Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 06.03.1978, Síða 2

Stúdentablaðið - 06.03.1978, Síða 2
Stúdentablaðið 2 mb Hags mu nafélag stúdenta Vaka er félag þeirra stúdenta, sem aöhyllast lýðræðislegar lífs- skoðanir. VAKA er baráttuvettvangur fyrir umbótasinnaða stúd- enta, sem vilja vinna að hagsmunamálum stúdenta á þeim grund- velli, sem best hefur reynst, þ.e. að setja baráttumálin fram á greinagóðan og raunhæfan hátt, beita sanngirni og virða réttar leikreglur lýðræðisins. VAKA er opið félag. Allir þeir stúdentar, sem áhuga hafa, geta tekið þátt í störfum félagsins og haft þar áhrif. Stefna VOKU í hagsmunamálum stúdenta er skýr. Hagur stúdenta situr alls staðar í fyrirrúmi. Stefna Vöku í þjóðmálurr ber þess merki að félagið sækir fylgi sitt til stuðningsmanna allre lýðræðisf lokkanna, auk hinna f jölmörgu, sem ekki hafa tekið af- stöðu til neinna f lokka. Er þar í mörg horn að líta, en það er stef na þess að allir lýðræðissinnaðir stúdentar sameinist í VÖKU. Munið kosningaballið i Sigtúni 9. mars Hvar er árangurinn ? Þegar stúdentar ganga til kosninga nú og eiga að velja á milli nú- verandi stjórnar stúdentaráðs og VÖKU, félags lýðræðissinnaðra . stúdenta, sem hefur ekki haft meirihluta síðan 1971, ættu þeir að reyna að svara eftirfarandi spurningum: 1) Hvaða árangur hefur náðst í baráttunni fyrir bættum náms- lánum? 2) Hvernig er ástand og framtíðarhorfur Garðanna? 3) Hvernig gengur rekstur Félagsstofnunar stúdenta? 4) Hvaða um- bætur hafa verið gerðar á rekstri matsölu stúdenta til lækkunar vöruverðs? 5) Hvernig eru rekstrarhorfur Hjónagarðanna? 6) Hvað hafa margir almennir stúdentafundir verið haldnir í vetur? 7) Er Stúdentablaðið málgagn allra stúdenta meira en aðeins í orði? 8) Er kosningafyrirkomulag til 1. des. hátíða stúdentar með eins lýðræðislegum hætti og unnt er? Til að meta árangur núverandi vinstri meirihluta verður hver stúdent að svara þessum spurningum og f leiri. En svörin eru fá og neikvæð. Er þvi ekki óeðlilegt, að stúdentar spyrji: Hvar hefur stjórn stúdentaráðs verið í vetur? Raunhæfari baráttuleiðir Barátta stúdenta fyrir bættum lánum hefur verið megin deilu- efni í hagsmunamálefnum stúdenta f mörg ár. Stefna VÖKU hefur ætið verið skýr: Námslán séu ætíð í hópi hagstæðustu lána á hverj- um tima. Eru stúdentar smám saman að sannfærast um réttmæti þessarar kröfu. En lítill sem enginn árangur hefur náðst frá því lögin um visitölubindingu námslána voru sett að frumkvæði vinstri manna. Ýmsar baráttuleiðir hafa verið reyndar, en alltof mikið hef ur verið um árangurslausa útif undi og þaulsetur, sem ná aðeins árangri samhliða öðrum aðgerðum. VAKA hefur lagt áherzlu á, að til að ná árangri þarf að beina spjótunum að þeim aðilum, sem hafa ákvarðanavaldið. Sýndi VAKAeina leiðíverki i nóvember s.l. með því að gefa stúdentum kost á að senda þingmönnum f járveit- ingarnefndar Alþingis bréf með áskorun um veitingu 100% lána. Lét VAKA siðan SHI eftir framkvæmd úrvinnslunnar. Alls sendu um 1200 nemendur áskorun til f járveitingarnefndar. VAKA bendir á eftirfarandi atriði varðandi þessa aðgerð: 1) Krafan í dag er 100% lán, 2) Stúdentar snúa sér beint að þeim aðila, sem hefur ákvörðunarvaldið, 3) Hverjum stúdent gefst kost- ur á að koma mótmælum sinum persónulega á framfæri og sýna þannig raunverulegan baráttuvilja, 4) Samvinna VÖKU og vinstri manna i þessu brýnasta hagsmunamáli stúdenta lofar góðu, 5) Frumkvæði aðgerða þarf ekki alltaf að koma frá stjórn stúdenta- ráðs. Könnun á námsálagi Tímabært er orðið að framkvæmd sé könnun á námsálagi i háskólanum. Standa vonir til, að slík könnun verði gerð næsta vetur. Er það grundvallar- atriði, að hún verði undirbúin i samráði við alla hagsmunaaðila, svo niðurstöður þeirra rannsókna verði raunhæfar og ó- véfengjanlegar. Gallað kerfi Könnun á vinnu stúdenta getur verið grundvöllur að úrbótum á námstilhögun hinna ýmsu deilda skólans. Endur- skipuleggja þarf einingakefi námsins. Meta þarf allt nám til eininga, en i kjöl- far þess má bæta lánakerfi stúdenta, námstímamörk og vinnuálag. VAKA opnar hér umræðuna og leggur fram sinar hugmyndir að betri skóla. Markmið Megin markmið þessara tillagna VÖKU er, að hver stúdent, hvar i skól- anum sem hann stundar nám, fái að ráða tilhögun náms sins eins mikið og raunhæft er. Einingakerfi náms Einingakerfi náms verður að endur- skipuleggja i þeim deildum, sem það nú er og taka upp i hinum. Verður að ganga út frá, að ein námseining jafngildi 40 stunda námsviku. V____________________________ r > Að hverju hyggst Vaka beita kröftum sínum næsta vetur? lífvænleg lán fyrir stunda vinnuviku VAKA íélag lýðræíieainnaðra stúdenta v._________________________;_____________________J Námshraði Tryggja þarf, að einingakerfið sé sveigjanlegt, svo stúdentar hafi alltaf kost á að ljúka náminu á lengri eða skemri tima en lagður er til grundvall- d.F- Viðmiðunarnámstimi Lánasjóður islenzkra námsmanna verður að taka mið af heildarnámstima hverrar deildar. Sá viðmiðunarnáms- timi er sá timi sem það tekur náms- mann að meðtaka allt námsefni deild- arinnar með 40 stunda vinnuviku. Námslán Námslán verði raunverulega hagstæð. L.í.N. veiti fullt lán, er fullnægi fjárþörf námsmanns, ljúki hann tilskyldum einingafjölda með 40 stunda vinnuviku. Aukin afköst Ljúki námsmaður fleiri einingum en tilskyldar eru, skal lánasjóðurinn mæta þeim auknu afköstum með hærra láni. Deildamúrar Upptaka eininga i námi opnar deildir skólans. Auðveldar það upptöku nýrra deilda : gefur möguleika á fjölbreyttara námi: meiri tilhneiging verður i þá átt, að gefa kost á framhaldsnámi innan há- skólans. ___________________________)

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.