna æskilegt, að Garðurinn komist upp sem
allra fyrst.
— Hvað líður fjársöfnuninni til Garðsins?
— Þegar byrjað verður á verkinu í haust
eða vetur, þá gerum við ráð fyrir að hafa
í reiðum peningum og loforðum frá ríkinu
og einstökum hjeruðum og bæjarfjelögum
samtals 250,000 krónur. Als er gert ráð fyrir
að bygging fullbúin kosti alt að 300,000 kr.,