Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Blaðsíða 11

Stúdentablaðið - 05.10.1928, Blaðsíða 11
1928 STUDENTABLAÐ 9 Guðfræðikandidatar vorið 1928. Stúdentablaöið niun hjereftir birta ínyndir af kandidötum, sem útskrifast frá Háskólan- um, og birtist hjer þá fyrst mynd af þeim guðfræðingum, sem luku prófi síðastliðið vor. Þeir eru, talið frá vinstri til hægri: Neðri röð: Kristinn F. Stefánxson, stýrimanns frá Ak- ureyri, Pjeturssonar. Stúdent 1924. Sigfús Sigurhjartarson, áður bónda á Urð- um í Svarfaðardal, Jóhannessonar. Stúdent 1924. Jakoh Jómxon, prests á Djúpavogi, Pinns- sonar. Stúdent 1924. Vígður aðstoðarprestur til föður síns 22. júlí s. 1. Jón Ólafxson, bónda í Grjótárgerði í Pnjóska- dal, Sigurðssonar. Stúdent 1924. Efri röð: Knútur Arngrimsson, fyrrum bónda á Ljósa- vatni, Einarssonar. Stúdent 1924. Kosinn prestur í Húsavíkurprestakalli og vígður þang- að 19. ágúst s. 1. Þórarinn Þórarinsson, prests á Valþjófsstað, Þórarinssonar. Stúdent 1924. Þormóður Sigurðsson, fyrv. ráðh. frá Ysta- felli, Jónssonar. Stúdent 1924. Settur prest- ur i Þóroddsstaðarprestakalli í Suður-Þingeyj- arsýslu. Vígður þangað 19. ágúst s. 1. Benjamin Kristjánsson, bónda á Ytri-Tjörn- um í Eyjafirði, Benjamínssonar. Stúdent 1924. Ráðinn prestur frjálslynda islenska safnaðar- ins í Winnipeg. Sigurður S. Haukdal, sonur Sigurðar Sig- urðssonar ráðunauts. Stúdent 1924. Því miður náði blaðið ekki í myndir af öðrum kandidötum frá síðastliðnum vetri. Á miðjum vetri útskrifuðust 5 læknanemar, þeir: Einar Ástráðsson, Gísli Pálsson, Jens Jó- hanne8son, Lárus Einarsson og Olafur Helga- son. Einar B. Guðmundsson lauk embættis- prófi í lögfræði. I vor útskrifuðust auk guð- fræðinganna tveir lögfræðingar, þeir Gústav Sveinsson og Olafur Þorgrímsson, hafa þeir opnað lögfræðingaskrifstofu hjer í Reykjavík. Kristinn Andrjesson og Ólafur Marteinsson luku prófi í íslenskum fræðum, báðir um vorið.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.