Stúdentablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 2
Um kosningar til Stúdentaráðs
f nútíð og fortíð
Enn einu sinni standa stúdentar í Háskóla íslands frammi fyrir því að velja
fulltrúa sína í Háskólaráð og Stúdentaráð Háskóla íslands. í fyrsta skipti í 25 ár
stendur valið á milli fjögurra fylkinga en undanfarin fjögur ár hafa þrjú félög
boðið fram. í bæði ráðin er kosið almennri, hlutbundinni listakosningu og sitja
þeir, sem kosningu hljóta, í tvö ár. Á kjörskrá eru allir skráðir stúdentar við
Háskólann en undanfarin ár hefur um helmingur þeira nýtt sér kosningaréttinn.
í Stúdentaráði Háskóla íslands (SHÍ) sitja
nú 30 fulltrúar. Allir eru þeir kjömir til
tveggja ára og er því 15 fulltrúar kosnir ár
hvert. Af þessum 15 em 13 kjömir beint til
Stúdentaráðs en 2 sem Háskólaráðsfulltrúar
en þeir eiga jafnframt sæti í Stúdentaráði.
Má því segja að framundan séu tvennar
kosningar sem fari aðeins fram á sama tíma.
Á kjörstað munu kjósendur fá afhenta tvo
kjörseðla, annan með framboðslistunum til
Stúdentaráðs en hinn með listunum tii Há-
skólaráðs.
Til fróðleiks má geta þess að í Háskólaráði
sitja 15 manns og þar af fjórir stúdentar.
Þessum fjómm fulltrúum skipta í dag Vaka
og Félag vinstri manna jafnt á milli sín. Það
kostaði mikla baráttu að fá fulltrúa í ráðið en
fyrsti stúdentinn tók þar sæti árið 1957.
Þeim fjölgaði í tvo kringum 1970 og haustið
1976 urðu þeir fjórir.
Eins og áður sagði sitja30 manns í Stúd-
entaráði og skiptast fulltrúamir þannig á
milli fylkinganna að Félag umbótasinnaðra
stúdenta hefur 6, Félag vinstri manna 12 (og
þar af tvo Háskólaráðsfulltrúa) og Vaka,
félag lýðræðissinnaðra stúdenta, 12 fulltrúa
(en þar af tvo Háskólaráðsfulltrúa).
Við skulum nú glöggva okkur lítillega á
því hvernig kosið hefur verið til Stúdenta-
ráðs á liðnum áratugum.
Kosningafyrirkomulagið frá
1920 til 1985
Stúdentaráð Háskóla íslands var stofnað í
lok árs 1920.1 upphafi sátu 9 manns i ráðinu
og hélst það óbreytt til 1966. Frá stofnun
SHÍ og til 1923 vom 8 fulltrúanna kjömir
gegnum deildirnar, tveir úr hverri deild, en
fráfarandi ráð kaus níunda manninn.
Árið 1923 var ákveðið að deildirnar kysu
aðeins einn manninn hver en fjórir yrðu
kosnir almennri meirihlutakosningu. Þessi
skipan hélst til 1933 en þá var samþykkt að
taka kosningu níunda mannsins frá frá-
farandi ráði og kjósa í staðinn fimm fulltrúa
almennri kosningu. Þá var einnig sú breyt-
ing gerð á fyrirkomulagi almennu
kosninganna, að meirihlutakosning var látin
víkja fyrir hlutbundinni listakosningu. Það
var nauðsynlegt vegna stofnunar fyrstu
pólitísku félaganna í skólanum.
Ekki vom menn lengi sáttir við þessa
breytingu og ákváðu að stíga skrefið til fulls
árið 1936 og láta kjósa alla fulltrúana níu í
almennri, hlutbundinni listakosningu.
Þetta fyrirkomulag hélst óbreytt til 1960
en þá var samþykkt, eftir mikið þjark, að
hverfa til upphaflega fyrirkomulagsins og
láta kjósa fulltrúana í ráðið sem einstaklinga
gegnum deildirnar. Hið nýja fyrirkomulag
átti að gera kosningamar ópólitískar en
vafamál er hvort það hefur nokkurn tíma
tekist.
Endurbætur vom gerðar á deildakjörinu
árið 1966, sem fólust m.a. í fjölgun ráðsliða,
en annars var það viðhaft til 1974. Þá var
deildakjörið orðið að hreinni pólitískri kosn-
ingu og þótti því farsælast, að skipta aftur
yfir í almennt, hlutbundið listakjör og hefur
það haldistsíðan.
Myndun meirihluta í Stúd-
entaráði
Undanfarin fjögur starfsár Stúdentaráðs
hefur engin fylkinganna þriggja, sem fulltrúa
eiga í ráðinu, haft þar meirihluta. Þess vegna
hafa stjómarmyndunarviðræður alltaf fylgt í
kjölfar hverra kosninga og hafa jafnvel
staðið í nokkrar vikur. Umbótasinnar hafa
verið í oddaaðstöðu í ráðinu og er þess vegna
erfitt að mynda meirihluta án þeirra nema þá
auðvitað að allveruleg breyting verði á fylgi
fylkinganna.
Nú heldur um stjórnartaumana meirihluti
umbótasinna og Vökumanna, í fyrravetur
voru umbótasinnar í samstarfi við vinstri
menn en tvö árin þar á undan með Vöku.
Stúdentablaðið vill að lokum hvetja stúd-
enta til þess að nýta sér kosningaréttinn. í
síðustu kosningum kusu um það bil 49%
þeirra sem vom á kjörskrá. Þessa tölu má
auðvitað hækka eitthvað þegar tekið er tillit
til þeirra hundmða sem þá höfðu hætt námi
eða aldrei hafið það. Þetta breytir því þó ekki
að þátttakan í kosningunum undangengin ár
hefur verið of lítil.
stúdentablaðið
Skilafrestur í fjórða tölublað
Stúdentablaðsins rennur út
miðvikudaginn 10. apríl 1985.
Útgefandi: Stúdentaráð Háskóla íslands
Ritstjóri: Kristinn Jens Sigurþórsson
Ritstjómarfulltrúar: Hrólfur Ölvisson og Páll Björnsson
Auglýsingastjóri: Júlíus Einarsson
Útlitshönnun: Ýmsir
Forsíðumynd: Jóhanna Friðriksdóttir
Prentvinna: Prentstofa G. Benediktssonar
Ritstjóm-Afgreiðsla-Auglýsingar: Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut 101 Reykjavík. Sími Þ59-59.
2
Stúdentablaðið