Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1930, Blaðsíða 5

Fálkinn - 07.06.1930, Blaðsíða 5
PÍLKINN 5 Sunnudags hugleiðing. Textinn: Jóh. 14. 15—21. „Ef þjer elskið mig, þá munuð þjer halda boðorð mín“. Á þetta erum við mintir í textanum í dag. Að elska Jesú er undirstaða hins sanna trúarlífs, tilbiðja liann og finna það í hjarta sínu, að liann er besti vinurinn, sem maður á. iTristinn er sá einn, sem elskar Jesú. , Eftir burtför sína af jörðunni sendi Jesú lærisveinum sínum heilagan anda. Hann hafði lofað að gefa þeim annan huggara, eft- ir að hann færi sjálfur, og komu þessa huggara minnist kristinn lýður enn þann dag í dag, á hvíta- sunnuhátíðinni. Hinum fyrstu lærisveinum varð koma lieilags anda upphaf að safnaðarlífinu. Þeir höfðu áður vanist því að hafa daglega umgengni við meist- ara sinn og þjóna honum, en nú var hann farinn til föðursins og lærisveinarnir áttu að halda á- fram verki lians, að kenna öllum þjóðum að þekkja Guð. Hið sama verk heldur enn á- fram í heiminum, með aðstoð heilags anda og í starfi þeirra manna, sem öðrum fremur liafa kjörið það hlutskifti sitt, að vinna fyrir eflingu Guðs ríkis. Orð Guðs er boðað miljónum og kristin trú vinnur nýtt land á liverju ári og varpar nýrri hirtu þar sem áður var myrkur. í allri kenningu Jesú kemur það skýrt fram, að hann telur kærleiksboðorðið mest allra hoð- orða. Elska skaltu Drottinn Guð þinn af öllu lijarta, og náung- ann eins og sjálfan þig, segir hann. Og í textanum segir liann: ef þjer elskið mig, þá munuð þjer halda boðorð mín. Þetta að elska Jesú, er lykillinn að trúnni á hann, og enginn getur trúað á hann nema liann elski liann. Svo einföld er leiðin til þess að njóta kenninga hans og þeirra eilífu gæða, sem trúin á hann gef- ur. Enginn liefir í verki sýnt eins mikinn kærleika og Jesús Krist- ur. Enginn fært dýrari kærleiks- fórnir til þess að frelsa synduga rnenn. Enginn elskaði oss að fyrra bragði eins og liann gerði. Og er þá ekki skiljanlegt, að vjer eigum að elska hann og öðlast trúna á hann fyrir tilfinninguna um, að hann er mannvinurinn mesti og að enginn hafi sýnt oss meiri kærleika en hann. H. C. Andersen. Hver kannast ekki við H. C. Andersen, æfintýraskáldið mikla ? Sú menningarþjóð mun elckivera til, sem ekki á meiri hlutann af æfintýrum lians á sínu máli. Þau hafa farið land úr landi og al- staðar verið lesin af hörnum og fullorðnum jafnt. Því jafn meist- aralega og skáldinu tekst að skrifa þannig, að hörnin lifi og hrærist í viðburðunum, sem hann segir frá, jafn þrungin eru æfin- týri lians af lífsspeki og frásagn- arsnild, sem fullorðið lmgsandi fólk kann að meta. Úr Vlkegadc fluttist H. C. Andersen í Dybensgade Árið 187°’ nokkrum árum fyrir dauða sinn (hann dó 1875) fluttist Andersen i Nýhöfn 18 og bjó þar 20. Sýnir krossinn gluggann á herbergi hans. i tve^imur herbergjum á annari hæð, Eftir að II. C. Andersen var orðinn stúdent átti hann um hrið heima í litlu kvistherbergi í Vingaards- stræde, og þar skrifaði hann nokkurn hluta af fyrstu bókinni sinni: „Fodrejse fra Holmens Canal til Östpynten af Amager". u, sem stendur í Holmens Gade bjó And- ersen um tíma á fyrstu hæð og síðan annari hæð. Hann varð að láta sjer nægja birtuna, sem komst inn í herbergið þegar hurðin út í eldhúsið var opin. Holmens Gade hjet í þá daga Ulkegade. Æfi Andersens sjálfs er eins- konar æfintýri. Hann fæddist i O- dense í Danmörku fyrir 125 ár- um og lifði bernskuár sín i mestu eymd og við ömurlega aðbúð, en eigi að síður þóttist liann viss um að eiga mikla framtíð fyrir liöndum. Undir eins eftir ferm- inguna fór hann fótgangandi til Kaupmannahafnar til þess „að verða frægur“, tekur sig upp úr fátæktinni og eymdinni og flyt- ur sig til „stærstu borgar í heimi“ því það var Kaupmannaliöfn þá, að lians áliti. Hann reyndi all- síaðar fyrir sjer, vildi verða leik- ari, söngmaður, leikritahöfundur og ýmislegt fleira, en kom alstað- ar að lokuðum dyrum. Loks hitti liann menn, sem sáu hvað í hon- tnn bjó og má þar fyrst og fremst nefna Jonas Collin etatsráð. Settu þeir hann til menta og varð hann síúdent 1828 og gaf út fyrstu bók sína sama ár. Var henni vel tek- ið og átti Andersen talsverðri hylli að fagna næstu ár, en svo snerist lukkulijólið og ritdómar- arnir gengu í skrokk á lionum. Tók hann sjer þetta mjög nærri,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.