Stúdentablaðið - 05.10.1928, Side 9
1928
STÚDENTABLAÐ
7
Suðurhlið
Stúdentagarðsins
eftir teikningu
Sig. Guðmundssonar
byggingameistara.
svo nokkuð vantar enn á, að nægilegt fje sje
í sjóði.
— Hvaða bæja- og sýslufjelög hafa þegar
trygt sjer herbergi á Garðinum fyrir stúdenta
sína?
— Þau eru allmörg, sem það hafa gert síð-
an 1923, er hjeruðum og bæjum var geflnn
kostur á því, að tryggja stúdentum sínum
forrjettindi til herbergja í Garðinum gegn
5000 kr. tillagi. Slíkar fjárgjafir eru þegar
komnar frá: Siglufirði, Suður-Múlasýslu, Þing-
eyjarsýslum, Skagafjarðarsýslu, Skaftafells-
sýslum, Akureyri, ísafirði, Vestur-ísafjarðar-
sýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslum, Gull-
bringusýslu og Hafnarfirði. Þá hefur Jóhannes
bæjarfógeti Jóhannesson gefið eitt herbergi
handa stúdent frá Seyðisfirði eða Norður-
Múlasýslu og Kvenfjelagið „Líkn“ í Vest-
mannaeyjum hefur gefið eitt herbergi handa
stúdent frá Vestmannaeyjum, er herhergið
gefið til minningar um Halldór læknir
Gunnlaugsson. Auk þess hefur lögþing
Færeyja lagt fram 5000 krónur til þess að
veita færeyskum stúdent kost á herbergi í
Garðinum. Alls eru þetta 14 herbergi af 44
herbergjum, sem verða i Garðinum. Nokkrar
sýslur hafa enn eigi veitt nefndinni endanleg
svör um gjafir til Garðsins, en við væntum
þess fastlega, að þær muni gera það bráð-
lega.
Þá hafa og einstakir menn og fjelög
gefið fje til Garðsins. Verður allra þeirra
minst á viðeigandi hátt þegar Garðurinn er
uppkominn.
— En hvernig er það, raddir hafa heyrst
um það síðan „Stúdentablaðiðu í síðasta tölu-
blaði birti myndir af Garðinum, að teikningin
væri ekki í alla staði hin ákjósanlegasta?
— Það kann að vera, en ekki hefir nema
ein slík „rödd“ látið til sín heyra opinber-
lega. Neitun byggingarnefndar var grund-
völluð á því, að uppdrátturinn væri ekki
æskileg lausn á því hvernig byggja ætti
austanvert við torgið! Mín skoðun er sú, að
þessi lausn, sem teikningin gefur á byggingu
Stúdentagarðsins, sje sú besta, sem hægtvar
að fá, og lítur nefndin svo á, að ekki myndi
hafa fengist betri lausn þótt teikningin hefði
verið boðin út á ný og styðst hún þar við
reynslu sína af teiknisamkepninni 1927.
Stúdentagarður-
inn eftir teikn.
Guðjóns Samúels
sonar bygginga-
meistara ríkisins.
Byggingin átti að standa þar sem Good-
Templarahúsið stendur nú. I sambandi við
Garðinn hafði G. S. hugsað sjer Háskólabygg-
ingu, og var þá albygt umhverfis Alþingis-
hússgarðinn, Garðurinn að sunnan, Háskóla-
bygging og Alþingishúsið að vestan og norð-
an. Prá þessum ráðagerðum hefur aJgerlega
verið horfið eftir að hugmyndin um háborg-
ina á Skólavörðuhæðinni kom fram.