Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1930, Blaðsíða 9

Fálkinn - 07.06.1930, Blaðsíða 9
F Á L K I N N 9 Myndin hjer til vinstri er frá Búdapest, tekin þar um síð- ustu páska. Lambakjöt er þar aðalpáskamaturinn og götusalar ganga hús úr húsi og bjóða lambakjöt og gera mikla verslun. Til Grikklands koma í sum- ar miklu fleiri ferðamenn en ella, vegna hátiðahald- anna í landinu í tilefni af iOO ára sjálfstæði landsins. Fyrir utan höll forsetans gefur að líta þessa varð- menn, í afar sjerkennileg- um einkennisbúningum. foh Itili'rtmt IMHM HI MWffi / Indlandi hafa fylgismenn Gandhi sumstaðar lagt sig yfir járn- braátarteinana, svo að lestirnar verða að stansa og bera þá burt. 1 Berlín kom það fyrir í aprílmánuði síðastliðnum að börn í sum- um skólum gerðu verkfall. Og það fór um þetta verkfall eins og mörg önnur, að börnin, sem gerðusl „skrúfubrjótar“ urðu fyrir ýmsum óþægindum af hinum, svo að mæður þeirra heimtuðu að lögreglan fylgdi þeim í skólann. Myndin hjer til vinstri sýnir Ras Tafari Iceisara Abessyn- iumanna fyrir utan höll sína, að kenna syni sinum að sitja á hestbaki. Þó Ta- fari sje svo til nýlega tek- inn við ríki hefir hann bor- ið keisaranafn í mörg áir, því hann var meðstjórnandi Zeoditu drotningar, sem dó í vetur. Myndin til hægri er af ný- tísku vorfatnaði kvenna. Siður frakki og pils og hatt- ur úr sama efni.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.