Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 14.12.1976, Page 7

Stúdentablaðið - 14.12.1976, Page 7
Stúdentablaðið 7 Stúdentablaðið 1». tbl. 52 árg. 14.' desember, 1976. tJtgefandi: Stúdentaráb Háskóla Islands. Útgáfustjórn: Stjórn Stúdentaráðs. Ritstjóri: Páll Baldvinssoji Askriftargjald á ári kr. 1000. Verð i lausasölu kr. 100 kr. Auglýsingar: simi 15959, 9-4 alla virka daga. Prentun: Blaðaprent. ' * Erlend tímarit Mikið úrval af bókum frá USSR á ensku. Listaverkabækur frá Aurora. Skáldsögur og barnabækur frá Progress. Tækni og visindabækur frá Mir. Hljómplötur: Klassik og þjóðlög frá Melo- dia, Suptafon. Einnig nótur fyrir flest hljóðfæri. Hverfisgötu 50, v/ Vatnsstíg, sími 28035 Til félagssamtaka stúdenta. Úthlutunarnefnd stúdentaskiptasjóðs auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir fjárveitinga- árið 1977. í umsóknum skal tilgreina tilgang ferðanna, fjölda þátttakenda, fargjaldskostnað og brottfarartima. Úthlutunarnefndin vill vekja athygli á þvi að úr Stúdenta- skiptasjóði eru einungis veittir styrkir til greiðslu á far- gjaidskostnaði, en ekki uppihaldi né öðrum kostnaði með þeirri undantekningu, þó, að úr sjóðnum eru veittir styrkir vegna dvalar erlendra skiptinema á vegum hinna ein- stöku félaga. Regiugerð sjóðsins liggur frammi á skrifstofu SHl og er þar jafnframt tekið á móti umsóknum. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 1977. Úthlutunarnefnd stúdentaskiptasjóðs. Úthlutunarnefnd félagsmálasjóðs stúdenta auglýsir her með 'eftir umsóknum um. styrki úr sjóðnum. Hlutverk' sjóðsins er að styrkja og efla félagsstarfsemi stúdenta I Háskóla tslands. Samkvæmt 1. grein reglugerðar sjóðsins skal það gert með þvi að: a) styrkja starfsemi deildarfélaga innan Háskóla tslands, og annarra félaga, sem starfa I þágu stúdenta. b) styrkja blaðaútgáfu þeirra aðila sem getiðer um I a-liö. Umsóknum um styrkveitingu skal skila á skrifstofu Stú- dentaráðs fyrir 15. janúar 1977. Umsókn, sem ekki berst áður en umsóknarfrestur rennur út verður visað frá. Um- sókn skal fylgja greinargerð um starfsemi umsækjanda. Reglugerð fyrir félagsmálasjóö liggur frammi á skrif- stofu Stúdentaráðs. Úthlutunarnefnd Félagsmálasjóðs. Styrkur til háskólanams í Svíþjóð Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram i lönd- um se.n aðild eiga að Evrópuráðinu tiu styrki til háskóla- náms I Sviþjóð háskólaárið 1977-1978. — Ekki er vitað fyr- irfram hvert einhver þessara styrkja muni koma i hlut is- lendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til fram- haldsnáms við háskóla. Styrkfjárhæðin er 1.555.- sænskar krónur á mánuði i niu mánuði en til greina kemur i ein- staka tilvikum að styrkur verði veittur til allt að þriggja ára. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi áður en styrktimabil hefst. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til: Svenska Instituist, P.O. Box 7072. s-103 Stockholm 7. Sverige, fyrir 28. febrúar 1977, og lætur sú stofnun i té frekari upp- lýsingar. Menntamálaráðuneytið, 26. október 1976 Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á liðna árinu Ríkisútvarpið A fullveldisdaginn 1. des. kom út enn eitt Vökublaðið. Það hafði að geyma sem áður hugarflug lýðræðissinnaðra stúdenta, mishátt og misjafn- lega kátbroslegt. Auk þess var blaðið fleytaflutt af auglýsingum, einkum til þeirra sem ætla sér að byggja eða kaupa bil, hljómtæki eða húsgögn. I blaðinu voru einnig tvær endurprentaðar auglús- ingar úr Stúdentablöðum frá þessum vetri og — tvær endur- prentaðar greinar úr sama blaði. önnur þeirra er eftir Eirik Þorgeirsson og er henni sér- staklega beint að undir- rituðum vegna fréttaflutnings hans af fundi Stúdentaráðs þann 14. öktóber siðastliðinn. Þykist hinn glaölegi broshýri ungi og efnalegi læknanemi og afturhaldsseggur Eirikur Þor- geirsson orðinn allvanur þvi að pb umsnúi sannleikanum og rangtúlki viðhorf manna. Samt þykir honum súrt i broti og gerir þvi leiðréttingu. Málið er að á þann veginn vaxið að fyrir fundinum lágu tvær tillögur. önnur var samin vel i tima og lá fyrir degi fyrir fundinn. Hina sömdu Vökumenn upp úr þeirri fyrri og lögðu fram litlu fyrir fundinn. Þar var siðan samþykkt að fella tillögurnar i eina og var manni úr hvorri fylkingu falið að annast það. Var það gert vegna þess að vinstri menn álitu að staðan væri sterkari ef samþykktin væri samhljóða. Nú er það persónuleg skoðun undirritaðs að það hafi verið mikill feill að fella tillögurnar i eina. Það dró verulega úr krafti mót- mæla til rikisvaldsins og ættu stúdentar að geta dæmt þar um sjálfir þvi báðar eru til- lögurnar birtar hér með. Eirikur ásamt fleirum greiddi atkvæði gegn tillögu vinstri manna, þótt hann i athuga- semd sinnii vilji láta það lita öðru visi út, fýlupokinn og fólskumennið pb sé enn að villa stúdentum sýn og ljúga og falsa. Það sem kom siðan út úr samsullinu birtist á for- siðum 7. tbls. Siðan gerir Eirikur það að umtalsefni að hann hafi gert bókun i afgreiðslu þessa máls, allt það sem pb hafi sagt i fréttinni sé uppspuni frá rótum. Gaspur Eiriks Þor- geirssonar á fundinum sem hermt var eftir honum i fyrr- nefndri frétt er rétt haft eftir, þvi ætti hann ekki að geta neitað. Hann stakk upp á þvi að Lánasjóði gæti helst bjargað erlent lán, enda er drengurinn haldinn sömu eymdarkennd og hans stétt, islenskir smaborgarar, þeir hafa dyggilegast leitað ráða við efnahagsvanda með þvi að fá lán erlendis frá, enda hafa þeir ekki lengur stjórn á eigin efnahagslifi. Seðlabanki - Islands er rekinn á fyrir- skipunum frá Alþjóða- bankanum. Nordal er eins og hver annar kontóristi. Og þó bókun Eiriks hafi bæst ofaná aðra heimsku sem hann bauð þessum Stúdentaráðsfundi uppá, þá breytir það ekki fréttagildi ummæla hans. Siðan getur hann samið hvers kyns leiðréttingar og birt þær aftur og aftur. Staðreyndir standa eftir sem áður. Og fyst ég er á annað borð byrjaður að pexa við þessar lýöræðissinnuðu lyddur, þá er rétt að taka annan eins til: Sigurð Hektorsson. Um hann Tlllaga aðályktun. Stúdentaráð fordæmir harV lega þann UHÖguflutning, sem lulltrúarrikisvaldsins hafa haft i frammi I stjórn LÍN, við samningu nýrra úthlutunar- regina, og miðar einungis að þvi að minnka fjárþörí sjóð- sins á kostnað námskostnaö námsmanna. Þrátt fyrir að ástæðulaust sé að hvika frá meginatriðum gömlu úthlut- unarreglnanna sem hafa verið i stöðugri mótun um langt skeið, hafa fulltrúar rikisins talið ástæðu tii að setja fram tiiiögur að gjörbreyttum út- hlutunarreglum. M.a. fela til- lögur þeirra i sér að ekki skal tckið tillit U1 eðlilegrar neyslu þátta, s.s. tóbaks, drykkjar- fanga, leikhúsferða, tónleika o.þ.h. Með sliku er verið að falsa raunverulegan fram- færslukostnað námsmanna og þeim gerðar upp annars konar þarfir en öðrum þegnum þjóð- félagsins. A þennan hátt er námsfólk raunar siitið úr tengslum við aðra þjóðfélags hópa og þviskipað á sérstakan bás. Það er þeim mun óréttmæt- ara, að rikisvaldið reyni nú enn að skerða lánin meö föls- unum á raunverlulegum kostnaði námsmanna, þegar ljóst er orðið, að skv. hinni nýju skipan námslána munu þeir standu undir fjármögnun Lánasjóðsins að stærstum hluta. Þá er vert að benda á þau vinnubrögð sem höfð voru i frammiaf stjórn LtN við gerð nýs kostnaðarmats. Fulltrúar rikisvaldsins studdu ekki við beinar kannanir, heldur byggðust niðurstöður þeirra eingöngu á hugarflugi þeirra og hljóta þvi að teljast vara- saraar i meira lagi. Ennfremur er það nöturieg staðreynd að meö tillögum sinum um 25% skerðingu á lánum til sambýlisfólks, vega fulltrúar rikisvaldsins harðast að þeim sem mest eru aðstoð- ar þirfi, (þ.e. barnafólki). Tillögur þeirra miða nánast að þvi að minnka fjárþörf sjóðs- ins með þvi að gera þeim ókleift að stunda nám sem eru sjóðnum kostnaðarfrekastir þ.e. barnafóiki. Sem dæmi má nefna að skv. tillögum rlkis- fulltrúanna er sameiginleg fjárþörf 2 einstaklinga 130 þúsund plús bókakostnaður. En hjón með eitt barn hafa fjármeð eitt barn hafa fjár þörfina sem nemur 122 þúsund. Þetta dæmi talar skýru máli um stefnu þeirra. Með þessu er verið að gera nám að forréttindum þeirra, sem búa að efnuöum for- eldrum og það er vissulega athyglisvert, að tillögumenn eru fulltrúar þeirra afla, sem mest hafa gælt við jafnrétti og frelsi til mennta i orði. Stúdentaráö beinir þeirri áskorun lil fulltrúa rikisvalds- ins i stjórn LIN: — að þeir falli þegar frá tiliögum sinum um skerðingu á lánum til námsmanna i sam- búð. — að þeir hviki frá þeirri ákvöröun sinni að fella brott úr framfærslumati liði sem fyrri stjórnir LIN hafa ávallt haft inni. Að lokum bendir Stúdentaráð á þá staðreynd að skv. útreikningui Lánasjóðs sjálfs er kostnaðarmat náms- manna ranglega metiö um 26%, og itrekar þá kröfu sina, að kostnaðarmat Lánasjóðs frá 1974 verði viðurkennt og tekið inn i úthlutunarreglur. Stjórn SHt birtist örstutt glósa i 8. tbl. Stúdentablaðsins lika skrifuð af undirrituðum vegna af- greiðslu tillögu i hagsmuna- nefnd um jöfnun leigu á ibúðum I hjónagörðum. Var tillagan lögð fram vegna þeirrar árásarsem rikisvaldið hafið framið á barnafólki i námi, en i stærri ibúðum á hjónagörðum er einmitt slikt barnafólk. Jöfnun þessi er þvi til þess að þaö hefur nokkrum þúsundum meira milli hand- anna á mánuði en ella. Gegn þessu lagðist Sigurður og var sú andstaða hans bókuð. Þetta þótti mér fáheyrt ofstæki og hundingsháttur og þótt mér hafi ekki til þessa þótt Sigurður sérstaklega rismikill fulltrúi stúdenta þótti mér nóg um. Þvi var glósan skrifuð. Og vitaskuld birtist grein i næsta Vökublaði undir titlinum „Rangfærslur”, „Óskýr frétt ritstjórans... sneri Vökublaðið sé til Sigurðar”. Og Sigurður segir: „Ég andmælti hins vegar þeim hluta tillögunnar er fól i sér jöfnun á verði tveggja og þriggja herberga ibúða, og færði þar mörg rök fyrir þvi sem ritstjórinn hirti vitaskuld ekki um aö rekja.” Helvitis skithælL ritstjórinn. Enda segir Sigurður að lokum: „Það hlýtur að vera timaspursmál, hvenær stúdentar fá nóg af undir- róðursskrifum og þvættingi ritstjórans i Studenta- blaðinu.” Nú var ekki á annað tæpt i glósu minni en þvi að Sigurður væri gegn þessari jöfnun, eins og hann staðfestir i orðum sinum: „Eg andmælti hinsvegar þeim hluta til- lögunnar er fól i sér jöfnun...” Er það nema furða að maður þurfi að herða sig upp til að ræða við svona marglyttur, semhvergi er á takandi, slim- ugar og glærar i gegn. Fréttamennska ritstjóra Stúdentablaðsins hlýtur að taka harkalega á þeim öflum sem starfa gegn hagsmunum stúdenta. Ég er þeirrar skoð- unar að framferði þessara tveggja manna sé ekki stúdentúm á neinn hátt til góða. Ég leyfi mér að benda á það hvar sem ég vil, meðal annars i þessu blaði. Ég álit þá hafa mjög brenglað mat á stöðu stúdenta sem láglauna- hóps og ekki færa um að starfa i þeirra þágu. Óski þeir eftir að ég týni til fleiri dæmi en þau sem hér hafa verið gerð að umræðuefni og áréttuð, þá get ég það. Þótt ég reyndar sjái ekki neitt skemmtilegt við það að fara að skrifa fram- haldssögu i Stúdentablaðið með jafn ömurlegum sögu- hetjum og þessum tveim afturhaldssömu lækna- nemum. pbb Tillaga frá Vöku. Stúdentaráð fordæmir nýjar tiliögur rikisvaldsins varðandi úthlutunarreglur, er fram hafa komið I stjórn LtN að uudanförnu. Stúdentaráð skorar á stjórn LIN , að: 1) Jafnan sé byggt á sem allra raunhæfustu mati fram- færslukostnaðar. 2) a) Lán til námsmanna I sambúð verði ekki skert. b) Lánsviðbót vegna barns/barna verði ekki skert. 3.) Engir þeir liðir sem áður hafa verið i mati framfærstu- kostnaðar veröi felldir niður. 3) Engir kostnaðarliðir, sem áður hafa verið sérstaklega tilgrcindir, veröi fclldir undir liðinn ýmislegt.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.