Fálkinn - 07.06.1930, Page 4
4
F A L K I N N
Hristján I. Mapásson, málari.
Hvílíkt myndaskraut var ekki
á baöstofuloflinu gamla. Við
sáum stúlkurnar ganga suður
með sjó, svunturnar blöktu og
og hárið flóði um háls og herð-
ar, sú, sem fór fyrir var með
gullspöng umennið. Heilirheim-
ar opnuðust innri sjónum okk-
ar. — Það þarf svo mikið
til þess að hrífa okkur. Þó er
það eilt, sem altaf hrífur og
kallar. íslensk náttúra er það.
allra, lwe gömul, sem við verð-
Hún mun aliaf taka hugi okkar
um og hve miklu, sem við töp-
um af innsæi okkar í hlutina.
Vetur, sumar vor og haust, alt-
af cr jafn unaðslegt hjcr í þess-
um btáa heimi, sem við köllum
ísland. En þó er það ekki síst
veturinn, hinn tigni og hvíti,
sem næstur stendur hjörtum
okkar og hug, með hinum fögru
titbrigðum í snjóm og bláum
hnúkum. Merkilegt að íslenskir
málarar hafa gert svo lítið að
því að flytja þessa fegurð inn
í híbýli manna. Nú hefir einn
íslenskur málari hafist handa
með að mála vetrar myndir.
Kristján Magnússon heitir hann.
Hefir hann í vor haldið sýningu
á vetrarmyndum svo dásamlega
fögrum, að margan hefir rekið
í roga stans og spurt sjálfan sig:
Getur íslenskur velur virkilega
vcrið svona fagur.
. .Krist ján er ungur maður, ekki
þrítugur að aldri. Iiefir hann
slundað nám um tíu ára skeið
i Ameríku og haft þar sýningar
á ýmsum stöðum, svo s.em Nati-
onal Academy (þjóðsýning
Bandarikjanna), Philadelphia
Academy, Brooklyn Museum og
American Federation of Art,
A. V. Tulinius forstjóri varð 65
ára í gær.
Grímúlfur Ólafsson, tollvörð-
ur verður fimtugur 9. júní.
Áður en verksmiSjuiðnaður komst
í algleyming ófu menn dúka sína
og fatnað sjálfir. Var það ólíkt hald-
betra en nú tíðkasl um vefnað. Að-
alsetrin höfðu sin sjerstöku munstur
og var skjaldarmerki ættarinnar að
jafnaði ofið inn í, þótti það bæði
prýði og vegsauki. Hver, sem getur
reynir nú- að eignast eins mikinn
silfurborðbúnað og unt er hitt dett-
ur ekki öllum í hug, að fegurð og
áhrif borðskrautsins er ekki hvað
síst undir horðdúknum komið. Nú
vill svo vel til að lijer verður í sum-
ar völ á prýðisfallegum dúkum, sem
Verslunin Egill Jacobsen hefir látið
handvefa suður i Sachsen. Dúkar
þesir eru af öllum stærðum. Matar-
dúkar úr damask og kaffi- og tedúk-
ar silkiofnir með mjög smekklegum
litum. í dúkinn miðjan er ofinn ís-
lenskur foss og skjaldarmerki ís-
lands. Að ofan stendur: Alþingi 930
—1930 og neðan undir Minni íslands.
Utan um jaetta eru ofin gömul íslensk
drekamunstur. Kanturinn er ljóm-
andi fallegur með eikarblaða munstri.
Þetta er ágætur menjagripur og lief-
ir til síns ágætis það, að vera fag-
ur og hentugur um leið. Dúkar þess-
ir geta enst heila mannsaldra ef vel
er með farið og verða þvi í raun-
inni ódýrari en verksmiðjuiðnaður-
inn, sem slitnar margfalt fyr. Skyldi
vel fagnað öllu því, sem vandar og
prýðir íslensk heimili.
ferðasýningu (frá þjóðsýning-
unni árið 1927). Síðasta árið,
sem Iíristján dvaldi vesira var
hann aðstoðarmaður fresco-
málarans Ezra Winter. Er
Winter ráðunautur Bandaríkj-
anna í listum og talinn einn
meðal hinna fremstu málara
Ameríku. — Yfir hátíðina mun
Kristján halda uppi sýningu á
myndum sínum hjer í bæ og
ættu allir, sem list unna að fara
og skoðar myndir hins gáfaða
listamanns. Sýningin verður
opnuð 14. júní í Austurstræti 5.
Áhorfandi.
Guðmundur Jónsson skip-
stjóri vcrður fertugur 12. júní.
Salvör Guðmundsdóttir Týsg.
4 verður áttræð á morgun.