Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 8

Stúdentablaðið - 14.12.1976, Blaðsíða 8
ttr lofti. Nýtt skipulag lóðar HI SKJÓL FYRIR NORÐANÁTT Síðari hluta nóvember voru kynntar tillögur finnans Alvar Aalto og framtiarskipulagi há- skólasvæðisins. Alaðamönnum var allflestum boðið á fund með kaffi og kökum, myndir birtust siðan af rektor, dr. Magga og kennslustjóranúm skælbrosandi og þeir voru allir mjög hressir með tillötu Aalto. Tillagan hefur legiö fyrir frá þvi i janúar, en nokkur ár eru siö- an þessi þekkti arkitekt tók þetta verk að sér. Vörpúðu þá margir öndinni léttar, einum bitanum var þó borgið úr munni tslenskra arkitekta. Þó blasir sú staðreynd við, að þó gott skipulag sé til, þvi lausnAalto er snjöll, þá er alltaf nóg, af misvitrum embættis- mönnum sem ganga þvert á slik- ar tillögur. Það hafa verið örlög þessarar þjóöar að sérhæfa sig i slikum aulum og til að kóróna allt þá sitja þeir oft mestu ábyrgðar- stöðurnar Nægir að benda á hrak- farir i islensku skipulagi til þess, tillögurnar að Þingvöllum og Fossvogshverfi sem voru báðar algerlega hundsaðar af stjórn- völdum. Skjól. Svæðisskipan Aaltos gengur út- frá aöalbyggingu sem miðju. Hann heldur sig lika við ásinn sem kominn er með Suöurgötunni og gerir ráð fyrir að handan göt- unnar verði byggingar á vegum skólans, svo sem VR og Þióðar- bókhlaðan, en það stendur til að hefja framkvæmdir við hana á næsta ári. Hann gerir þó ekki kröfuá hendur borgaryfirvöldum aö Suðurgatan leggist af. Hún klýfur hverfið að vissu leyti i tvennt og verður ævinlega til trafala, það mun aukast til muna ef hún verður gerð að hraöbraut, einsogáætlaðer i aðalskipulagi. Siðan er ætlun Aaltos að þrengja byggingar á svæðinu kringum aðalbyggingu. Byggt verði I sveig og niður af henni þannig að skeif- an haldist að hlut, en verði um- kringd af byggingum i halfboga. Þannig lokast umferðargnýrinn af, auk þess sem skjól myndast á svæðinu fyrir norðanáttinni. Hug- myndin er að útfrá háskólanum til austurs risi mikil húsasam- stæða undir húmaniskar greinar. A vængnum á móti (sjá mynd) risi m ik ill f yrirlestrasalur. E innir risi miklar byggingar andspænis Amagarði og Lögbergi. Niðri mýrinni á Nörræna húsið að bera viö fjallahring við botn þriðju tjarnarinnar. Siðan er Háskólan- um opinn svæði til byggingar i suður meðfram prófessorabúö- stöðum og hjónagarði allt út að Tivoli. Athugunar er þörf. Skipulag Aaltos er aðeins hug- mynd. Þaö tengist hvergi neinni ákveðinni stefnu yfirvalda, enda eru byggingarmd skólans, svo húsnæöi hans verði vel fyrir kom- iö, ekki I höfn á næstu áratugum. A lóð landspitalans er gert ráð fyrir mikilli byggingu undir lækna og tannlæknadeild. Þá er sömuleiðis gert ráð fyrir Náttúru- gripasafni i suðri. Þessi áætlun tengist samt ekki víðfeðmu og ákveðnu skipulagi. Þetta er að- eins skýjaborgið og timinn einn virðist geta sagt hvert útlit svæðisins verður þegar allt kem- ur til alls. Háskólaritari, lector og dr. Maggi: Ef þú smælar framan I heiminn Frá öskjuhlið. Fj órðadagsgleði verður haldinn 28.des. 9-3 28. des. kl. 21-3 í Sigtúni Stuðmenn sjá um fjörið Miðasala í anddyri FS. 27-28 kl.1-4. Miðar seldir stúdentum gegn framvísun skýrteinis á kr. 800 miðann. Aðrir borgi 1200 kr. Samtök stofnuð um dagvistarheimili Byggjum fleiri dagvistarheimili Fóstrur, foreldrar og fleiri aðilar hafa stofnað með sér samtök til að berjast fyrir úrbótum i dagvistarmálum. Samtökin eru öllum opin og byggjast á einstaklingsaðild. I. Skipulag samtakanna er eftirfarandi: a) Stjórn kosin á aðalfundi. Hana skipa fimm menn og skipta þeir með sér verkum eftir þörfum. b) Almennir félagar starfa i starfshópum eftir getu. Starfshóparnir vinna eftir stefnuskrá samtakanna. Starfshópar eru ýmist stofnaðir af stjórn eða myndaðir á félagsfundum. c) Félagsgjald er 500 kr. á ári eða hærra að vild félaga. Aðalfundur ákveður félagsgjald. II. Markmið samtakanna: Aðaimarkmið samtakanna er að öll börn á forskólaaidri eigi rétt á dagvistun. Samtökin teija dagvistun þessara barna forsendu fyrir jafnrétti til náms og starfs. Meginástæður þessarar afstöðu eru tvær. Annars vegar eru börnin og hins vegar eiga báðir foreldrar rétt á að sækja vinnu. Af þessu leiðir að samtökin berjast fyrir fleiri og betri dagvistar- heimilum og bættri starfsaðstöðu starfsfólks þeirra. III. Kröfur: Af markmiðum samtakanna leiðir að þau setja fram eftirfarandi kröfur: a) Fleiri dagvistarheimili. — öll börn eigi rétt á dagvistun. b) Nýbyggingar og frágangur: 500 milj. úr rlkissjóði strax. c) Engar hækkanir á dagvistargjöldum — fast hámarks- gjald. d) Færri börn á hvern starfsmann — aukin velliðan og þroski. IV. Aðgerðir: Samtökin leggja á það aðaláherslu, að treysta verði á samtakamátt fjöldans, fremur en gerðir einstaklinga eða ráðamanna I komandi baráttu. Samtökin álita að rikisvaldið og bæjar- og sveitarfélög eigi að bera kostnað dagvistar að mestu leyti og beina þvi kröfum sinum og baráttu að þeim aðilum. Samtökin munu nota fjölmiðla og standa fyrir ýmsum aðgerðum, svo sem undirskriftasöfnunum, fundum, kröfugöngum o.fl., til að koma skoðunum sinum á framfæri. Dag v i sta r sa mtök i n Starfsgrundvöllur samþ. á stofnfundi 20. nóv. ’76. pbb

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.