Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Page 10

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Page 10
8 STÚDENTaBLAÐ 1928. Einar Þorkelsson: Hagalagðar. Einar Þorkelsson er iðinn rithöfundur, hef- ur hann nú skrifað og sent frá sjer þrjár bæk- ur á jafnmörgum árum. „Hagalagðaru er þriðja bókin og ekki frábrugðin hinum tveim- ur, „Ferfætlingum“ og „Minningumu. í neinu sjerlegu. Höf. tekur það sjálfurfram, að ekki sje um skáldskap að ræða í sögunum, heldur endurminningar, framsettar í því formi, sem höf. sjálfum er ljúfast og tamast. Auðvitað á hver maður rjett á því að setja hugsanir sínar um liðna atburði þannig fram, en það er þá undir skáldskapargáfu manns- ins komið, hvort þessar hugsanir fái nokkurt verulegt gildi fyrir lesandann, eða hvort hægt verði að líta á verkið öðruvísi en sem sjer- kennilegan, ef til vill merkilegan forngrip. Höf. tekst best að lýsa dýrum og háttum þeirra. Veldur hjer sjálfsagt nokkru um til- finning hans með og umhyggja fyrir skepn- unum. I sögunni „Kápau og „Mera-Grímuru lyftir þessi tilfinning frásögninni upp í skáldskap, enda góðan skáldskap, en á hinn bóginn fer hin sama tilfinning stundum ineð höf. út í öfgar, t. d. í sögunni „Lært hjá ömmu“. Bókaverslun Ársæls Árnasonar hefir nýlega fært niður verð á fjölmörgum bókum, sem út hafa komið á forlaginu nokk- ur undanfarir, ár. Kennir þar margra grasa, en innan urn eru margar prýðilegar bækur, sem bókamönnum gefst nú tækifæri á að kaupa með vægu verði. Ættu menn að kynna sjer verðlækkunarskrána. Gyldendals-Bibliotek heitir safn af merkum bókum, sem Gyld- endalske Boghandel í Kaupmannahöfn hefur Setning Háskólans. Háskólinn var settur 2. þ. m. með venju- legri setniugarathöfn í neðrideildarsal Al- þingis. Afhenti rektor, dr. phil. Ágúst H. Bjarnason, innrituðum stúdentum akademísk borgarabrjef, en að þessu sinni voru stúdent- arnir, sem látið höfðu innrita sig, fáir að tölu, einir 14 nýir og einn eldri. Flestir ljetu inn- rita sig í læknadeild eða 8 talsins, 4 í lög- fræðideild, 2 í heimspekideild og 1 í guð- fræðideild. I ræðu sinni mintist rektor á ýms vand- kvæði háskólans, sjerstaklega hið bagalega húsnæðisleysi. Gat hann þess, að heyrst hefði, að Alþingishátíðarnefnd ætlaði að gera það að tillögu sinni, að ríkið gætí Háskólanum veglegt hús á þúsund ára afmæli Alþingis. Væri það hin besta afmælisgjöf, sem hugsast getur, þjóðinni til handa, — Háskóli, stofnað- ur á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta og til minningar um hann, bygður á þúsund ára afmæli Alþingis. Söngflokkur stúdenta söng hátíðarljóðin fyrir og eftir athöfnina undir stjórn Olafs Þorgrímssonar cand. juris. ráðist í að gefa út. Verður safnið alt 52 bindi. Koma tvö bindi út á mánuði og á alt 8afnið að vera komið árið 1930. Verður safn þetta mjög ódýrt, hvert bindi kostar ekki nema 1.50 kr. d. en er þó upp á 300—400 bls. Að því er efni bókasafnsins snertir, þá er það tekið víðsvegar úr heimsbókmentun- um, engar bækur eru þó teknar eftir núlif- andi höfunda. í 6. bindinu verður Gunnlaugs- saga ormstungu, útdráttur úr Njálu, Grettis- sögu og Eddukvæðum. í 12. og 14. bindi verða leikrit, Shakespeares og Holbergs, 25. bindi Goethe—Schiller, 30. bindi rússneskir rithöfundar á 18. öld, eftir einstaka höfunda verða í safninu bækur eftir: Sören Kierke- gaard, Honoré de Balzac, Thackeray, Dick- ens, H. C. Andersen, Hugo, Dostojefski, Tolstoj o. fl. L. S.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.