Stúdentablaðið - 05.10.1928, Blaðsíða 12
10
STÚDENTABLAÐ
1928
0 I ' ’ ’ ' « \ \
MRASTUDENTUM
- -
Stúdentamótið á Mensa.
í sumar voru hjer á ferð 16 stúdentar frá
háskólunum í G-lasgow og St. Andrews. Voru
þeir knattspyrnumenn úr „The Glasgow Uni-
versity Athletic Club“, og keptu þeir við
knattspyrnufélögin hjer í bænum, en á með-
an þeir dvöldu hjer, notaði Stúdentaráðið
tækifærið til þess að stofna til stúdentamóts,
þó í smáum stíl. Var mótið haldið á „Mensa
academica“ kvöldið 16. júlí s. 1. og sátu það
um 80 stúdentar. Auk Skotanna bauð Stúd-
entaráðið 4 öðrum erlendum stúdentum, sem
þá voru staddir í bænum, á mótið, en heið-
ursgestur var séra Sigurður Gunnarsson præp.
hon. — Voru margar ræður fluttar, af íslend-
inga hálfu töluðu þeir Þorgrímur Sigurðsson
stud. theol., Guðni Jónsson stud, mag., Tómas
Guðmundsson cand. jur. og Lárus Sigurbjörns-
son. Flutti Guðni skemtilegt erindi um stúd-
entalífið hjer í bænum og Háskólann. Af
hálfu gestanna töluðu þeir K. Mac Donald
fararstjóri Skotanna, G. Nicholson aðstoðar-
prestur og Arnold Nordling docent við Há-
skólann í Helsingfors. Var mikið um söng
og gleðskap um kvöldið, söngnum stýrðu þeir
til skiftis Olafur Þorgrímsson cand. jur. og
síra Nicholson.
Söngbók stúdenta.
„Fjelag ísl. stúdenta í Höfn“ hefur að sögn
skipað nefnd til þess að útbúa útgáfu „Söng-
bókar stúdentau að nýju. Er þetta hið mesta
nauðsynjamál, því gamla útgáfan af söngbók-
inni, sem „Stúdentafjelag Reykjavíkuru gaf
út, er löngu uppseld og ófáanleg. Heppileg-
ast væri, að öll stúdentafjelögin gætu unnið
að þessu verki í sameiningu, en þökk sje
Hafnarstúdentum fyrir að þeir riðu á vaðið.
5IGURJÓN QUDJÓN5SON FRÁ VflTNSDflL.
Að skilnaði.
5tundin er liðin, lestin á förum,
skilnaðarkossinn brennur á vörum.
\?angarnir Ijósu vökna af tárum,
hjarta þitt titrar af hamingjusárum.
\?alborg, jeg sje hversu varirnar titra,
elskunnar perlur í augum þjer glitra.
Þú veifar hvítu hendinni þinni —
í sótugri lest er jeg lokaður inni.
Og vegurinn liggur langt frá þjer.
Hitti’ eg þig aftur? — guð hjálpi mjer.
Þökk fyrir armlögin, ylinn og kossinn,
Þú hverfur í skóginn
með skilnaðarkrossinn.
30/5 '28.
íþróttamót stúdenta í Kiel.
Þýskir stúdentar höfðu boðað til íþrótta-
móts fyrir norræna og norður-þýska stúdenta
í Kiel í vor, en mótið fórst fyrir. Hafa þeir
nú ákveðið að stofna til mótsins að vori og
hefur „íþróttafjelagi stúdentau hjer borist boð
til mótsins fyrir flokk glímumanna. Mun fje-
lagið ætla að æfa flokk í vetur með það
fyrir augum, að geta tekið boðinu í vor.
Frjettir af ísl. stúdentum erlendis.
Ritstjórn blaðsins hefur beðið þá ísl. stúd-
enta, sem utan fara til náms við erlenda há-
skóla, að senda sjer frjettagreinar við og við
um stúdentalífið í háskólabæjunum. Hefur
blaðið farið þess á leit við Hafnarstúdenta,
að þeir kjósi ritnefnd, er annast skuli sjer-
staka síðu í blaðinu. „Fjelag ísl. stúdenta í
Kaupmannahöfnu er stærsta íslenska stúdenta-
fjelagið ytra, og væri æskilegt, að samvinn-
an milli þess og stúdentafjelaganna hjer heima