Fálkinn


Fálkinn - 27.10.1928, Síða 3

Fálkinn - 27.10.1928, Síða 3
K A L K 1 N N 3 LOFTSIGLINGAR Dr. Eckener og loflskipið „Graf Zeppclin". VlKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen oq Skúli Skölason. Pramkvœmdastj.: Svavah Hjaltested. Aðalskrifstofa: Austurstr. 6, Reykjavik. Simi 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa t Osló: Anton Schjöthsgatc 14. BlaCiO kemur út hvern Iaugardag. Askriftarverð er kr. 1.50 & mánuði; kr. 4.60 á ársfjórðungi og 18 kr. árg. Erlendis 20 kr. Allar áskriftir greiðist fgrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millimeter. ^Mmfíugsunarverf ~! í sumar liafa ýrns riki úti í Evrópu, sem fengu sjálfstæði sitt aftur í því hafróti landamæranna, sem varð um bað leyti er úrslit ófriðarins voru fyrirsjáanleg, haldið tíu ára afmæli frelsis sins liátiðlegt. Sambandslögin verða tíu ára cftir rúman mánuð, en ekki Iiefir enn heyrst að nokkur við- búnaður sje til Jiess. að minnast af- 'nælisins að nokkru. Við förum eigin götur í Jivi máli, og Jrarf l»að ekki að vera lasts vert. bað er í raun og vc-ru í fullu sam- r*mi við breytni okkar þessi ár, sem liðin eru, síðan ísland var lýst frjálst °g fullvalda riki 1. desembcr 1918. En sú breytni er vissulega umhugs- unarverð. Sljórnmálasaga fslands fram að nefndum degi her l»ess rikan vott, að íslendihgar hafi kunnað að berjast fyrir endurheiml sjálfstæðis síns. Þá var íslenskt sjálfstæði oft nefnt. — kln nú er örsjaldan á l»að minst, al- Veg eins og sjálfstæðið sje eins og ainhver Vatnajökull, sem enginn niannlegur ináttur geti losað okkur við. Alveg eins og sjálfstæðisins þurfi '®kki að gæta. Þess hefði mátt vænta, að bjóðleg- Ur liugsunarháttur liefði færst i aukana og 1» jóðarmetnaðurinn þrosk- asl við l»á yfirlýsingu sem fjekst 1918, eftir margra áratuga baráttu. En l»ó verður ]»ess ekki vart, að íslend- lngar sjeu i neinu bjóðræknari inenn nje umliygg jusamari fyrir velferð lands og þjóðar nú cn þá. Verður þvi ®kki annað sagt, en stjórnmálamenn- 'rnir hafi verið duglegri aö afla, en að njóta þess sem aflað var. Eftir 12 ár eiga fslendingar að end- urskoða sambandslögin eða endurnýja samninginn frá 1918 óhreyttan. Á síð- asta þingi tjáðu fulltrúar allra flokka s<g samþykka þvi. að samningnum yrði sagt upp. Þóttu þetta nokkur tið- *ndi i svip. En síðan hefir ekki neitt beyrst um livernig fara eigi um mesta velferðarmál þjóðarinnar að öðru leyti. Htjórnmálamennirnir eru svo önnum kafnir við annað, að þeir liafa elclci úiátt vera að þvi, að minnast ueitt á bað, t. d. núna á þeiin mörgu fund- UIn, sem haldnir hafa verið undan- larið, livað eigi að taka við Í9Í3. Og ef þeir eru spurðir, þá svara beir; „Æi, það er svo Iangt þangað 01 1943. Það er nógur timi til að bugsa um þetta“. En stundum liafa menn hrent sig á, að skjóta umliugsun Ufn hlutina ol’ lengi á frest. Og gerir nokkufj til, þó tólf árum úr lifi þjóð- arinnar sje varið til þess að hugsa u,u stærsta málefni liennar — og '■*ða það? í nóvember 1783 gerðist merk- isviðburður suður í Frakklandi. Þá tókst tveimur mönnum, Pil- atre de Rozier og d’Arlendes greifa að svífa í loftinu 25 min- útur í loftbelg, og er þetla fyrsta flugið, sem áreiðanlegar sagnir fara af í veröldinni. Alla öldina sem leið urðu ekki neinar teljandi frantfarir í loftsiglingum. Nfenn saumuðu að vísu lofthelda belgi og fyltu þá með gasi, sem var ljettara en loftið, svo að þeir gátu svifið uppi og borið nokkra þyngd, mismunandi eftir stærð. En þessi farartæki urðu að berast fyrir vindi, þau höfðu sjálf ekkert afl til þess að knýja sig fram, og höfðu því nauða litla liagnýta þýðingu. Þó má geta þess, að umsátinni um París 1870 voru loftbelgir notaðir til þess að koma brjefum og jafnvel far- þegum út úr borginni. Framfarasaga loftskipanna hefst i raun rjettri um aldamót- in síðustu. Þá fer Zeppelin greifi að vinna að smíði alstinnu loft- skipanna, og í öðrum löndum fara menn að spreyta sig á að smíða hálfstinn. Alslinn eru þau loftskip kölluð, sem bygð eru með heilli og ósveigjanlegri grind þannig að þau halda jafn- an sörnu lögun, en hálfstinn þau, sem bygð eru með stinnum kili, en hafa ekki heifa grind. Loft- belgirnir hafa alls enga grind og falla saman er gasið er tæmt úr þeim. En undir eins og farið var að hugsa um, að smíða skip sem knúin væri áfram með vjelaafli og hægt væri að stýra i ákveðna stefnu þótti það auðsætt, að loft- belgirnir mætti ekki vera kúlu- myndaðir, lieldur aflangir. Sá sem langmesta frægð hefir hlotið fyrir uppgötvanir sínar viðvíkjandi loftskipum, er Zep- pelin greifi, fæddur 1838, en and- aðist 1917. Hafa öll skip hans verið al-stinn. Fyrsta skipið smíðaði hann á árunum 1898— 1900, var það 126 metra langt, 12 metrar í þvermál og rúmtak þess 11.000 rúmmetrar. f þessu skipi var gasið haft í 17 belgj- um, sem voru í röð inni í aðal- hylkinu; var þetta varúðarráð- stöfun, gerð til þess að minka áhættuna við sprengingu eða skemdir á skipinu. Á skipi þessu voru tveir 16 hestafla hreyflar og gat skipið komist 30 km. á klukkustund. Skip þetta flaug nokkrum sinnum sumarið 1900 en gjörskemdist svo i lendingu. Með þessari tilraun hafði Zeppe- lin þó sýnt, að hægt var að smiða loftskip sem látið gæti að stjórn, en um það efuðust marg- ir í þá dag. Zeppelin ljet ekki bugast en smíðaði ný skip. Sumarið 1906 tókst honum að ná svo góðum árangri, að nú lor stjórnin að gefa honum gauin og styrkja hann, því sýnt þótti, að loftskip- in gæti komið að notum i hern- aði. En hernaðarþýðing loft- skipa og flugvjela hefir stutt meira að fullkomnun þeirra en nokkuð annað. Vorið 1911 hafði Zeppelin fullgert hið tíunda loft- skip sitt, sem var 140 metra langt, 14 metrar i þvermál, gat verið á flugi í tvo sólarhringa og komst 70 kílómetra á klukku- stund. En rúmtak þess var 19 þús. rúmmetrar, og hreyfilork- an 150 hestöfl, eða eigi meiri en lítillar ílugvjelar. Flestum skip- unum, sem Zeppelin hafði bygt, hafði orðið það að falli að svo erfitt var að stjórna þeim í lend- ingu; tóku þau svo mikið á sig að lítil vindhviða gat „slegið þeim við“ og mölbrotið þau; ennfremur þoldu þau illa of- viðri. vegna þess hve mikið stóð í þau. Þetta sama er enn þann dag í dag, sem háir loftskipun- um mest. í Frakklandi bygðu menn á sama tírna loftskip ineð hálf- stinna fyrirkomulaginu, og í Bretlandi bygðu inenn suinþart hálfstinn skip og sumpart með Zeppelinssniði. Þegar ófriöurinn hófst áttu Þjóðverjar 20—25 loftskip, bæði Zeppelins og önn- ur, Frakkar áttu 12—15 loftskip, miklu ófullkomnari, en Bretar að eins sjö og af þeim gátu ekki nema tvö talist liafa nokkra hernaðarþýðingu. Og styrjöldin sýndi, að Þjóðverjar vorn þeir einu, sem höfðu nokkurt veru- legt gagn af loftskipum sínum. Nú var farið að smíða skipin stærri og með ineiri hreyfilorku til þess að þau gætu flogið hraðar og haldið sjer leugur á flugi milli lendinga. Zeppelin- skipin, sem til voru í stríðsbyrj- un voru um 20.000 rúmmetrar, Dr. Eckcner mælir fgrir stefnunni á einni reynstuferðinni.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.