Þjóðviljinn - 18.12.1977, Page 6

Þjóðviljinn - 18.12.1977, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagurinn 18. desember 1977 - Tryggvi Emilsson I kröfugöngu — nánar tiltekiö I Keflavlkurgöngu. FYRSTA KRÖFU - GANGAN Hér fer á eftir kafli úr Öðru bindi æviminninga Tryggva Emilssonar verkamanns, Baráttan um brauðið. Segir þar frá fyrstu kröfugöngunni sem farin var á vegum verklýðsfélaganna á Akureyri árið 1931. „Ekki er þess að dylgast, að fólkið sem þátt tók i kröfugöngunni gekk uppréttara en nokkru sinni áður”, segir Tryggvi — en hann gleymir þvi ekki heldur, að það þurfti kjark til að rétta úr sér þennan fyrsta maidag fyrir 46 árum. Kaflinn er birtur með leyfi útgefenda. Þegar fyrsti maí var orðinn há- tiðisdagur verkalýðsins á Islandi var sá háttur á haföur á Akureyri að haldnar voru innisamkomur með söng og ræðuhöldum. 1930 var hátiðin auglýst undir merki hamars og sigöar og var i blaði verkalýðsins skorað á allt vinn- andi fólk að taka sér fri frá vinnu þann dag. Heilsdags fri var þá á Siglufirði og hálfsdags fri i Reykjavik. Ungir jafnaðarmenn gengu kröfugöngu inn að sam- komuhúsi og báru rauðan fána fyrir göngunni og þótti það tiðind- um sæta. Formaður ungra jafnaðarmanna var þá Eggert Þorbjarnarson. Fyrsta mai 1931 var gengin kröfuganga á vegum verkalýðs- félaganna á Akureyri i fyrsta sinn og var stormað út á götuna með kröfuspjöld og fána, islenska fán- ann og þann rauða. Þennan dag bar upp á kóngsbænadaginn sem að visu var afdankaður og guð- laus orðinn, en þó get ég mér til að mörgum konungshollum góð- borgurum hafi gengið högg nærri hjarta þegar rauðir byltingarfán- ar blöktu yfir höfðum vinnulýös- ins i sinni storkandi stærð. Um morguninn var ég snemma á ferli að venju og stóð á Torfu- nefsbryggjunni i þann mund sem fiskimenn lögðu þar aö trillum sinum. Ég staldraði við að spjalla við nokkra verkamenn um veðrið og um daginn og minnti menn á kröfugönguna þar sem til mikils var að vinna fyrir erfiðisvinnu- fólk að sýna samstööu, en margir þessir karlar voru enn áhuga- lausir um gönguna og snópuðu undir húsvegg i von um vinnu- handtak ef til félli, vinnuveitend- ur voru þvi vanir að skotra aug- um til bryggjunnar ef þá vantaði mann til að bera fyrir sig stól milli húsa eða annað slikt. Ég keypti mér fisk i soðið og var að leggja á stað heimleiðar þega'r ég mætti ungum manni og andlitsfriðum með rautt merki í trey jubarminum og var þar kom- inn Asgeir Blöndal Magnússon að selja merki dagsins, það kostaði eina krónu og var jafnvirði þorsk- kippunnar sem ég bar, og þarna á Torfunefsbryggjunni keypti ég mittfyrsta rauða merki. Það var næstum hálftima gangur upp að Skarðii slabbfæri þennan morgun þar sem enn var snjór i sköflum hér og þar, sumsstaðar var aur- bleyta. Þegar heim kom var kall- að til min frá búgarðinum að gera þar við gaddavirsherfi þar sem komið varað slóðadrætti, ég hafði þeir menn áttu að halda uppi röð og reglu og gæta þess að gangan færi vel fram. Um tvöleytið hafbi verkafólkið safnast saman við Verklýðshúsið og þaðan var ganganhafin. Um 120 manns tóku þátt i göngunni auk nokkurra barna og unglinga sem margir leiddu sér við hönd. Ekki er þess að dyljast að fólkið sem þátt tók í göngunni gekk uppréttara en nokkru sinni áður og lét engin að- hróp á sig fá. Þaö var eins og nýtt afl hefði losnað úr læðingi, nýr kraftur sem aldrei yrði brotinn á bak aftur, svo var þessi kröfu- ganga samstillthreyfing, einbeitt og ákveðin og hún setti svip nýrr- ar orku á bæinn, vinnujálkarnir heimtuðu sinn rétt, „vorn rétt til að lifa eins og menn”. A götunni heyrðum við göngufólkinu for- mælt af þeim best stæðu I bænum sem stóðu upp við húsveggi spari- búnir á vinnudegi verkafólks, en við vissum að á mörgum stöðum i þessum ihaldssama kaupstað var verkafólk að vinna, fólk sem þorði ekki að sleppa vinnudegin- um. Það var gert að okkur háð og spé, aö samtökunum og að ein- stökum mönnum sem voguðu að láta sjá sig i kröfugöngu og það voru steyttir að okkur hnefar út um glugga. Unglingar og börn „betri borgara” hópuðust Ut á götuna með ólátum og atgangi sem leiddur var af fullorðnum mönnum, það var hrópað „niöur með bolsana” og þaö var kastaö að okkur aur af götunni. Sá kvitt- ur kom upp siðar að þessi börn og unglingar hefðu fengið fri i skólanum og var mikið um það talað eftirá þennan dag, en næstu föstudag þar á eftir sendi skóla- stjóri barnaskólans afsökunar- beiðni til Verkamannafélagsins vegna framkomu barnanna þennan fyrsta mai, það var ekk- ert fri gefið i skólum, aðeins var sagt að nokkrir unglingar hefðu skrópað vegna foreldra sinna. Það gekk á ýmsu ótrúlegu þennan dag, vist hafði maður bú- ist við köldum kveðjum frá ihaldssinnuðum andstæöingum og embættismönnum, ai að allt þetta velklædda fólk væri svona fjandsamlegt vinnulýðnum þar sem konur jafnt sem karlar létu i sérheyra, það var með ólikindum ieinum smábæ. Virðulegur kaup- maður með kúfhatt og dálitið framsettur stóð á götuhorni og horfði á kröfugönguna og sagði Þessi mynd er llklega tekln I sambandl vlö Krossanesverkfallið sem kemur mjög við sögu hjá Tryggva. Frá vinstri: Jdn G. Quðmann, Brynjólfur Bjarnason, Þóroddur Guðmundsson. * Ur ævi- minningum Tryggva Emilssonar verkamanns legið yfir þessu verki daginn áður og var þarna um stund að ljúka viðgerðinni en var kominn heim nokkru fyrir hádegi. Þannig stóö á að ég var enn með berklabólgu i hægri hendi og átti þvi óhægt um öll verk þó ekki mætti ég láta það verða mér til stórtafa, ég hafði vettling á hendinni og þannig til reika gekk ég á stað að heiman ofan I Verklýðshús, albúiisi i kröfugönguna. í Verklýðshúsinu við Strand- götuna var unnið aö undirbúningi og skipulagningu göngunnar, teknir voru fram islenski fáninn og sá rauöi sem báðir voru hinir myndarlegustu fánar og minnir mig að bræður tveir bæru þá i fylkingarbrjósti, þeir Stefán og Karl Magnússynir, stórir menn og drengilegir og djarfir i fram- gangsmáta. Kröfuspjöldin og borðarnir, sem Elisabet Geir- mundsdóttir listakona mun hafa lagt hönd að, risu enn upp við veggi og sýndust mér áletranim- ar lifi gæddar. A spjöldunum voru kröfur verkalýðssamtak- anna skrifaðar skýru letri og á - berandiþarvarkrafist vinnu fyrir alla, hærra kaups, átta stunda vinnudags án kaupskerðingar og atvinnuleysistrygginga, auk margs annars sem þá var efst á baugi. Þessi merku kröfuspjöld voru borin i göngunni og sýndust hanga eins og sverð yfir höfðum „betri borgara” sem sögðu kröf- urnar óbilgjarnar og ófram- kvæmanlegar og ýgðust við burðarmönnum. Nú var ég kominn með rauöa borðann minn i barminn og fékk rauðan renning um handlegginn sem var merki þess að ég var einn af útvörðum göngunnar en

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.